Peningamál - 01.11.2000, Síða 29

Peningamál - 01.11.2000, Síða 29
28 PENINGAMÁL 2000/4 Áhugi fjárfesta á skuldabréfamarkaðnum Það hefur verið talsvert til umræðu að stórir fjárfest- ar, einkum lífeyrissjóðir, hafi dregið úr umsvifum sínum á skuldabréfamarkaði og snúið sér að erlend- um hlutabréfum. Nýir fjárfestar hafa þó komið inn á markaðinn. Enn sem komið er hafa þeir þó ekki fyllt í skarð lífeyrissjóðanna. Skuldabréfamarkaðurinn er enn í skugganum af hlutabréfamarkaðnum og svo virðist sem fjárfestar meti það enn sem svo að meiri hagnaðarvon sé í hlutabréfum. Þetta gerist þó á sama tíma og tiltölulega slæm milliuppgjör hafa birst bæði hérlendis og erlendis en það sem af er ári hafa bæði Nasdaq- og Dow-Jones-vísitölurnar í Bandaríkjunum lækkað nokkuð. Hlutabréfaverð hér á landi hefur einnig lækkað um u.þ.b. 12% frá áramótum. Þessi þróun gæti leitt til þess að íslenskir lífeyrissjóðir leituðu aftur inn á innlendan skuldabréfamarkað. Hins ber þó að geta að ein af ástæðum þess að aukin fjárfesting átti sér stað í erlendum verðbréfum var hugsanlega sú að skuldabréf hafi vegið þyngra í eignasafni lífeyrissjóðanna en eðlilegt gat talist. Viðskipti með skuldabréf hafa aukist Viðskipti á skuldabréfamarkaði það sem af er ári hafa verið mikil. Á mynd 6 sést að viðskipti með spariskír- teini, ríkisbréf og húsnæðisbréf eru þegar orðin meiri í ár en þau voru á sama tímabili á síðasta ári. Heildarviðskipti með skuldabréf árið 1998 voru 145 ma.kr., árið 1999 voru þau 114 ma.kr. og það sem af er þessu ári hafa viðskipti numið 103 ma.kr. Það sem af er ári hafa mestu viðskiptin verið með húsbréf (48%), húsnæðisbréf (20%), spariskírteini (20%) og síðan ríkisbréf (12%). Örva efnahagshorfur áhuga á skuldabréfamarkaði? Ástandið í efnahagslífinu gæti ýtt undir áhuga á skuldabréfamarkaðnum að nýju. Margt bendir til þess að toppnum í hagsveiflunni hafi verið náð og sagan sýnir að þá eykst eftirspurn eftir skuldabréfum. Í nýútkominni þjóðhagsáætlun er gert ráð fyrir 1,6% hagvexti á næsta ári sem er umtalsvert minna en undanfarin ár. Í niðursveiflu hafa hlutabréf tilhneig- ingu til að lækka og þar af leiðandi ættu skuldabréf að verða hagstæðari fjárfestingarkostur. Í fjárlaga- frumvarpinu er gert ráð fyrir miklum rekstrarafgangi á ríkissjóði og ætti það að leiða til vaxtalækkunar á skuldabréfum, sér í lagi ef spár um hagvöxt á næsta ári ganga eftir. Ekki hefur enn örlað á þessu og helsta ástæðan sú að Íbúðalánasjóður áætlar að auka útgáfu hús- og húsnæðisbréfa á næsta ári. Fjárfesting erlendra aðila Fróðlegt verður að sjá hvaða áhrif NOREX-samstarf- ið hefur á verðbréfamarkað hérlendis en það hófst 30. október sl. Sennilegt er að töluverð breyting eigi sér stað ekki síst vegna nýs sameiginlegs viðskipta- kerfis, Saxess. Í þessu nýja kerfi er breyting á fram- setningu tilboða sem sennilegt er að styrki verð- myndun á markaðnum og dýpki hann. Búast má við áhuga erlendra fjárfesta á íslenskum skuldabréfum vegna hárrar ávöxtunar og rafrænnar skráningar. Gengisáhætta vegur þó á móti þessum áhuga. Hlutabréfamarkaður á undanhaldi Vísitölur hlutabréfamarkaðarins hér á landi hafa sig- ið á undanförnum vikum. Nokkurt jafnvægi var í verði á hlutabréfamarkaði hérlendis frá apríl og fram í ágúst en eftir að hálfsársuppgjör hlutafélaganna tóku að birtast fór verð lækkandi og hefur lækkað jafnt og þétt síðan. Lækkun hlutabréfavísitölunnar (ICEX-15) frá ágústlokum til októberloka nam um 8%. Hálfsársuppgjör hlutafélaga sem skráð eru á Verðbréfaþingi Íslands sýndu í flestum tilvikum heldur verri útkomu en spár markaðsaðila höfðu gert ráð fyrir. Viðskipti hafa einnig dregist saman um 20% ef mánuðirnir ágúst til október í ár eru bornir saman við sömu mánuði í fyrra. Viðskipti með skuldabréf árin 1998, 1999 og það sem af er 2000 Spariskírteini Ríkisbréf Húsbréf Húsnæðisbréf 0 10 20 30 40 50 60 70 80 1998 1999 1.jan. - 27.okt. árið 2000 Mynd 6
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.