Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Side 98
97
sem bókmenntagrein mótað af hugmyndinni um ábyrgð einstaklingsins á
eigin lífi og gengur gjarnan þvert á félagslegar lausnir.
Long telur að með því að skoða lestur sem athöfn í einveru gleymist að
taka tillit til félagslegs hlutverks hans og sameinandi áhrifa. Lestur hafi í
grundvallaratriðum samfélagslegt gildi. Bandarísk rannsókn frá miðri tutt-
ugustu öld um lestur fullorðinna sýni að einvera dragi úr lestri, en það ýti
undir frekari lestur að deila reynslu sinni með öðrum. Lestur byggi fyrst
og fremst á félagslegum grunni.25 Hefðbundnar hugmyndir um einangr-
aða lesendur falla einnig illa að þeirri sterku tilhneigingu í Austen-tengdri
menningu að þeir hópist saman á vefsíðum og spjallrásum, í leshringjum,
klúbbum og á áhugamannaráðstefnum helguðum skáldkonunni. Lesturinn
á verkum skáldkonunnar er augljóslega félagsleg athöfn sem sameinar hóp
fólks með svipuð áhugamál. Skilningurinn er augljóslega sá að Jane Austen
verði ekki notið til fulls í einrúmi og það sé eitt af því sem einkenni höf-
undarvirkni hennar umfram flesta aðra sígilda höfunda.
Þessi samkenndarþörf sést hvað skýrast í þeirri ríku tilhneigingu að
birta spurningalista í lok bóka sem snúast um Austen-tengda menningu
fyrir þá leshringi sem hugsanlega hafa áhuga á að taka viðkomandi verk
til umræðu. Forlagið Touchstone, sem gefur út bækur Elizabeth Aston
og Pamelu Aidan, en báðar hafa sérhæft sig í framhaldsseríum byggðum
á verkum Austen, auglýsir á sumum kápum sínum að „leiðbeiningarvísir
fyrir leshringi“ fylgi með. Það gera einnig Guideposts, bókaforlag Beth
Pattillo og útgáfufyrirtæki Marilyn Brant og Paula Marantz Cohen,26 og
ýmiss konar viðbótarefni er sagt fylgja með á kápu The Lost Memoirs of Jane
Austen, skáldaðra endurminninga Austen, skrásettum af Syrie James.27 En
bækurnar eru miklu fleiri og árétta þá hugmynd að Jane Austen sé höfund-
25 Sama heimild, bls. 10.
26 Bækur Elizabeth Aston eru t.d. merktar þannig. Sjá Elizabeth Aston, Writing Jane
Austen, New york og London: A Touchstone Book, 2010; Elizabeth Aston, Mr.
Darcy’s Daughter, New york og London: A Touchstone Book, 2003. Af bókum
Pamelu Aidan með spurningum fyrir leshringi má nefna Duty and Desire. A Novel
of Fitzwilliam Darcy, Gentleman, New york og London: A Touchstone Book, 2004
[2006]; og These Three Remain. A Novel of Fitzwilliam Darcy, Gentleman, New york
og London: A Touchstone Book, 2007 [2005]. Sjá einnig Beth Pattillo, Jane Austen
Ruined my Life, New york: Guideposts, 2009; Beth Pattillo, Mr. Darcy Broke my
Heart, New york: Guideposts, 2011; Marilyn Brant, According to Jane, New york:
Kensington Books, 2009; og Paula Marantz Cohen, Jane Austen in Boca, New york:
St. Martin’s Griffin, 2002.
27 Syrie James, The Lost Memoirs of Jane Austen, New york: Avon, 2008.
VISKA JANE AUSTEN OG FERÐ LESANDANS