Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 153

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2013, Page 153
Hefur val á skóla og námsárangur áhrif á íslenskum vinnumarkaöi? fyrirtæki með skráðan starfsmannafjölda. Annar listi var því fenginn 21. júní 2011 út frá heildareignum fyrirtækja og listarnir tveir krosskeyrðir saman. Að því loknu var farið inn á heimasíður fyrirtækjanna til þess að finna netföng mannauðsstjóra. Ef ekki var hægt að finna þau þar var hringt í fyrirtækin og beðið um netfang viðkom- andi mannauðsstjóra. I þeim tilfellum sem fyrirtæki voru ekki með mannauðsstjóra, starfsmannastjóra eða ráðningastjóra var beðið um netfang þess aðila sem sæi um þau mál. Hér eftir er því átt við þá sem bera starfstitilinn mannauðsstjóri, starfsmanna- stjóri, ráðningastjóri, framkvæmdastjóri eða þá sem sjá um mannauðsmál þegar talað er um þátttakendur sem mannauðs- stjóra. Þátttakendur voru 143 talsins og var svarhlutfall 49,3%. Kynjaskipting var jöfn þar sem 49% þátttakenda voru karlar og 51% konur. Flestir þátttakendur voru á aldursbilinu 41-50 ára eða 39,2% og 37,8% voru á aldursbilinu 31-40 ára. Þátttakend- ur voru upplýstir um tilgang rannsóknar- innar og að svör þeirra yrðu dulkóðuð. Þar sem sú ferilskrá sem þátttakendur mátu var skálduð voru siðferðisleg álitamál ekki til staðar frá þeirri hlið rannsóknarinnar. Áreiti Utbúnar voru fjórar mismunandi útgáfur af ferilskrá. Umsækjandi var kvenkyns og hafði annars vegar lokið B.Sc. gráðu í við- skiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík (HR) og hins vegar frá Háskóla íslands (HÍ). Umsækjandinn var annars vegar með háa meðaleinkunn (8,5) og í hinum tveimur tilfellunum með lága meðal- einkunn (6,5). Allar aðrar upplýsingar í ferilskránni voru eins fyrir utan aðlögun á tölvupóstfangi eftir skólum. Þátttakendur voru beðnir að setja sig í hlutverk mann- auðsstjóra tilbúins símafyrirtækis að nafni TriX ehf. Utbúin var atvinnuauglýsing þar sem auglýst var eftir verkefnastjóra. Auglýsingin innihélt starfslýsingu þar sem fram kom hvað fælist í starfinu og hvaða hæfniskröfur umsækjandinn þyrfti að uppfylla. Þátttakendur voru beðnir að meta umsækjandann út frá ferilskrá sem innihélt upplýsingar um persónulega hagi, menntun, starfsreynslu og áhuga- mál. Leiðbeiningarnar voru orðrétt: „Kæri þátttakandi, þú ert beðin/n að setja þig í hlutverk mannauðsstjóra hjá símafélaginu TriX. Verkefni þitt er að ráða í neðangreint starf. Vinsamlegast lesið vel yfir upp- lýsingarnar hér að neðan og metið eftir- farandi umsækjanda fyrir starfið." Mælitæki Spurningalisti var frumsaminn og hann- aður með tilgátur rannsóknarinnar í huga. Við gerð hans var stuðst við heimildir um uppsetningu og hönnun spurningalista (Þorlákur Karlsson, 2003). Ferilskrárrann- sókn Agthe, Spörrle og Maner (2011) var einnig höfð til hliðsjónar en í henni var mat þátttakenda á mögulegum atvinnu- umsækjendum og umsækjendum um skólavist kannað. Ennfremur var stuðst við rannsókn Shahani-Denning, Dudhat, Tevet og Andreoli (2010) sem gerðu fer- ilskrárrannsókn þar sem þátttakendur mátu hæfni umsækjenda, ráðningarlíkur og byrjunarlaun. Spurningalistinn samanstóð af 14 spurningum til að meta hvort val á skóla og meðaleinkunn umsækjanda hefði áhrif á ráðningar og launakjör. Spurningar 1-6
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.