Peningamál - 01.11.2000, Blaðsíða 78
PENINGAMÁL 2000/4 77
verðlag á fyrsta ársfjórðungi myndi hækka um 0,9%
eða 3,7% á ársgrundvelli.
Febrúar 2000
Hinn 1. febrúar tóku gildi nýjar reglur á millibanka-
markaði með krónur. Helstu breytingar eru þær að
framvegis skuldbinda markaðsaðilar sig til þess að
gera tilboð í tilteknum fjárhæðum með lánstíma til 9
og 12 mánaða. Seðlabanki Íslands mun reikna út og
birta REIBOR og REIBID til 9 og 12 mánaða.
Hinn 1. febrúar tóku gildi nýjar reglur um viðskipti
Seðlabanka Íslands við bindiskyldar lánastofnanir.
Meginbreytingar voru að gildandi ákvæði um leið-
réttingar á færslumistökum voru felld inn í reglurnar
og að tilkynningar um uppboð endurhverfra við-
skipta verða birtar vikulega á mánudagsmorgni í stað
föstudagskvölds. Þá bættist við nýr skuldabréfa-
flokkur SLST023/2 sem er hæfur í viðskiptum við
Seðlabankann.
Hinn 3. febrúar veitti alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch
IBCA íslenska ríkinu lánshæfismatið AA- fyrir lang-
tímaskuldbindingar í erlendri mynt, fyrir skamm-
tímaskuldbindingar í erlendri mynt F1+ og fyrir
skuldbindingar í innlendri mynt fékk ríkið AAA sem
eru hæstu einkunnir sem fyrirtækið gefur.
Hinn 11. febrúar tilkynnti Seðlabanki Íslands hækk-
un vaxta sinna um 0,3 prósentustig og um víkkun
vikmarka gengisstefnunnar úr ±6% í ±9%.
Mars 2000
Hinn 21. mars tóku gildi nýjar reglur um viðskipti á
millibankamarkaði í íslenskum krónum. Meginbreyt-
ingin á reglunum er sú að sett hefur verið hámarks
vaxtabil milli inn- og útlána í tilboðum þátttakenda
til eins mánaðar og lengri tíma. Hámarkið er 25
punktar. Ekkert hámarksvaxtabil er skilgreint fyrir
viðskipti til skemmri tíma.
Hinn 30. mars veitti viðskiptaráðherra FBA starfs-
leyfi sem viðskiptabanka skv. 4. gr. laga nr. 113/1996
um viðskiptabanka og sparisjóði.
Apríl 2000
Hinn 10. apríl var undirrituð samrunaáætlun Íslands-
banka hf. og FBA hf. sem leiddi til stofnunar nýs fé-
lags undir nafninu Íslandsbanki-FBA hf.
Maí 2000
Seðlabanki Íslands birti verðbólguspá sem gerði ráð
fyrir að meðalhækkun verðlags yrði 5,5% milli ár-
anna 1999 og 2000, en hækkun frá upphafi til loka
árs 2000 yrði 5,0%. Spáð var að verðlag á öðrum árs-
fjórðungi myndi hækka um 1,4% eða 5,7% á árs-
grundvelli.
Um miðjan maí tilkynntu tveir af yfirlýstum við-
skiptavökum ríkisskuldabréfa Verðbréfaþingi Íslands
með eins mánaðar fyrirvara að þeir hygðust hætta
viðskiptavakt.
Júní 2000
Hinn 2. júní tók Íslandsbanki-FBA hf. formlega til
starfa.
Bandaríska matsfyrirtækið Moody´s Investors
Service gaf Íslandsbanka-FBA hf. einkunnina A2
fyrir langtímaskuldbindingar, Prime-1 fyrir skamm-
tímaskuldbindingar og C fyrir fjárhagslegan styrk.
Hinn 7. júní undirritaði Lánasýsla ríkisins samning,
að undangengnu útboði, um samningsbundna við-
skiptavakt ríkisverðbréfa við Kaupþing hf., Búnaðar-
banka Íslands hf., Íslandsbanka-FBA hf. og Spari-
sjóðabanka Íslands hf. Frá undirritun samningsins
hafa áður nefndir aðilar heimild til að kalla sig viður-
kennda viðskiptavaka ríkisverðbréfa. Í samningnum
eru skilgreindar skyldur viðskiptavaka varðandi
framsetningu tilboða á VÞÍ og hámarksbil milli
kaup- og söluávöxtunar. Þá mun Lánasýslan greiða
viðskiptavökum veltuþóknun fyrir viðskiptavaktina.
Í samningnum eru skilgreindir 4 markflokkar ríkis-
skuldabréfa, þrír verðtryggðir og einn óverðtryggður.
Lánasýslan skuldbatt sig jafnframt til þess að bæta
upplýsingagjöf.
Hinn 19. júní hækkaði Seðlabanki Íslands vexti sína
um 0,5 prósentustig.
Íbúðalánasjóður gerði samning við Landsbanka
Íslands hf. og Búnaðarbanka Íslands hf. um við-
skiptavakt með húsbréf. Frá undirritun samningsins
hafa áður nefndir aðilar heimild til að kalla sig viður-
kennda viðskiptavaka með húsbréf og húsnæðisbréf.
Íbúðalánasjóður stóð með sama hætti að vali
viðskiptavaka og Lánasýsla ríkisins, og er samningur
sjóðsins að öllu leyti hliðstæður samningi Lánasýsl-
unnar. Þá tilkynnti Íbúðalánasjóður að hann myndi
framvegis leitast við að miðla með reglubundnum