Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Síða 60

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2005, Síða 60
60 Tímarit um menntarannsóknir, 2. árgangur 2005 leikskólasamfélagi. Dæmi um þetta eru eftirfarandi ummæli eins leikskólastjórans: Það er svo mikilvægt að æfa þessi samskipti. Læra inn á þetta lýðræði, læra inn á þessar almennu reglur, samskiptareglur, siðareglur, allt þetta óskráða, það læra þau þarna, þau læra þetta ekki í stýrðum stundum. Síður. Námssvið leikskólans Af þeim sex námssviðum leikskólans sem tiltekin eru í Aðalnámskrá leikskóla (Menntamálaráðuneytið, 1999), hreyfingu, málrækt, myndsköpun, tónlist, náttúru og umhverfi, menningu og samfélagi, var í viðtölunum oftast rætt um málrækt og listgrein- ar. Nokkuð margir viðmælendanna ræddu um að í leikskólanum færi fram málörvun og nokkrir nefndu markvissa ritmálsörvun og sýnileika ritmálsins. Einn leikskólastjóranna útskýrði á eftirfarandi hátt hvernig markviss vinna með sögur og ævintýri getur aukið orðaforða barna: Þau kynnist kjarngóðu íslensku máli og geti yfirfært það yfir í daglegt tal. Þegar unnið er mikið með sögur og ævintýri þá er mikið af orðum sem þar kemur og í þessari forvinnu okkar þegar við förum í gegnum ævintýrið þá strikum við undir hvaða orð við höldum að við þurfum að skýra og sem sagt gerum það ... Ég man þegar við vorum með Gilitrutt ... einn strákur sem nennti ekki að klæða sig og sat í fataklefanum og við fórum að gera athugasemd og þá sagði hann „Já ég er duglaus og dáðlaus.“ Auk vinnu með málrækt nefndu allmargir viðmælendur námssviðin tónlist og mynd- sköpun. Það sjónarmið kom fram að ef áhersla er lögð á að börnin fái tækifæri til að tjá sig og koma hugðarefnum sínum fram í gegnum listgreinar öðlist þau styrk og þor til að takast á við ný og framandi verkefni. Algengt var að unnið væri í afmörkuðum vinnustundum með námssviðin. En auk þess lögðu nokkrir viðmælendur áherslu á að vinna með náms- sviðin í öllu daglegu starfi. Einn leikskólastjóri ræddi um tónlist í leikskólastarfinu og lagði áherslu á að auk skipulagðra tónlistartíma væri tónlistin ríkur þáttur í daglegu starfi leikskólans. Hún taldi ekki nægjanlegt að hafa tónlistina á dagskrá í afmörkuðum stundum og sagði: ... ekki er nóg að [hafa] tónlist í tónstund á milli klukkan ellefu og tólf. Heldur verður að horfa á hvað gerist í þessari stund og síðan að vera vakandi fyrir því sem gerist hjá börnunum í öðrum stundum yfir daginn, t.d. útivist, og sjá hvort að það sé einhver tenging á milli þessara stunda og þess sem börnin eru að læra og þróa með sér. Hjá nokkrum viðmælendum kom einnig fram að tiltekið námssvið hafði verið valið sem meginviðfangsefni leikskólans og endurspeglaðist í öllu starfi hans. Einn leik- skólastjórinn útskýrði t.d. að hreyfing væri meginþema leikskólans og að ráðinn hefði verið fagstjóri til að hafa umsjón með þeim þætti. Hún sagði: „Það er íþrótta- og hreyfikennari sem stjórnar því hvernig hreyfistarfið fer fram í leikskólanum allt árið og kennir íþróttir allan daginn og allir [fara] tvisvar sinnum í viku til hans.“ Í aðalnámskrá leikskóla (Menntamála- ráðuneytið, 1999) kemur fram að börn eigi í leikskólanum að kynnast því samfélagi sem þau lifa í og leikskólanum beri að nýta þau menningarlegu og félagslegu tækifæri sem umhverfi hans og staðsetning gefur kost á. Nokkrir viðmælenda nefndu mikilvægi þess að í leikskólanum sé tekið mið af þeim veruleika sem börn lifa í með fjölskyldu sinni og að þau kynnist ýmsum þáttum samfélagsins og fái tækifæri til að sjá að við lifum í stærra samfélagi. Sem dæmi um hvernig leikskólinn tengdist samfélaginu og nærumhverfi barnanna voru nefndar ferðir út fyrir leikskólann, á bókasafn, í kirkju og fleira því tengt. Einn leikskólastjóranna nefndi dæmi um það hvernig vinna barnanna með bækur var sett í víðara samhengi og tengd við samfélagið: Um daginn, þá voru þau að gera bækur. Hvers vegna ... nú er bókaútgáfa á fullu á Íslandi. Af hverju ekki að fara upp í Odda, af hverju ekki að gera eitthvað úr þessu, þar sem við þykjumst vera bókaþjóð. Nokkrir leikskólastjóranna nefndu stærð- Hvernig tala leikskólastjórar um leikskólann?
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.