Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1993, Blaðsíða 185
MÚLAÞING
183
og munu þau hjón því bæði af Héraði upprunnin. Ef þetta reyndist rétt,
hefur Eiríkur verið hálfbróðir Guðrúnar móður Stefáns Jónssonar, sem
lengi bjó á Krosslandi og síðar á Starmýri og drukknaði í Hamarsfirði
vorið 1898, og Bjargar móður Hólmfríðar konu hans.
Hefur hann þá komið til Stefáns Hjörleifssonar frá Krosslandi og þá
eitthvað innan við fermingu. Álítur Benedikt, að hann muni fæddur um
1819 eða 20, ef hann væri sonur Hólmfríðar og Sigurðar Steingrímsson-
ar.
Eiríkur deyr í september 1900 á heimili Guðmundar Eyjólfssonar á
Melrakkanesi og minnir mig að þá væri hann sagður um áttrætt.
Þegar ég var að alast upp átti Eiríkur heima á næsta bæ, Tunguhlíð, og
fremur stutt á milli bæja. Ég sá því Eirík oft og man hann vel. Hann var
þar hjá syni sínum Guðna öll árin sem Guðni bjó þar, en þau voru sex.
En er hann hætti búskap þar og flutti á Djúpavog, sagði hann karlinn til
sveitar og var honum þá ráðstafað af sveitarstjórninni, að Melrakkanesi
sem áður er getið.
Hann var hávaxinn og grannur og lítið eða ekkert lotinn fram á síðustu
ár, toginleitur og fölur, með ljósgrátt skegg, rytjulegt. Á fæti var hann
seinárlegur og hægfara, enda orðinn gamall. Kona hans hét Oddný, en
hvers dóttir man ég ekki, en móðir hennar hét Katrín.
Oddný eignaðist tvö börn í lausaleik áður en hún giftist Eiríki, þá ung
um tvítugt.
Það sem þau voru við búskap munu þau hafa verið á Starmýri, a.m.k.
meðan Stefán Hjörleifsson lifði. Böm áttu þau mörg, og voru sum tekin
á önnur heimili, líklega með meðlagi frá sveitinni, enda bendir það til,
að eitt sinn, er Björn Gíslason hreppstjóri á Búlandsnesi var í einhverri
eftirlitsferð um sveitina til þeirra sem ekki voru sjálfum sér nógir um
efnahaginn og þurftu að fá sveitarstyrk, spurði hann Eirík hvað lengi
hann ætlaði að halda áfram að eiga börn. En Eiríkur sagði að það væri
ekki gott við að gera á meðan Guð héldi áfram að skapa.
Börn Eiríks og Oddnýjar, sem lifðu og ég heyrði getið, voru: 1) Sig-
urður, flutti upp í Fell og síðar á Jökuldal, átti ekki afkomendur.
2) Guðmundur, flutti einnig í Fellin, mun hafa gifst þar. Mig minnir
konan heita Ástríður eða Ásdís, og munu þau hafa eignast afkomendur,
en ókunnugt að öðru leyti. 3) Guðni, ólst upp á Hofi hjá séra Þórami.
Kona Kristín Ásmundsdóttir frá Flugustöðum. Synir þeirra tveir enn á
lífi 1967, Þórarinn og Ásmundur, báðir í Reykjavík. Frá Ásmundi eru
niðjar. 4) Gísli, ólst upp í Hnaukum hjá Kristjáni Jónssyni og Rósu konu
hans, flutti með þeim upp í Breiðdal og var lengi vinnumaður þar í