Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Blaðsíða 32
32
skólanum á sviði sjálfsmats undanfarin ár og
þær breytingar sem gerðar höfðu verið voru að
frumkvæði fræðsluyfirvalda.
Það sem gert hafði verið í Báruskóla var að
mestu skipulagt og hannað af skólastjórnend-
um eða unnið í samstarfi við nágrannaskóla.
Að mati skólastjóra er ástæða þess að ekki
hefur verið meira gert í þessum efnum m.a.
sú að skólinn er fáliðaður og talsverðar
mannabreytingar hafa átt sér stað í tímans rás.
Stjórnendur þurfa að kenna talsvert og skortir
því tíma í önnur verkefni. Rætt hefur verið um
að afla verkfæra fyrir sjálfsmat en af því hefur
ekki orðið, „...við höfum ekki séð þörf á að
eyða peningum í þetta“ sagði skólastjórinn.
Í hinum skólunum fjórum höfðu skóla-
stjórar eða aðstoðarskólastjórar beitt sér af
talsverðri festu við framkvæmd sjálfsmatsins.
Í einum þeirra, Hrannarskóla, höfðu skólastjóri
og aðstoðarskólastjóri forystu um að koma
sjálfsmatinu á. Í upphafi var skipaður hópur
til að stjórna matinu en hann var aðeins virkur
í stuttan tíma. Aðstoðar skóla stjóri var í námi
á sviði stjórnunar og mats og var hvatamaður
að sjálfsmati en hvarf síðan til annarra starfa.
Í þessum skóla voru kennarar vel með á
nótunum um tilgang matsins en virtust ekki
hafa tekið mikið frumkvæði.
Í Unnarskóla var framkvæmd sjálfsmatsins
á vegum nefndar sem í sátu skólastjóri og
aðstoðarskólastjóri auk nokkurra kennara. Í
samráði við nærliggjandi skóla beittu skóla-
stjórn endur sér fyrir því að hefjast handa við
sjálfsmatið með fulltingi kennara þótt í upphafi
gætti þess viðhorfs að verkinu fylgdi vinna
sem ekki væri gert ráð fyrir í starfskjörum
kennara.
Í Bylgjuskóla var skipaður starfshópur til
að halda utan um sjálfsmatið með svipuðum
hætti og í Unnarskóla en skólastjóri starfaði
ekki í hópnum. Í skólanum hefur talsvert verið
gert á sviði sjálfsmats en hópur stjórnenda
og sérkennara hefur haft veg og vanda af
sjálfsmatinu. Skólinn fór frekar seint af stað
og þegar úttektin var gerð af menntamálaráðu-
neytinu voru „þeir rétt að byrja“. Ástæðu þess
að ekki var strax hafist handa við sjálfsmatið
telur einn úr hópnum vera að önnur verkefni
hafi verið talin brýnni:
Þetta var ekki sett í forgang hjá okkur.
Í dagsins önn þá eru menn alltaf að í
‘akút’ verkefnum hér og nú þannig að
þá verða svona verkefni afgangs. Menn
telja þau ekki mikilvæg, það er annað
mikilvægara.
Hópurinn leggur áherslu á að virkja þurfi
kennara og nemendur betur við sjálfsmatið.
Ýmis dæmi eru þó um að kennarar hafi lagt
kannanir fyrir í sínum bekkjum, unnið úr þeim
og skilað niðurstöðum til umsjónarhópsins.
Gerð hefur verið tilraun með rýnihópa um
stefnu skólans og hefur sú ráðstöfun gefist
vel.
Í tveimur síðastnefndu skólunum voru
nefndirnar virkar við að skipuleggja og fram-
kvæma mat á ýmsum þáttum skólastarfsins
og bera niðurstöður á borð fyrir kennara.
Kennarar voru meðvitaðir um gildi matsins og
töldu miklu skipta að niðurstöður væru kynntar
fyrir þeim. Í þessum skólum virtist ríkja traust
milli hópanna sem héldu utan um matið og
hins almenna kennara.
Í Ölduskóla var matið að mestu skipulagt
af skólastjóra og aðstoðarskólastjóra en
kennararnir voru markvisst tengdir úrvinnslu
matsins. Skólastjóri segir að innan skólans
sé ekki mikið rætt um sjálfsmat sem kerfi
heldur einstaka þætti þess. Til er formleg
áætlun, bæði til eins árs og til þriggja ára,
um þá þætti sem sjálfsmatið á að taka til.
Skólastjóri bendir á að kennurum í skólanum
sé ljóst að ekki sé verið að „meta kennsluna
beint.“ „Það er veikleiki“ segir skólastjóri.
„Þetta er eldfimt efni í kennarastarfinu“ sagði
einn kennarinn, „... við erum bara ekki komin
lengra“. Þeir kennarar sem rætt var við litu á
matið sem bráðnauðsynlegan lið í starfsemi
skólans og mjög mikilvæga leið til breytinga
og umbóta. Skólastjórinn sagðist nota „matið
markvisst sem stjórntæki“ við stjórnun og
þróun skólans.
Af þessu má sjá að talsverður munur er milli
skólanna á því hvernig staðið var að fram kvæmd
sjálfsmatsins og hvernig skólastjórnendur
Sjálfsmat í grunnskólum
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005