Gerðir kirkjuþings - 1982, Side 135
125
vali og æfingum hafði söngmálastjóri Haukur Guðlaugsson og hinn
mikli árangur söngsins á þessum hátiðum er ekki hvað sist honum aö
þakka. Söngmálastjóri hefur i samstarfi við Skálholtsútgáfu unnið
aó hljómplötunni: Kirkjan syngur, og efni þeirrar plötu er sálma-
söngur og tónlist á þessum kristniboðshátiðum.
Hugmyndin um, að kirkjan eignist sitt eigið forlag og blað,
hefur lengi verið á döfinni. Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup
kynnti þessa hugmynd á siðasta kirkjuþingi. Hann benti einnig á,
hve timabært og lifrænt það væri, að stofna slikt forlag i tilefni
1000 ára afmælisins. Málið var rætt i kirkjuráði og látin fara fram
könnun á útgáfumálum. Eftir þá athugun samþykkti kirkjuráð stofnun
þessa forlags 26. febrúar 1981 með skipulagsskrá. Tilgangurinn meó
Skálholtsútgáfu er m.a. sá að sjá um útgáfu blaðs, en um það atriði
fjallaði kirkjuráð 1972 og prestastefnan 1969. Blaðið, sem hlaut
nafnið Viðförli hefur þegar hafið göngu sina með fyrsta eintaki.
Ritstjóri þess er fréttafulltrúinn, séra Bernharður Guómundsson,
sem áður annaðist útgáfu Fréttabréfs Biskupsstofu. Og tekur blaðið
nú við hlutverki þess, en blaðið verður auk þess viður vettvangur
um önnur þau mál, sem kirkjuna varðar. Skálholtsútgáfan er yngsta
greinin á meiði kirkjunnar og verðugt minningarmark um 1000 ára
kristniboð i landinu. Framkvæmdastjóri útgáfunnar er frú Jóhanna S.
Sigþórsdóttir, áður blaðamaður hjá Timanum. Skálholtsútgáfu og
starfsmönnum fylgja hinar bestu vonir og óskir um farsæl störf,
þegar „Viðförli" leggur nú upp i annan 1000 ára áfanga kristniboðs
á íslandi.
9. mál. Um fjölskylduráðgjöf og þjónustu við aldraða. Mál
þetta var kynnt fyrir safnaóarráði Reykjavikurprófastsdæmis, for-
manni ellimálanefndar kirkjunnar og próföstum. Á vegum Reykjavikur-
prófastsdæmis, i kirkjum borgarinnar og viöa um land er unnið marg-
þætt starf fyrir aldraða. Uppstigningardagur var i samráði við
öldrunarnefnd kirkjunnar kjörinn sérstakur messudagur öldrunarmála.
Sú nefnd hefur það sérstakleg á sinni dagskrá, að safnaðarsystur
geti starfaó sem viðast i þéttbýli til þess m.a. að sinna öldruðum
og sjúkum i heimahúsum.
10. mál. Um stuðning við hió islenska Lúthersfélag. Viðræöur
hafa átt sér stað um útgáfumál og önnur atriói á Lúthershátió 1983,
og fjárhagslegan stuðning við hátiðahöldin. Lúthersæfmælið verður