Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Blaðsíða 92
91
órómantísk í augum Fannyar, því hún leggur áherslu á mikilvægi peninga
og samfélagsstöðu þegar hugað sé að hjónabandi: „Besta uppskriftin að
hamingjunni sem ég veit um eru miklar tekjur,“ segir hin íróníska Austen.3
Myndin varpar fram þeirri spurningu hvort vegi þyngra peningar eða ást.
En að öllu þessu sögðu lýkur Austen bréfinu til frænku sinnar með því
að leggja áherslu á að Fanny verði að vera hrifin af honum: „Allt er ákjósan-
legra og bærilegra en að giftast án tilfinninga.“4 Það er þetta sjónarmið sem
verður ofan á í sjónvarpsmyndinni Miss Austen Regrets. Tilfinningaveran
Austen skyggir á þá hlið skáldkonunnar sem kýs að láta skynsemina ráða,
því að lýsingum hennar á kostum Plumptres er nokkurn veginn alveg ýtt
til hliðar í handritinu. Hún segir: „Ekkert jafnast á við þá kvöl að vera
bundinn öðrum án ástar. Bundin einum en kjósa fremur annan.“5 Fanny
giftist ekki herra Plumptre og þremur árum eftir dauða Austen gekk hún í
hjónaband með Edward Knatchbull sem átti fyrir sex börn og saman bættu
þau við níu til viðbótar.6
Sjá má að Fanny leitar til frænku sinnar sem ráðgjafa í málefnum ástar-
innar líkt og nútímakonan gerir sem les bækur hennar en algengt er að
skáldsögur Austen séu lesnar líkt og um sjálfshjálparbækur sé að ræða.
Lesandinn leitar að svörum varðandi ástamál sín og virðist öðlast betri
sjálfsþekkingu og lífsfyllingu með lestrinum. Kvenhetjur Austen hafa með
tímanum orðið mikilvægar fyrirmyndir en þær eiga það sameiginlegt að
hafa valið rétta manninn og hafnað þeim ranga eða spillta. Sögur Jane
Austen eru sífellt meira lesnar sem dæmisögur um hvernig karlmenn konur
eigi að forðast og hvað einkenni góða karla. Á undanförnum árum hefur
komið út fjöldi rita sem fjalla um tilhugalíf og almenna mannasiði í samtíð
og fortíð, þar sem Austen leiðir lesandann í öll sannindi um vandann sem
tengist því að leita ástarinnar og lifa í siðuðu samfélagi.7
3 Miss Austen Regrets: „The best recipe I know for happiness is a large income.“
4 Jane Austen, „To Fanny Knight“, 18.–20. nóvember 1814, bls. 280.
5 Miss Austen Regrets: „Nothing compares with the misery of being bound without
love. Bound to one and preferring another.“
6 Deirdre Le Faye, Jane Austen. A Family Record, Cambridge: Cambridge University
Press, 2004 [1989], bls. 265.
7 Hér má nefna bækur Henriettu Webb, Jane Austen’s Guide to Good Manners.
Compliments, Charades and Horrible Blunders (London: Bloomsbury Publishing,
2006); Rebecca Smith, Jane Austen’s Guide to Modern Life’s Dilemmas (Lewes, East
Sussex: Ivy Press, 2012); Margaret C. Sullivan, The Jane Austen Handbook. Proper
Life Skills from Regency England (Philadelphia, PA: Quirk Books, 2007); og Sinead
Murphy, The Jane Austen Rules: A Classic Guide to Modern Love (London: Melville
House, 2014).
VISKA JANE AUSTEN OG FERÐ LESANDANS