Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 167

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2015, Page 167
166 Hið áhrifamikla konkretljóðskáld Eugen Gomringer var ásamt Dieter og vini hans, listamanninum Marcel Wyss, aðalhvatamaður Spirale. Sjálfur fór Roth að gera tilraunir með konkretljóð árið 1953. Í þeim vinnur hann meðal annars með endurtekningar orða og seinna með grunneiningar prentlistarinnar: kommur, punkta og einkum þanka- strik.54 Árið 1954 tekur hann svo að gera bókverk sem áttu eftir að verða meginviðfangsefni listar hans.55 Í þeim leikur hann sér meðal annars með ýmiss konar geómetrísk form prentuð á síður bókanna, oft endurtek- in síðu eftir síðu eða látin mynda samhverfu,56 eins og hann lætur til dæmis bókstafina a og e gera í öðrum bókum.57 Líta má á öll þessi verk sem eina heild. Í það minnsta er augljóslega formlegt og þematískt samhengi á milli þeirra, hvort sem unnið er með stafi, grunneiningar prent list arinnar eða geómetrísk form. Allt eru þetta konkretljóð í einhverjum skilningi og sjálf- ur kallaði Dieter þessi verk ljóðabækur.58 Müller, 1990, bls. 32–33 og um áhrif konkretmálaranna á Dieter, bls. 53. Í þessu riti Bucher er fjallað ítarlega um samhengið sem Spirale starfaði í, svo sem sögu kon- kretsins, nýju grafíkina og önnur tímarit (bls. 9–45). Í ritinu eru einnig myndir af síðum úr tímaritinu og þar má sjá hönnun Dieters (til dæmis bls. 69–73, 77–81 og 83–87). Fagtímarit um grafíska hönnun komu út víðar en í Sviss á fimmta og sjötta áratugnum en róttækast þeirra var sennilega bandaríska ritið Portfolio (1949–1951). Sjá Steven Heller, Merz to Emigre and Beyond: Avant-Garde Magazine Design of the Twentieth Cent- ury, London: Phaidon Press Limited, 2003, bls. 134–139. 54 Sjá Aðalstein Ingólfsson, „ORÐ, MyND: UARÐ, MUND: VOARÐ, MOAND“, bls. 23-24. Sjá ítarlegri umfjöllun um konkretljóðlist Roths og alþjóðlegar rætur þessarar bókmenntagreinar í áðurnefndri grein Benedikts Hjartarsonar, „Draum- urinn um hinn ómyndhverfa mann“, bls. 74–104. 55 Sjá Dirk Dobke og Bernadette Walter, Roth Time. A Dieter Roth Retrospective, bls. 48–49. 56 Dánarbú Dieters Roth, til dæmis Dieter Roth, Bok 4a, 1958 [áritað]. Gormabundið, 40 x 28 sm. 57 Sjá Stefan Ripplinger, „Shit, Pudding and all the Trappings – On Dieter Roth’s Books“, Dieter Roth, Books + Multiples. Catalogue Raisonné, umsjón Dirk Dopke, London: Edition Hansjörg Mayer, 2004, bls. 127–145, hér bls. 127. 58 Mh. Sbr. samtal við Björn Roth 13. febrúar 2013. Aðalsteinn Ingólfsson bendir á að sam- kvæmt eðli konkret ljóðlistar sé „erfitt að gera skarpan greinarmun á þessum tveimur gerðum bókverka, – á sjóngildi geómetrískra forma annars vegar og sjóngildi stafa og orða hins vegar“. Sjá Aðalstein Ingólfsson, „Bók um bók frá bók ….“, bls. 59. Stefan Ripplinger kallar konkretljóð þar sem grunneiningar prentsins eru notaðar „sjónræn ljóð“ í áðurnefndri grein sinni. Þau segir hann ekki vera „saklausa leiki, ekki „miðla á milli ljóðs og málverks“ sem notaðir eru til skrauts og svo mörg konkretljóðskáld reyndu að búa til í konkretblandaranum sínum, heldur tæki til að skapa innbyrðis afstöðu og skynræna heild á síðum verksins“. Sjá Stefan Ripplinger, „Shit, Pudding and all the Trappings – On Dieter Roth’s Books“, bls. 127. Á frummálinu: „Visual poetry, but not ÞRÖSTUR HELGASON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.