Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Síða 70
69
jákvæðum og neikvæðum birtingarmyndum. Til dæmis ímynd suðurhafs-
eyja (eins og Tahiti) eða þá frumskógurinn sem „gröf hvíta mannsins“.10
Annað meginviðfangsefni þessarar greinar er því að greina þann bóreal-
isma sem birtist í orðræðu um Ísland og Grænland á tímabilinu. Hvers
eðlis er hann og gilda um hann sömu lögmál og hitabeltishyggjuna?
Heimildirnar sem stuðst er við eru útgefin rit breskra og þýskra höf-
unda, enda var mest skrifað um þessi lönd á þeim tungumálum. Um er að
ræða nokkrar ferðabækur og fræðirit af ýmsum toga, um landafræði og
sögu. Það var þar sem „þekkingin“ um þessi tvö lönd birtist og þar birtust
ímyndirnar líka skýrast.
Villimennska og siðleysi í norðri
Allur almenningur [á Íslandi] veit … lítið um Guð og vilja hans.
Flestir eru hjátrúarfullir og svikulir og hika ekki við að fremja mein-
særi, jafnvel gegn sínum nánustu ef fáein mörk eru í boði. Þeir eru
deilugjarnir og illviljaðir, hefnigjarnir, fláráðir og þrællyndir, óhóf-
samir, lostafullir og saurlífir, svikulir og þjófóttir. Hvaða ódyggða er
ekki að vænta hjá fólki sem dvelst á eyðilegu landi og stundar sjó í
ótakmörkuðu sjálfræði, án aðhalds samviskunnar, eftirlits eða utan-
aðkomandi aga? Fyrir vikið komast þeir upp með að seðja taumlaus-
ar fýsnir sínar án viðurlaga.11
Þannig lýsti Johann Anderson, borgarstjóri í Hamborg, Íslendingum í
riti sínu, Nachrichten von Island, sem kom út skömmu fyrir miðja 18. öld.
Sem sjá má er siðleysið ráðandi, fólkið er samviskulaust og villt og vílar
ekki einu sinni fyrir sér að svíkja sína nánustu. Athugum nú fleiri verk á
tímabilinu 1750–1850 og könnum hvort þessi umfjöllun rími við aðrar
frásagnir síðar á tímabilinu; heimildirnar eru sem fyrr segir aðallega enskar
og þýskar ferðalýsingar og yfirlitsrit.
10 Daniel Clayton og Gavin Bowd, „Geography, Tropicality and Postcolonialism:
Anglophone and Francophone Readings of the Work of Pierre Gourou“, L’Espace
géographique, 35, 3/2006, bls. 208–221, hér bls. 209.
11 Johann Anderson, Frásagnir af Íslandi ásamt óhróðri Göries Peerse og Dithmars Blefkens
um land og þjóð, ritstj. og þýð. Gunnar Þór Bjarnason og Már Jónsson, Reykjavík:
Sögufélag, 2013, bls. 192. – Johann Anderson, Herrn Johann Anderson, I.V.D. und
weyland ersten Bürgermeisters der freyen Keyserlichen Reichsstadt Hamburg, Nachrichten
von Island, Grönland und der Straβe Davis, zum wahren Nutzen der Wissenschaften und
der Handlung, Hamborg: Georg Christian Grund, 1746.
INNAN EÐA UTAN EVRÓPU?