Frjáls verslun - 01.05.2008, Side 190
fólk
190 F R J Á L S V E R S L U N • 5 . T B L . 2 0 0 8
Jón Pétur Jónsson keypti Örninn árið 1991 ásamt þremur félögum sínum. Örninn er þekktasta reiðhjólaverslun
landsins og hefur vaxið mikið á nokkrum
árum og í dag er Örninn einnig einn stærsti
seljandi líkamsræktartækja: „Hvað mig varðar
þá verða kaflaskipti þegar ég kaupi félaga
mína út úr Erninum 1994. Önnur kaflaskipti
verða 2006 þegar ég kaupi golfverslunina
Nevada Bob. Fyrirtækin eiga margt sameig-
inlegt, en eru aðskilin. Þriðja fyrirtækið er
golfheildsala sem var stofnuð í kjölfar kaup-
ana á Nevada Bob. Þar erum við að selja til
allra sem versla með golfvörur.“
Það þarf engan að undra að Jón Pétur
skyldi velja sér íþróttavörur þegar hann hóf
verslunarrekstur. Íþróttir hafa verið stór hluti
af hans lífi hans frá barnsaldri. Hann var áður
fyrr þekktur handknattleiksmaður með Val
og landsliðinu og einn af hinni frægu muln-
ingsvél Valsmanna. Þegar handknattleiksferl-
inum lauk dreif hann sig í golfið og þar lét
hann fljótt til sína taka, ekki síður í félags-
málum en á golfvellinum og er dag formaður
Golfklúbbs Reykjavíkur:
„Ég hef alltaf verið mikið fyrir hreyfingu
og líkamsrækt almennt og sá áhugi hefur
ekkert farið af mér með árunum og að versla
með vörur þar sem hreyfing og líkamsrækt
er í fyrirrúmi hentar mér ákaflega vel. Hvað
varðar hjólin þá hefur orðið gríðarleg vakning
sem segja má að hafi komist á fullt í fyrra og
hefur haldið áfram í ár. Þarna kemur margt
til, mikill áróður hefur verið fyrir hollustu
hjólreiða sem hefur skilað sér út í þjóðfélagið
og þá tel ég að hlýnandi veðrátta hafi haft
áhrif auk þess sem bensínverðið er nú farið
að þjaka þjóðina.“
Hjá Jóni Pétur tengist áhugamálið starf-
inu: „Ég var löngu byrjaður í golfinu áður
en ég keypti Nevada Bob. Ég fór í stjórn
Golfklúbbs Reykjavíkur 1999, þá var for-
maður Gestur Jónsson. Þegar Gestur vildi
ekki gefa kost á sér áfram sem formaður í
fyrra tók ég við af honum og held áfram
þeim verkefnum sem hafin voru undir hans
stjórn, sem eru stækkun golfvallarins á
Korpúlfsstöðum, gerð inniæfingasvæðis og
ný vélageymsla, svo það helsta sé nefnt, en
hjá jafnstórum golfklúbbi og GR eru verk-
efnin óþrjótandi og í dag starfa 60 manns á
vegum klúbbsins.“
Golfið er fjölskylduíþrótt og tímafrek og
Jón Pétur segir að í raun sé ekki hægt að
ætlast til þess þegar hjón eigi í hlut að annar
aðilinn sé á kafi í golfi en hinn ekki. „Eig-
inkona mín, Jónína Rútsdóttir, er í golfinu
og krakkarnir hafa öll byrjað en hafa ekki erft
áhuga föðurins og snúið sér að öðru í bili,
hvað sem síðar verður.“
Jón Pétur er að lokum spurður hvort
hann fari ekki í golfferðir til útlanda: „Það er
nú líkast til. Við erum margir sem höldum
hópinn og förum saman en ég er nú þannig
að ég vil hafa ferðirnar stuttar og keyra mig
út á golfvellinum. Síðasta golfferð mín stóð
ekki lengi. Við fórum átta saman í golfferð til
Skotlands þar sem leiknir voru sex 18 holu
hringir á þremur dögum.“
nafn: Jón Pétur Jónsson.
fæðingarstaður: reykjavík,
16. janúar 1953.
foreldrar: Jón andrésson og
Vilborg Ólafsdóttir (bæði látin).
maki: Jónína rútsdóttir.
Börn: Inga rut, 32 ára, María
Vilborg, 27 ára, og Snorri
Ólafur, 22 ára. Jón Pétur Jónsson: „Við fórum átta saman í golfferð til Skotlands þar sem leiknir voru sex 18 holu
hringir á þremur dögum.“
framkvæmdastjóri arnarins og nevada Bob og formaður Golfklúbbs reykjavíkur
Jón Pétur Jónsson
TExTI:
hiLMAr
KArLsson
MYndIr:
GEir
ÓLAfsson