Peningamál - 01.11.2000, Síða 26
PENINGAMÁL 2000/4 25
markaði voru styrking krónunnar og fór gengisvísita-
lan í 117,1 í lok dags 1. nóvember en það er 1,85%
undir miðgengi (þ.e. í veikari hluta vikmarkanna).
Þróun gengisvísitölu frá júlíbyrjun má sjá á mynd 1
hér á síðunni.
Þann 20. október tóku gildi nýjar reglur um gjald-
eyrismarkað og er sagt frá helstu breytingum í
rammagrein hér á síðunni.
…vegna breyttra forsendna og væntinga
Nokkrar breytingar á efnahagsumhverfinu að undan-
förnu hafa leitt til veikingar krónunnar. Aflaheimildir
voru skertar á fiskveiðiárinu sem hófst 1. september
sl., verðbólga er enn meiri hér á landi en í helstu við-
skiptalöndum, viðskiptahalli er verulegur og við
blasa erfiðir kjarasamningar, bæði við opinbera
starfsmenn og sjómenn. Jafnvægisgengi krónunnar
lækkaði því í upphafi sumars og mat markaðsaðila á
efnahagsumhverfinu varð svartsýnna. Þetta skapaði
síðan þrýsting á markaðsgengið. Fram undir mitt ár
nýttu fjárfestar sér mikinn vaxtamun á milli Íslands
og annarra landa og stöðugleika krónunnar til að
hagnast. Þegar krónan tók að veikjast ásamt því að
viðskiptahalli hélt áfram að vaxa, streymdi fjármagn
til kaupa á erlendum verðbréfum áfram úr landi.
Verðbólgan reyndist einnig þrálátari en búist hafði
verið við og dró því úr áhuga fjárfesta á að nýta sér
vaxtamuninn. Þar að auki hefur heldur dregið saman
með vöxtum hér og erlendis undanfarna mánuði
vegna hækkunar vaxta erlendis. Mikið útstreymi fjár-
magns og minna innstreymi hafa því lagst á eitt við
að veikja krónuna.
Vísitala gengisskráningar frá byrjun
júlí 2000
Júlí Ágúst September Október
111
112
113
114
115
116
117
118
119
31.12.1991=100
Vísitala Miðgengi
Mynd 1
Í kjölfar skarpar lækkunar á gengi krónunnar snemma
morguns 13. júlí 2000 gripu viðskiptavakar á gjaldeyris-
markaði til þess ráðs að loka fyrir viðskipti á gjaldeyris-
markaði í samræmi við 10. gr. reglna markaðarins. Sam-
kvæmt greininni gat meirihluti viðskiptavaka tekið
ákvörðun um tímabundna stöðvun viðskipta án samráðs
við Seðlabankann. Þessi aðgerð vakti nokkrar deilur og
var talin ástæða til að endurskoða reglur markaðarins.
Endurskoðun reglnanna hefur nú farið fram og gaf
Seðlabankinn út nýjar reglur um gjaldeyrismarkaðinn og
tóku þær gildi 20. október sl. Nýju reglurnar leysa af
hólmi reglur sem settar voru 8. desember 1999. Í nýju
reglunum felast tvær meginbreytingar:
1. Fellt er niður ákvæði sem heimilaði aðilum á gjald-
eyrismarkaði að koma sér saman um tímabundna
stöðvun viðskipta við sérstakar aðstæður.
2. Lágmarksfjárhæð, sem viðskiptavakar þurfa að gefa
bindandi tilboð í, er hækkuð úr 1 milljón í 1½ milljón
Bandaríkjadala.
Markmiðið með þessari breytingu er að auka virkni og
dýpt markaðarins.
Samhliða breytingu á reglunum gerðu viðskiptavakar
á gjaldeyrismarkaði með sér samkomulag um gengisbil,
sbr. 9. gr. reglnanna. Samkomulagið kveður svo á, að
heimilt sé að auka gengisbil tilboða við tiltekin skilyrði.
1. Hámarksgengisbil í tilboðum skal vera 7 aurar. Við-
skiptavakar skulu eigi að síður miða við að gengisbil
verði að jafnaði 5 aurar nema aðstæður á markaðnum
séu óvenjulegar.
2. Breytist gengisvísitala íslensku krónunnar meira en
1,25% frá opnunargildi dagsins, skal hámarksgengis-
bil hækkað í 10 aura til loka dags.
3. Verði meiri breyting á gengisvísitölu íslensku krón-
unnar en sem nemur 2% frá opnunargildi dagsins,
skal hámarksgengisbil hækka í 20 aura til loka dags.
4. Fyrsta grein samkomulags þessa skal endurskoðuð að
mánuði liðnum frá undirskrift samkomulags þessa.
Reynist gengisbil í tilboðum viðskiptavaka almennt
hafa hækkað í hámark það sem tilgreint er í 1. lið skal
hámarksgengisbilið lækkað í 6 aura og gildir það uns
annað verður ákveðið af viðskiptavökum.
Breyttar reglur um gjaldeyrismarkað