Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 107
106
Áhugavert er að skoða Jane Austen leshringinn með hliðsjón af slíkum
vitnisburði. Segja má að lesandinn sé einn úr hópnum og hann fær að heyra
sögu hvers einstaklings þar sem sagt er frá atvikum sem mótuðu hann sem
manneskju. Hver persóna fær sinn kafla og oft er fortíðinni lýst, sambandi
við foreldra og systkini, sagt er frá ástarsamböndum, hjónaböndum, kyn-
ferðislegri misnotkun, trúnaðarbresti og svikum. Sögurnar eru síðan að
einhverju leyti settar í samhengi við þá sögu eftir Austen sem verið er að
lesa. Jane Austen leshringurinn varpar ljósi á það hvernig persónurnar sam-
sama sig sögupersónum Austen á mismunandi hátt, allt eftir reynslu og
persónulegum bakgrunni. Sagan hefst á orðunum „Við eigum öll okkar
eigin Austen“.55 Lífshlaup persónanna fléttast saman við sagnaheim skáld-
konunnar, en öll hafa þau ólíkar væntingar til bókanna. Lesandinn er sá
sem sér tengslin milli kvenhetja Austen og persóna bókarinnar.
Í Jane Austen leshringnum má glögglega sjá hvernig sjálfsmynd hverrar
persónu verður skýrari með hliðsjón af sögunni sem verið er að lesa. Það
er ekki tilviljun að Jocelyn velur Emmu sem fyrstu söguna og að þau hittast
heima hjá henni til að ræða hana. Jocelyn er líkt og Emma í hlutverki hjú-
skaparmiðlara þar sem hún reynir að para saman Grigg, eina karlmanninn
í hópnum, og bestu vinkonu sína Sylvíu, en þetta er meginástæðan fyrir
því að hún býður Grigg að vera með. Þá hafði hún ítrekað reynt að kynna
Allegru dóttur Sylvíu fyrir frambærilegum karlmönnum þó að Allegra
hefði aldrei falið að hún væri samkynhneigð. Að lokum skiptir Jocelyn þó
yfir í frambærilegar ungar konur.56 Jocelyn hefur auk þess lítinn áhuga á
hjónabandi líkt og Emma og hefur aldrei gifst. Hún er orkumikil og hefur
nóg að gera við að sinna áhugamálum sínum, eins og hundunum.
Leshringurinn hittist næst hjá Allegru, dóttur Sylvíu, þar sem þau
lesa Sense and Sensibility. Allegra minnir um margt á Marianne þar sem í
henni takast á miklar geðshræringar: „Allegra var öfgakennd manneskja,
annaðhvort pakksödd eða glorsoltin, að frjósa úr kulda eða að stikna úr
hita, úrvinda eða full af orku. […] Allegra var frómt frá sagt mikil tilfinn-
ingavera. Það var einn af hennar miklu kostum: Hún grét með þeim sem
grétu.“57 Auk þess lifir Allegra hratt, „Adrenalín var hennar fíkniefni“.58
Hún kynnist stóru ástinni sinni, Corinne, þegar hún fer í fallhlífastökk
og handleggsbrotnar. Corinne fylgir henni á spítalann: „Næst þegar hún
55 Karen Joy Fowler, Jane Austen leshringurinn, bls. 9.
56 Sama heimild, bls. 11.
57 Sama heimild, bls. 44.
58 Sama heimild, bls. 51.
ALDA BJÖRK VALDIMARSDÓTTIR