Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Blaðsíða 110
109
Ferð lesandans sem þroskasaga með kvenlegar áherslur
Jane Austen leshringurinn styrkir vináttubönd, leiðir saman elskendur
og hjálpar persónunum að taka nýjar ákvarðanir og þær virðast jafnvel
fyrirgefa það sem gert hefur verið á hlut þeirra. Þannig stuðlar hann að
breytingum á högum þeirra, en eftir fundina eru þær áræðnari í að taka
þau skref sem þær myndu kannski annars ekki hafa tekið.
Elizabeth Long hefur lagt sérstaka áherslu á leshringi kvenna í rann-
sóknum sínum. Hún segir að konur þurfi að skipuleggja sig vel til þess að
eiga tíma fyrir sjálfar sig. Þótt þær hafi minni frítíma en karlar sæki þær
frekar í samræður um lífsgildin. Leshringir þjóni því mikilvægu hlutverki
fyrir nútímakonuna í uppbyggingu á persónulegri og félagslegri sjálfsmynd
hennar.70 Að mati Long vekja bókaklúbbar kvenna djúpstæða samkennd-
artilfinningu með þeim, þær verða hluti af samfélagi kvenna og öðlast
með því annað sjálfsmat og tilfinningu fyrir samstöðu. Á sama tíma móta
þær með sér gagnrýni á óbreytt ástand. Þessir klúbbar gefa konunum því
ekki aðeins tækifæri á því að þróa með sér kunnáttu í bókmenntum heldur
bindast þær sterkum böndum og fá tilfinningu fyrir systralagi, krafti og
möguleikum kvenna.71
Um margt minnir greining Long á leshringjum kvenna á umfjöllun
Ruth E. Ray og Susan H. McFadden um þroskasögur með kvenlegar
áherslur. Þær skilja sig frá þroskasögum karla sem lýsa línulegu þróunar-
ferli. Kvenlegu sögurnar eru brotakenndari en karllægu sögurnar og fjalla
fremur um samskipti og samstöðu en aðskilnað og hið einstaklingsbundna.
Í þessum skilningi heldur hópurinn í Jane Austen leshringnum í ferð sem
um margt er sambærileg við vef- eða bútasaumsmyndlíkingu þá er Ruth E.
Ray og Susan H. McFadden boða í grein sinni „The Web and the Quilt:
Alternatives to the Heroic Journey Towards Spiritual Development“.72
Eins og titillinn ber með sér kjósa þær að nota annars konar myndlík-
ingar til að fanga með sem skýrustum hætti þroskasögu kvenna. Að þeirra
mati eru vefur og bútasaumur mun hentugri lýsingar á spuna- og brota-
kenndri upplifun kvenna, en sú einangrandi einstaklingshyggja sem hand-
70 Elizabeth Long, Book Clubs: Women and the Uses of Reading in Everyday Life, bls.
64.
71 Sama heimild, bls. 47.
72 Ruth E. Ray og Susan H. McFadden, „The Web and the Quilt: Alternatives to
the Heroic Journey Towards Spiritual Development“, Journal of Adult Development
4/2001, bls. 201–211, bls. 202.
VISKA JANE AUSTEN OG FERÐ LESANDANS