Peningamál - 01.11.2000, Síða 24

Peningamál - 01.11.2000, Síða 24
hvort gengi krónunnar helst tiltölulega stöðugt þann- ig að lækkun þess eyði ekki ávinningnum af lægri erlendum vöxtum. Því getur farið svo að mikið traust á stöðugleika gjaldmiðilsins verði til þess að draga úr aðhaldsáhrifum hærri vaxta. Því má líta á auknar sveiflur og lækkun gengis krónunnar með tvennum hætti. Annars vegar fela meiri sveiflur í sér að gengi krónunnar kann að vera ótraustara en margir töldu áður og erlendar lántökur því ekki jafnhagstæðar. Meiri sveiflur eru mögulegar eftir að vikmörk gengisstefnunnar voru víkkuð í ±9% í febrúar. Hins vegar léttir gengislækkunin nokkuð á aðhaldi að fyrirtækjum sem stunda útflutning eða eru í sam- keppni við innflutning. Skammtímavaxtamunur við útlönd hefur verð mjög mikill eða nálægt 6% allt þetta ár. Síðustu mánuði, áður en Seðlabankinn hækkaði vexti um 0,8% í byrjun nóvember, minnkaði munurinn vegna hækkunar erlendra vaxta en er eftir vaxtahækkunina meiri en áður á þessu ári. Til viðbót- ar háum vaxtamun kemur svo að vextir hafa hækkað erlendis og vísbendingar eru um að álög sem inn- lendir lánþegar sæta á erlendum endurlánum hafi hækkað að undanförnu. Aðhaldið hefur því aukist verulega á þennan mælikvarða. Aðhald peningastefnunnar skilar sér ekki að fullu til fyrirtækja og heimilanna nema hærri skammtíma- vextir stuðli að hækkun vaxta sem heimili og fyrir- tæki þurfa að greiða af fjárfestingar- og neyslulánum. Að stórum hluta er um verðtryggð langtímalán að ræða. Ráðandi staða verðtryggðra langtímalána á íslenskum lánamarkaði dregur að öllum líkindum verulega úr virkni peningastefnunnar, eins og glögg- lega hefur komið í ljós á liðnum árum. Allt til ársloka 1998 fóru vextir verðtryggðra langtímaskuldabréfa lækkandi, þótt skammtímavextir hækkuðu. Vextir verðtryggðra útlána bankanna lækkuðu einnig, en minna, og urðu lægstir í mars á sl. ári. Það er því ljóst að lækkun verðtryggðra vaxta vann gegn auknu að- haldi á skammtímamarkaði lengi vel. Á þessu ári hafa verðtryggðir langtímavextir hins vegar hækkað ört og t.d. hafa húsbréfavextir frá því í vor verið u.þ.b. 1½% hærri en þeir voru um áramótin 1998/1999. Hækkun langtímavaxta styður því við aðhaldssama peningastefnu, en vegna þess hve hækkunin kom seint er líklegt að áhrifa eigi eftir að gæta enn meira á næstunni. Áhrifin eru hins vegar að hluta komin fram á húsnæðismarkaði, eins og greint hefur verið frá. Á heildina litið virðist óhætt að fullyrða að þrátt fyrir lækkun á gengi krónunnar hafi aðhald peninga- stefnunnar aukist umtalsvert að undanförnu. Aðhald- ið sem kemur í gegnum áhrif vaxta á innlenda eftir- spurn er líklega meira nú en í langan tíma þar sem á eitt leggjast hærri innlendir skammtímavextir, hækk- un innlendra langtímavaxta, hækkun erlendra vaxta og hærri vaxtaálög. Það tekur hins vegar tíma fyrir þessi áhrif að skila sér að fullu. PENINGAMÁL 2000/4 23 J M M J S N J M M J S N J M M J S N J M M J S N 1997 1998 1999 2000 2,0 2,5 3,0 3,5 4,0 4,5 5,0 5,5 6,0 6,5 % 0,0 0,4 0,8 1,2 1,6 2,0 2,4 2,8 -0,4 -0,8 % Verðbólguálag, munur óverðtryggðra langtíma- og skammtímavaxta og skammtímaraunvextir 1997-2000 Mynd 8 Verðbólguálag (vinstri ás) (vinstri ás) Skammtímaraunvextir Halli ávöxtunarferils (munur vaxta 5 ára ríkisbréfa og 3 mán. ríkisvíxla (h. ás) J M M J S N J M M J S N J M M J S N J M M J S N 1997 1998 1999 2000 3,0 4,0 5,0 6,0 7,0 8,0 9,0 10,0 % Ávöxtun langtímaskuldabréfa á VÞÍ og verðtryggðir bankavextir 1997-2000 Mynd 9 Spariskírteini (nú um 15 ár) Húsbréf Verðtryggðir bankavextir
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.