Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Blaðsíða 13
13
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005
þar á milli en vænst hafði verið. Af þeim sex
atriðum sem nefnd eru hér að framan tengdust
væntingar foreldra til námsgengis barnanna
sterkast námsárangri en aðhald foreldra með
heimanámi virtist skipta minnstu af þessum
þáttum. Ekki kemur nægilega skýrt fram í
samantektinni hvort væntingar foreldra um
námsgengi vísi hér til væntinga foreldra um
námsárangur barnsins og/eða um hve miklu
námi barnið muni ljúka.
Tengsl á milli þátttöku foreldra í skólagöngu
barna við brotthvarf ungmenna frá námi hafa
lítt verið könnuð (McNeal, 1999; Rumberger,
1995). Þó má nefna rannsókn Alexanders og
félaga (1997) sem sýndi að þau ungmenni
voru ólíklegri til að ljúka framhaldsskóla sem
áttu foreldra sem höfðu litlar væntingar til
námsgengis þeirra í byrjun grunnskóla (hér
er átt við bæði væntingar um námsárangur og
um hve miklu námi barnið muni ljúka). Þessi
niðurstaða kom fram að teknu tilliti til félags-
og efnahagslegrar stöðu foreldranna. Þá hefur
komið fram að þátttaka foreldra í foreldra- og
kennarafélögum skólans og aðhald foreldra
við heimanám unglinga virðast minnka líkur
á brotthvarfi þeirra frá námi (McNeal, 1999;
Rumberger, 1995). Í rannsókn McNeal kom
jafnframt fram að tengsl þátttöku foreldra
í skólagöngu barnsins við námsgengi þess
voru með mismunandi hætti eftir því hvaða
mælikvarði var lagður á námsgengi. Þannig
tengdist til dæmis umræða foreldra og barna
um skólann góðum námsárangri barna þeirra
en dró ekki úr líkum á brotthvarfi þeirra frá
námi.
Fyrrnefnd samantekt bendir til þess að
flókin tengsl séu á milli þátttöku foreldra
í skólagöngu barna og námsárangurs þeirra
annars vegar og brotthvarfs frá námi hins
vegar. Niðurstöðurnar eru jafnvel misvísandi
og hefur það verið skýrt annars vegar með
því að ólíkar mælingar séu notaðar til að meta
þátttöku foreldra í skólagöngu barnsins og
hins vegar því að oft séu mælingar of einfaldar
þegar í raun sé um að ræða flókið samspil
margra þátta (Fan og Chen, 2001).
Velta má því fyrir sér hvort þessi nálgun
við að meta tengsl samskipta foreldra og
barna við námsgengi hafi verið of þröng.
Hugsanlega er heppilegra að beina athyglinni
að uppeldisaðferðum foreldranna í stað
afmarkaðri þátta sem tengjast beint skóla-
göngu. Í því samhengi má nefna niðurstöður
Steinberg, Lamborn, Dornbusch og Darling
(1992) sem benda til að það fari eftir
uppeldisaðferðum foreldra hver tengslin
eru á milli þátttöku foreldra í skólagöngu
barnsins og námsárangurs þess. Þátttaka for-
eldra í skólagöngu unglinga ýtti undir betri
námsárangur einungis hjá unglingum leiðandi
foreldra. Leiðandi uppeldi einkennist af því
að foreldrar krefjast þroskaðrar hegðunar af
barni sínu, sýna því viðurkenningu, hvatningu
og hlýju en setja jafnframt skýr mörk með
viðhlítandi skýringum á því hvað er tilhlýðilegt
og hvað ekki (Baumrind, 1971). Niðurstöðu
sína túlkar Steinberg (2001) á þá leið að það sé
ekki aðeins hvað foreldrar geri í tengslum við
skólastarfið og námið sem skipti mestu máli
heldur hvers konar uppeldisaðferðir foreldrar
noti í samskiptum við börn sín.
Á sviði rannsókna á uppeldisaðferðum
foreldra er kenning Díönu Baumrind sennilega
einna þekktust. Hugmyndafræðilegur grunnur
kenningarinnar (Baumrind, 1971; Steinberg,
2001) er sá að börn sem búa við leiðandi upp-
eldi, þ.e. viðurkenningu og hlýju foreldra sinna,
stuðning þeirra og mörk, séu móttækilegri fyrir
leiðbeiningum foreldra en börn sem búa við
annars konar uppeldi; félagsmótunin verði
þar af leiðandi árangursríkari. Heimilisbragur
sem einkennist af gagnkvæmu trausti og
viðurkenningu – þar sem málin eru rædd
og lögð áhersla á að laða fram sjónarmið
bæði barnanna og foreldranna – efli þroska
barnanna vitsmunalega og félagslega og styrki
sjálfsmynd þeirra og ábyrgðarkennd. Fyrstu
rannsóknir Baumrind (1971) á þessu sviði
beindust að tengslum á milli þroska barna
á forskólaaldri og uppeldisaðferða foreldra.
Þar kom fram að strax á þeim aldri barnanna
megi greina mismunandi þroska þeirra eftir
uppeldisaðferðum foreldranna. Börn leiðandi
foreldra reynast best sett; þau eru afar virk
Brotthvarf frá námi