Ritröð Guðfræðistofnunar - 01.01.1993, Side 104
Bjöm Magnússon
við aðrar birtingar þá, er hann birtist honum sjálfum, enda þótt það væri
löngu eftir „himnaför” Jesú, og að hann minnist ekkert á tómu gröfina.
„Er svo mikið víst, að hann og lærisveinarnir á undan honum lögðu enga
áherslu á fund grafarinnar, heldur það, að Jesús birtist” (Harnack bls.
121).
Páll virðist ekki hafa fundið til neinnar þarfar á því að gera sér grein
fyrir, hvernig væri varið lífi mannsins eftir dauða hans allt fram að
upprisunni á efsta degi, og má sennilega skýra það með því, að hann vænti
upprisunnar svo bráðlega.
Kenningin um eilíft líf sem ódauðleik hverrar mannssálar hefur alltaf
verið ein af hinum grundvallandi í kristindómnum, og eru þær að miklu
leyti byggðar á þeim kenningum Páls, sem raktar hafa verið hér að
framan. Þó hefur þar brugðið út af í ýmsu, meðal annars í kenningunni
um „upprisu holdsins“, eins og fyrr er getið, og er þar rakin nokkuð
kenning kirkjunnar um það mál, og skal því ekki farið frekar út í það hér
— enda heyrir það frekar til þekkingarinnihaldi kristindómsins, en
lýsingu hans sem lífs frá Guði. En hjá Páli er hvort tveggja svo
samtvinnað, að ekki þótti fært að ganga fram hjá því í þessu sambandi.
c) Guðsríkið sem alhliða líf frá Guði. Eilíft líf, samkvæmt dýpsta
skilningi kristindómsins, táknar meira en ódauðleika. Sá skilningur, sem
lagður er í orðið í Jóhannesarguðspjalli er miklu nær anda kristin-
dómsins, að það tákni sama sem guðsríkið. Þessi tvö orð skýra hvort
annað og uppfylla hvort annað. Enginn alhliða skilningur á guðsríkinu
nær öllu því, sem í því orði felst. Guðsríkið er eilíft líf í víðustu
merkingu: alhliða líf frá Guði.
1. Guðsríkið felur fyrst í sér, að Guð ríki. Það er þar sem vilji hans
ræður, þar sem hann er konungurinn. Það er veldi Guðs yfir hjörtum
mannanna, yfir vilja þeirra og lífsstefnu. „Ekki mun hver sá er við mig
segir: Herra, herra, ganga inn í himnaríki, heldur sá, er gjörir vilja föður
míns, sem er í himnunum.” Það er guðsríkið hið innra í mönnunum. Það
er það, að maðurinn helgar allt líf sitt Guði, finnur til nálægðar hans í
hvívetna, sem hins heilaga kærleika. Það birtist þar sem mennirnir koma í
algerri auðmýkt fram fyrir Guð, sem hinn persónulega vin og volduga
föður, opna sig fyrir krafti hans og ríkdómi gjafa hans í fátækt sinni.
Slíkra er guðsríkið.
2. En sem ríki Guðs felur það líka í sér samfélag mannanna. Enginn
einstaklingur getur verið sæll með Guði sínum nema í félagsskap bræðra
sinna. Guðsríkið er heild. Það er ekki sundraðir einstaklingar, heldur
lífræn eining allra í fylgd við vilja Guðs. Það er bræðralag, því að allir
þegnar þess finna sig syni og dætur hins sama föður, hins alvalda
kærleika. Það er skipulegt samstarf, þar sem hver vinnur sitt hlutverk
eins og limur á sama líkama. Það er samlíf þar sem hver uppbyggir
annan og veitir honum hlutdeild með sér í þeim dásemdum lífsins, sem
þegnskapurinn í guðsríkinu veitir þeim, er samræma líf sitt lögum þess,
og hafa lögmál þess skráð í brjósti sér.
102