Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 155
154
verði Birtingur sá vettvangur, segir í ávarpinu, „og munum við engan veg-
inn einskorða það við nokkur þröng sjónarmið sem troðið verði upp á les-
endur, enda erum við æði sundurleitur hópur á margan hátt“ – eins og átti
sannarlega eftir að sýna sig (1). Í þriðja lagi vilji ritið „greiða fyrir erlendum
menningarstraumum hingað sem hafa merkust ítök í samtíma okkar svo að
lesendur geti sjálfir tekið afstöðu en þurfi ekki að hafa rætið umtal óvandaðra
atvinnusnakka“ (1–2). Af ávarpinu að dæma var Birtingi yngri ætlað að vera
opinn vettvangur fyrir ólíkar skoðanir og kynningu á listum og menningu.
Var það raunar meginhlutverk tímaritsins að sannfæra almenning um hin
nýju viðhorf til lista.
Í ávarpinu er einnig kallað eftir því að almenningur styðji starfsemina. Slík
áköll til áskrifenda áttu eftir að verða þrástef í ritstjórnargreinum tímarits-
ins.24 Fyrstu árin er kallað eftir skilningi og áhuga almennings á því menn-
ingarstarfi sem unnið er í Birtingi og fussað yfir léttmetinu í tímaritunum sem
mestra vinsælda njóta.25 Þannig notuðu Birtingsmenn afþreyingartímaritin
sem viðspyrnu í andróðrinum gegn yfirgangi markaðs drifinnar menningar-
starfsemi – Birtingi var, líkt og erlendum módernískum tímaritum, beinlín-
is stillt upp í andstöðu við hana. Seinna snúast athugasemdirnar þó oftast
um rukkun áskriftargjalda. Markmið Birtingsmanna var frá upphafi að bæta
almennt menningarástand í landinu með því að bjóða upp á hámenningarlegt
bókmenntatímarit en þeim var jafnframt ljóst að ekki myndi takast að halda rit-
inu gangandi nema með þátttöku tiltölulega stórs hóps kaupenda. Í öðru heft-
inu segir Einar Bragi að ritið verði að „fá minnst þúsund skilvísa áskrifendur
til viðbótar“ (2/1953, 4).26 Og til að leggja áherslu á mikilvægi þess að almenn-
ingur taki þátt í þessu ævintýri er tekið svo til orða í ritstjórnargrein 1.–2. heftis
1957 að Birtingur sé „í raun eign áskrifendanna, því að tilvera hans byggist á að
þeir séu fúsir að greiða hann því verði sem útgáfan kostar“ (53).
Í Birtingi eru efnistök yfirleitt almenn, hann var ekki sérfræðilegt tímarit
eins og til að mynda Skírnir.27 Ritinu er eigi að síður ætlað að kynna fólki
24 Stefið hafði lengi heyrst í íslenskum tímaritum, til dæmis bæði í Fjölni og Verð-
andi.
25 Hér er vert að minna á að módernísk verk voru einnig birt í afþreyingartímaritum
og öðrum stórum tímaritum.
26 Engar upplýsingar er að finna í bókhaldsgögnum Birtings um kaupendafjölda árið
1953. Fyrstu kaupendatölur eru dagsettar 1. janúar 1955 en þá eru þeir 206. Sjá
bls. 207 NF, Birtingur, Skjalasafn. Allar upplýsingar um rekstur og upplagstölur
Birtings eru sóttar í þetta skjalasafn.
27 Í fræðilegum tímaritum voru og eru meðal annars gerðar strangari kröfur til heim-
ildarýni og frágangs heimildatilvísana.
ÞRÖSTUR HELGASON