Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Side 56
56
Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005
Með þekkingarmarkmiðum er t.d. átt við þætti
eins og hugmyndir, hugtök, staðreyndir, sögur
og söngva. Færnimarkmið eru skilgreind sem
afmarkaðir þættir sem lærast á tiltölulega
skömmum tíma og eru auðveldlega sýnileg,
svo sem að klippa og telja hluti. Markmið
sem lúta að tilhneigingum eru skilgreind sem
viðvarandi hugarfar eða hneigð til að bregðast
við reynslu eða aðstæðum á tiltekinn hátt, t.d.
þrautseigja við að leysa verkefni og vanda,
forvitni, örlæti, sköpunarþörf og stjórnsemi.
Ólíkt þekkingar- og færnimarkmiðum er
markmiðum sem lúta að tilhneigingu til náms
ekki náð í eitt skipti fyrir öll. Hér er fremur
um að ræða tilhneigingu eða viðvarandi
hegðunarmynstur sem barn telst eingöngu hafa
náð ef það kemur fram endurtekið. Tilfinningar
eru huglægt tilfinningalegt ástand, sem er
að hluta meðfætt, en að hluta til lært. Sem
dæmi má nefna tilfinninguna fyrir því að
vera viðurkenndur, öruggur og tilheyra hópi,
sjálfsmat og sjálfstraust.
Hugmyndir Tony Bertram og Christine
Pascal um einkenni árangursríks námsmanns
eru í takt við hugmyndir Katz (Bertram og
Pascal, 2002a, 2002b). Þau vara við því að mat
á leikskólastarfi taki eingöngu til þátta sem
auðvelt er að meta og tala um að árangursríkur
námsmaður (effective learner) hafi hæfni til að
skoða umheiminn með opnum og gagnrýnum
huga í þeim tilgangi að bæta við þekkingu
sína og skilning. Þau leggja því áherslu á þrjá
grundvallarþætti: 1) Tilfinningalegt jafnvægi,
2) félagsfærni og sjálfsmynd og 3) tilhneigingu
til náms. Með tilfinningalegu jafnvægi er átt
við hæfni barns til að tjá eigin tilfinningar og
skilja tilfinningar annarra. Barnið hefur innri
styrk og sterkan vilja og er fært um að takast
á við breytingar. Barnið er í góðum tengslum
við sitt nánasta umhverfi og býr yfir jákvæðri
sjálfsmynd. Árangursríkur námsmaður sem
býr yfir félagsfærni og sterkri sjálfsmynd getur
myndað tengsl við önnur börn og fullorðna,
sýnir samhygð, tekur ábyrgð á eigin hugsunum
og verkum og er fær um að taka ákvarðanir og
fylgja þeim eftir. Árangursríkur námsmaður
sem sýnir tilhneigingu til náms hefur innri
áhugahvöt, er sjálfstæður og fær um að
skipuleggja eigin athafnir. Hann er skapandi,
forvitinn og áhugasamur einstaklingur
með seiglu til að takast á við hindranir og
breytingar.
Samkvæmt 2. grein laga um leikskóla er
meginmarkmið með leikskólauppeldi á Íslandi
að veita börnum umönnum og öruggt umhverfi
þar sem þau geta tekið þátt í leik og starfi
í barnahópi undir leiðsögn leikskólakennara.
Leikskólanum ber auk þess að efla alhliða
þroska barna og sjá til þess að þau njóti
bernsku sinnar. Jafnframt þarf hann að stuðla
að umburðarlyndi og víðsýni, efla kristilegt
siðgæði og leggja grunn að því að börnin verði
sjálfstæðir, hugsandi og virkir þátttakendur í
lýðræðisþjóðfélagi. Leikskólanum ber einnig að
rækta tjáningar- og sköpunarmátt barna í þeim
tilgangi að styrkja sjálfsmynd þeirra og getu
til að leysa mál sín á friðsamlegan hátt (Lög
um leikskóla nr. 78/1994). Í aðalnámskrá fyrir
leikskóla er fjallað um hvaða leiðir skuli fara
til að ná þessum markmiðum. Þar kemur fram
að leggja beri áherslu á skapandi starf, leik og
uppgötvunarnám. Rækta skuli alhliða þroska
barnsins og huga að öllum þroskaþáttum og
leitast við að efla heilbrigða lífshætti, lífsviðhorf
og sjálfstraust (Menntamálaráðuneytið, 1999).
Þegar þessi opinberu gögn eru skoðuð kemur í
ljós að markmiðin sem sett eru fram eru nokkuð
almenn og í aðalnámskránni eru leikskólum
gefnar nokkuð frjálsar hendur um hvaða
leiðir þeir fara til að ná markmiðunum. Þegar
grannt er skoðað má þó greina í markmiðunum
svokallaða barnmiðaða hugmyndafræði og
rómantískt viðhorf til barna og leikskólastarfs.
Póst-módern hugmyndir um börn sem öfluga
hugsuði og leikskólann sem opinberan vettvang
þar sem börn og fullorðnir takast saman á
við merkingabær verkefni (sbr. Dahlberg o.fl.,
1999) er ekki ríkjandi í þessum gögnum.
Í þessari rannsókn var leitast við að kanna
viðhorf íslenskra leikskólastjóra til markmiða
leikskólastarfs, hvað þeir telja að börn eigi
að læra í leikskóla og hvernig þeir telja best
að kenna þeim það. Auk þess skyldi kanna
hvaða sýn þeir hafa á börn og barnæsku.
Hvernig tala leikskólastjórar um leikskólann?