Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 120

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 120
Hanna Ragnarsdóttir og Halla Jónsdóttir niðurstöðum viðhorfakönnunarinnar að dæma er einnig ljóst að ákveðinn hópur, eða milli 15 og 20% svarenda, óttast að tapa trúnaði vina sinna, verða óvinsæll, og aðeins lægra hlutfall, eða 12,3%, óttast að verða fyrir einelti. Spurningar vakna um hvort hér sé hópur sem lifir við höfnun, félagslegt einelti í félagahópnum eða eitt- hvað það annað innan skóla eða utan sem veldur einstaklingunum þessu óöryggi. Sú jákvæðni sem fram kemur hjá unga fólkinu í viðhorfakönnuninni gagnvart margbreytileika samfélagsins vekur hins vegar bjartsýni. Tæplega 62% þátttakenda eru t.d. mjög eða frekar sammála fullyrð- ingunni um að það sé mikilvægt fyrir ís- lenskt samfélag að þar búi fólk af ólíkum uppruna og tæplega 90% þátttakenda eru mjög eða frekar sammála fullyrðingunni um að rasismi eigi aldrei rétt á sér. Það er þó athyglisvert í þessu samhengi að þegar spurt er urn þátttöku og völd fólks með erlendan bakgrunn í stjórnmálum kemur í ljós að rúmlega 65% eru mjög eða frekar sammála henni en tæplega 19% eru frekar eða mjög ósammála og tæplega 16% segj- ast ekki vita það. Þar virðist stuðningur við margbreytileikann ekki vera eins af- gerandi. Parekh (2006) hefur lagt áherslu á mikilvægi þess að fjölmenningarsamfélög finni jafnvægi með virkum samræðum og samningum hópa og einstaklinga án þess að nauðsynleg samloðun þeirra glatist. í framangreindum svörum koma m.a. fram efasemdir um að jafnrétti allra hópa eigi að ríkja og það álit að rasismi eigi stundum rétt á sér. Hugsanlega er það merki um að skort hafi á virka samninga og samræður hópa í fjölmenningarsamfélaginu á íslandi og að ekki hafi farið fram næg almenn um- ræða um það hvað felst í þróun fjölmenn- ingarsamfélags. Að sama skapi skortir e.t.v. virkari þátttöku einstaklinga af ólíkum uppruna í íslensku samfélagi, en að mati Parekhs (2006) er virk þátttaka mikilvæg leið til að jafna stöðu einstaklinga í fjöl- menningarsamfélagi. Svör við fullyrðing- um um menningarlegan margbreytileika í framangreindri viðhorfakönnun benda að nokkru leyti til þess að margbreytileikinn sé í augum unga fólksins í rannsókninni hversdagslegur og eðlilegur frernur en spennuvaldur (Cummins, 2009). Jafnframt koma fram niðurstöður sem benda til neikvæðra viðhorfa til margbreytileikans. Mikil samskipti á Netinu hafa að öllum líkindum áhrif á afstöðu ungmennanna til margbreytileikans. Ahugavert er að bera niðurstöður könnunarinnar saman við niðurstöður nokkurra nýlegra íslenskra rannsókna um félagslega einangrun ungs fólks af erlendum uppruna sem fjallað var um hér að framan (Hanna Ragnarsdóttir, 2011; Nína V. Magnúsdóttir, 2010; Schu- bert, 2010; Þóroddur Bjarnason, 2006). Mikilvægt er að athuga nánar ástæður þeirrar einangrunar sem þar birtist og hvernig hún tengist viðhorfum unga fólks- ins í könnuninni til margbreytileikans. Nokkra samsvörun er að finna í viðhorf- um ungmennanna í framangreindri könn- un og ungmennanna í rannsókn Hönnu Ragnarsdóttur (2011) sem virtust ekki ýkja upptekin af menningarlegri sjálfsmynd sinni og virtust njóta þess besta úr báðum menningarheimum, hinum íslenska og sínum upprunalega. Niðurstöður þær sem hér hafa verið kynntar benda til þess að margbreytileiki mannlífsins sé fyrir meiri- hluta þess unga fólks sem svarað hefur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.