Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Side 147
Hefur val á skóla og námsárangur áhrif á íslenskum vinnumarkaði?
í rannsókn Bowman og Mehay (2002) var
skoðað hvort gæði háskóla og menntun
einstaklinga hefði einhver áhrif á frammi-
stöðu í starfi hjá liðsforingjum í sjóher
Bandaríkjanna sem voru í stjórnunar-
stöðum innan flotans. Þeir notuðu einstakt
gagnasafn sjóhersins um liðsforingja sem
útskrifuðust frá tæplega 1.000 mismun-
andi háskólum. Þannig gátu þeir stýrt fyrir
mikilvægum mun á starfsframa, úthlutun
starfa og hvata, mun sem ekki er hægt að
stýra fyrir í venjulegum rannsóknum sem
styðjast við úrtak á landsvísu. Niðurstöður
sýndu að þeir sem höfðu lokið námi úr
einkaskóla, sama á hvaða gæðastigi þeir
voru, fengu betra frammistöðumat en aðr-
ir liðsforingjar. Nemendur úr best metnu
einkaskólunum voru líklegri en aðrir liðs-
foringjar til þess að fá stöðuhækkun. Þessi
rannsókn eykur skilning á því hvernig
námsárangur og gæði háskóla tengjast
framleiðni starfsmanna. Með því að stýra
fyrir meðaleinkunn og aðalnámsgrein
sýndu niðurstöður að útskriftarnemendur
úr virtum einkaskólum mældust með
meiri skynjaða framleiðni í vinnu en sam-
starfsmenn þeirra (Bowman og Mehay,
2002).
Niðurstöður fyrri rannsókna sýna að
nemendur úr einkaskólum eru metnir
hæfari en nemendur úr ríkisskólum. Út frá
því er eftirfarandi tilgáta sett fram:
Tilgáta 1: Nemandi úr einkaskóla (HR) er
metinn hæfari en nemandi úr ríkisskóla
(Hí).
Fjárhagslegur ávinningur eftir skólum
Ríkis- og einkaskólar eru mismunandi
þegar kemur að skólagjöldum. Einka-
skólar, sem velja inn nemendur, fara fram
á hærri skólagjöld en þeir sem velja síður
inn nemendur. Einnig eru skólagjöld í
einkaskólum hærri en í ríkisskólum. Af
hverju skyldu nemendur kjósa að greiða
hærri skólagjöld þegar lægri skólagjöld
eru í boði? Svarið við því gæti hugsanlega
verið að þeir sem sótt hafa nám í einka-
skólum geti vænst þess að njóta fjárhags-
legs ávinnings á vinnumarkaði (Brewer
o.fl„ 1999).
Þegar mælt er hvaða fjárhagslegan
ávinning menntun hefur í för með sér er
algengt að bera saman meðaltekjur út frá
mismunandi menntunarstigi (e. educatio-
nal attainment). Með þeirri aðferð er litið
fram hjá þeirri staðreynd að aðrar breytur
en námsstig hafa áhrif á meðaltekjur, ein
slík breyta er meðfædd geta. Geta er tengd
menntunarstigi. Að líta fram hjá áhrifum
hennar getur leitt til þess að áhrif mennt-
unarstigs á tekjur verði ofmetið. Einnig
eru aðrar breytur sem flækja þetta mat, til
dæmis gæði skóla og persónuleg hvatn-
ing. Weisbrod og Karpoff (1968) skoð-
uðu hvaða áhrif mismunandi gæði skóla,
mismunandi geta og hvatning nemenda
hefði á fjárhagslegan ávinning þeirra.
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að
tekjur jukust eftir því sem árangursröðun
í bekknum fór hærra og eins eftir því sem
gæði skólans urðu meiri (Weisbrod og
Karpoff, 1968).
Flestar rannsóknir þar sem skoðaður
hefur verið fjárhagslegur ávinningur út frá
gæðum háskóla hafa byggst á gagnasafni
frá National Longitudinal Surveys (NLS)
(Hagstofu Bandaríkjanna). Bowman og
Mehay (2002) greindu gögn um karl-
menn sem útskrifuðust úr grunnskóla árið