Orð og tunga - 01.06.1997, Blaðsíða 30
18
Orð og tunga
eru samtölur úr hverjum dálki, og má þar sjá stærð hvers bókarhluta og bókarinnar í
heild.
Hafa ber í huga að í Vb. er slæðingur af orðum sem einnig eru í Bl„ en endurtekin
vegna viðbótarmerkingar eða leiðréttingar. Slík orð eru einungis talin til orðaforða Bl.
I Nvb. eru enn fleiri orð endurtekin úr GBl. af sömu ástæðum, en um þau gildir hið
sama; þau eru talin til orðaforða Bl. eða Vb., en ekki Nvb.
I gömlu útgáfunni eru samtals hátt í 115 þús. orð, tæp 40 þús. orð í nýja viðbætinum
og ríflega 154 þús. orð í Blöndalsorðabók allri. Þetta er langstærsta orðabók um íslenskt
mál sem prentuð hefir verið. Hafa má til hliðsjónarað Árni Böðvarsson taldi vera um
65 þús. flettiorð í fyrri útgáfu orðabókar sinnar (íslenskrar orðabókar handa skólum
og almenningi) 1963 og um 85 þús. í síðari útgáfunni 1983 (sjá formála þeirrar útgáfu,
bls. V og IX).
Enn fremur vekur athygli að dálítið efni er enn óflokkað, 362 orð alls. Þetta er
það sem fór í ruslakistuna „ATHS“ sem fyrr var nefnd. Greining á þessum orðum
myndi auðvitað raska eitthvað tölum á öðrum stöðum í töflunni, en væntanlega kemur
sú röskun víða niður og breytir varla hlutföllum svo að máli skipti né heildartölum.
Að öðru leyti má láta lesendum eftir að lesa úr töflunni, hverjum eftir sínu höfði.
Hér skal þó drepið á tvö atriði sem vöktu athygli mína.
Á töflunni kemur býsna glögglega fram skiptingin í lokaða orðflokka og opna. Ef
sérnöfnum er steypt saman við nafnorð teljast orðflokkarnir ellefu. Af þeim mega sex
heita lokaðir: fornöfn, forsetningar, greinir, nafnháttarmerki, samtengingar og töluorð.
1 Nvb. eru þó þrjár forsetningar sem ekki voru í GBl. Opnu eða frjóu flokkarnir eru
fimm: atviksorð, lýsingarorð, nafnorð, sagnorð og upphrópanir.
Úr lokuðu orðflokkunum sex koma aðeins 296 flettiorð eða 0,19% af orðaforða
bókarinnar, en 153.858 orð eða 99,81% úr lokuðu flokkunum fimm. Óflokkuð eru 362
orðeða0,23%. Stærstu flokkarnir eru:
nafnorð (með sérnöfnum) 114.495 74,27%
lýsingarorð 27.593 17,90%
sagnorð 8.617 5,59%
atviksorð 2.649 1,72%
Alls 153.354 99,48%
Tafla 2: Orðflokkaskipting í orðabók Blöndals
Þessir fjórir orðflokkar ná m.ö.o. yfir nærri 99,5% af öllum orðaforða Blöndalsorða-
bókar, og um % af öllum flettiorðum í bókinni eru nafnorð.
Hitt atriðið sem vakti sérstaka athygli mína er að hlutföllinmilli kynflokka nafnorða
hafabreystfráGBl.til Nvb. I GBl. eru karlkynsorðinflest, en í Nvb. eru kvenkynsorðin
svo miklu fleiri (41.277) að þau hafa vinninginní heildartölunum. Hlutföllineru nánara
tiltekið þannig: