Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Page 2

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Page 2
Til greinarhöfunda 1. Tímarit um menntarannsóknir er vettvangur fyrir fræðilega umræðu um menntarannsóknir á Íslandi. Þær kröfur eru gerðar til greinarhöfunda að þeir lúti viðteknum venjum um fræðilega framsetningu efnis og vísindaleg vinnubrögð. Áhersla er lögð á að öll fræðiheiti séu á íslensku og að málfar og framsetning efnis sé samkvæmt íslenskum málvenjum. 2. Öllum er heimilt að senda efni í ritið. Allt efni sem tengist menntun og rannsóknum á menntamálum með einum eða öðrum hætti metur ritnefnd og skoðar með tilliti til útgáfu. 3. Greinum sem ekki standast kröfur um framsetningu og efnistök hafnar ritnefnd hvort sem um er að ræða innsendar greinar eða greinar sem fólki hefur verið boðið að skrifa í blaðið. Ritnefnd áskilur sér einnig rétt til að breyta orðalagi eða stafsetningu ef nauðsyn krefur við lokafrágang ritsins. 4. Ákvörðun um birtingu greina byggist á faglegri umsögn a.m.k. tveggja ritrýna um gæði rannsóknar eða fræðilegrar greinar og viðbrögðum höfundar við athugasemdum. Allt innsent efni fær faglega umsögn og athugasemdir tveggja aðila sem ritnefnd treystir til verksins. Umsögn fylgir jafnframt ákvörðun um birtingu eða synjun. Í vissum tilvikum getur grein verið samþykkt með fyrirvara um að brugðist sé við faglegum ábendingum. Eftir að greinarhöf- undur hefur brugðist við athugasemdum er grein hans lesin yfir að nýju og honum sendar nýjar ábendingar, fyrri ábendingar ítrekaðar eða hann látinn vita að grein hans sé endanlega samþykkt með áorðnum breytingum. 5. Skilafrestur efnis í tímaritið er 1. júlí ár hvert. Handrit sendist beint til ritstjóra. Netfang: rfo@namsmat.is Framsetning efnis 1. Meginregla er að innsendar greinar hafi ekki birst annars staðar. Undantekning er gerð frá þessari reglu ef ritnefnd telur greinar sem birst hafa í viðurkenndum erlendum fagtímaritum eftirsóknarverðar til birtingar á íslensku. 2. Miða skal við að framsetning efnis sé í samræmi við venjur sem gilda í virtum erlendum tímaritum. Almennar reglur um framsetningu má finna, t.d. í Handbók Sálfræðiritsins, Gagnfræðakveri handa háskólanemum frá Háskóla Íslands og fleiri ritum. Miðað er við APA í framsetningu efnis, tilvitnana, tilvísana og heimildaskrár. Auk útdráttar á íslensku og ensku er nauðsynlegt að höfundar gefi til kynna í handriti hvar þeir vilja að töflur og myndir séu staðsettar í texta. Sérstök athygli er vakin á því að vitna skal til skírnar- og föðurnafns íslensks höfundar en ekki föðurnafns eingöngu eins og gildir um erlenda höfunda. Jafnframt skal raða íslenskum höfundum í heimildaskrá samkvæmt skírnarnafni þeirra. 3. Ætlast er til þess að beinar tilvitnanir úr erlendum tungumálum séu þýddar á íslensku. 4. Myndum sem höfundar vilja birta í greinum sínum skal skila án texta. Sá texti sem höfundur vill að standi við mynd, ásamt númeri myndar, fylgi myndinni. 5. Stafabil í texta eiga aldrei að vera fleiri en eitt. Þegar þau þurfa að vera fleiri (t.d. við töflugerð) skal nota dálklykil á lyklaborði. 6. Eftir að grein hefur verið samþykkt til birtingar og höfundur hefur brugðist við faglegum ábendingum skal senda ritstjóra eitt eintak af greininni. Allar greinar skal senda til ritstjóra í tölvutæku formi, unnar í algengu ritvinnsluforriti þannig að tryggt sé að ritstjórn geti skoðað og meðhöndlað allt efnið. 7. Greinarhöfundar fá senda próförk til leiðréttingar af uppsettum greinum og frágengnum til birtingar. 8. Höfundar efnis fá 20 sérprent af greinum sínum. 9. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu Félags um menntarannsóknir (http://www.fum.is).

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.