Peningamál - 01.07.2008, Page 55
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
0
8
•
2
55
Viðauki 2
Könnun á mati sérfræðinga á fjármál a-
markaði á horfum í efnahagsmálum
Fyrir hverja útgáfu Peningamála gerir Seðlabankinn könnun á mati
sérfræðinga á horfum í efnahagsmálum. Könnunin var gerð um miðjan
júní og voru þátttakendur Askar Capital hf. og greiningardeildir Glitnis
hf., Kaupþings hf. og Landsbanka Íslands hf. Helstu breytingar frá spá
sömu aðila í apríl sl. eru að þeir spá minni hagvexti á spátímanum og
meiri verðbólgu á þessu og næsta ári.
Horfur á að verðbólga haldist mikil fram á næsta ár
Sérfræðingar spá meiri verðbólgu framan af spátímanum en áður enda
hefur verðbólga aukist afar hratt að undanförnu í kjölfar gengislækkun-
ar krónunnar og vegna mikils undirliggjandi kostnaðarþrýstings. Horfur
eru á að verðbólga verði áfram mikil fram á seinni hluta næsta árs að
mati sérfræðinganna. Þeir spá því að verðbólga verði að meðaltali rúm-
lega 11% á þessu ári líkt og gert er ráð fyrir í grunnspá Seðlabanka ns.
Flestir þeirra spá því að verðbólga hjaðni mjög hratt á næsta ári og
verði að meðaltali tæp 5% á árinu 2009 og komin niður í 3½% á
öðrum fjórðungi ársins 2010. Meirihluti sérfræðinganna býst við því
að verðbólga verði í nánd við markmið í lok spátímans, þ.e.a.s. á öðr-
um ársfjórðungi 2011. Grunnspá Seðlabankans gerir ráð fyrir nokkru
hægari hjöðnun verðbólgu þar sem hún verður að meðaltali 7½% árið
2009 en komin niður í 3½% á öðrum ársfjórðungi 2010 líkt og sér-
fræðingarnir gera ráð fyrir. Í grunnspánni næst verðbólgumarkmiðið á
seinni hluta ársins 2010.
Hagvöxtur hverfandi framan af spátímanum
Ýmsar vísbendingar eru komnar fram um að farið sé að hægja nokkuð
hratt á hagvexti, einkum vegna samdráttar fjárfestingar og kólnunar á
fasteignamarkaði, þótt einkaneysla sé enn nokkuð sterk. Líkt og í síð-
ustu könnun gera sérfræðingarnir ráð fyrir að hagvöxtur verði hverf-
andi á þessu ári og spá að meðaltali ½% hagvexti á árinu 2009 sem er
prósentu minna en síðast. Tveir svarendur búast við samdrætti á þessu
ári og einungis einn býst við samdrætti á því næsta. Þeir áætla að hag-
vöxtur glæðist nokkuð árið 2010 og verði að meðaltali rúmlega 2%.
Samkvæmt grunnspá Seðlabankans verður rúmlega 1% hagvöxtur í ár
en um 2% samdráttur árin 2009 og 2010. Sérfræðingarnir eru því mun
bjartsýnni en Seðlabankinn.
Ólíkar spár um gengi krónunnar
Gengi krónunnar hefur lækkað töluvert síðan í mars og aftur í júní en
verið afar sveifl ukennt þar á milli. Að meðaltali spá sérfræðingarnir að
gengisvísitalan verði 144 stig á þessu ári og u.þ.b. 140 stig út spátím-
ann. Hins vegar eru þeir fremur ósammála um gengisþróunina og einn
svarenda býst við töluverðri hækkun á gengi krónunnar út spátímann.
Grunnspá Seðlabankans gerir ráð fyrir lægra gengi krónunnar á spá-
ÞRÓUN OG HORFUR
Í EFNAHAGS- OG PENINGAMÁLUM