Orð og tunga - 01.06.2010, Page 59

Orð og tunga - 01.06.2010, Page 59
Hallgrímur ]. Ámundason: Óformleg örnefni í Reykjavík 49 tveir, annar var umhverfis Kvosina en sá lengri bætti Hverfisgötu og Laugavegi við. Nafnið er auðvitað dregið af danska orðinu „rundt" sem merkir 'í kringum'. Svo virðist sem málhreinsunarmenn hafi al- veg gleymt að finna íslenskt heiti á þetta fyrirbæri. Heiti lækurinn eða Volga í Nauthólsvík er nú horfinn en hafði mikið aðdráttarafl seint á 20. öld, meðal fjölskyldufólks um helgar og unga fólksins á kvöldin. A sama stað hefur nú Ylströndin tekið við hlutverkinu. Nafn Skothús- vegar vísar til gamals óformlegs örnefnis. Skotfélag Reykjavíkur átti hús þar sem nú er Suðurgata 35. Það var í daglegu tali kallað Skotlnísið en hét að réttu „Reykjavigs Skydeforenings Pavillon" upp á dönsku. Nöfnin sem hér hefur verið rætt um í sjö flokkum eru flest frá 19. og 20. öld og mörg orðin býsna gömul. En hvað er hægt að sjá langt aftur í tímann þegar óformleg örnefni eru annars vegar og hvernig gengur að halda nýjum nöfnum til haga? 4 Fyrri tíð í fyrsta bindi Jarðabókar Árna Magnússonar og Páls Vídalíns eru nokkur dæmi um örnefni sem hljóta upphaflega að hafa verið „óform- leg". Nokkur slík hafa verið í Vestmannaeyjum á þessum tíma (1913- 1917:19 o.áfr.). Þar er t.d. getið um „húsmannahús" sem gengur undir nöfnunum Langi, Hnakkur og Bakrangur og vísa líklega öll heitin til sköpulags hússins. Annað hús er kallað Rass. E.t.v. vísar það til stað- setningar. Önnur nöfn sem koma fyrir eru Ásalnís, Bumbuhús, Pumfei- arhús (?), Bylta, Pokra, Dularahús og Kelasonarhús. Þarna eru semsé nöfn sem vísa til útlits húsa eða staðsetningar (Langi, Bakrangur, Rass), til eigenda (Ásahús, Kelasonarhús), til lifnaðarhátta eða virðingarstöðu (Pokra). Óvíst er hvað orðið „dulari" merkir.12 Sama gildir um Pum- feiarhúss. í dönsku er til orðið „pumpern" sem merkir 'leysa vind' en óvíst að það eigi við hér. Á dönsku er „pumpernikkel" svo nafn á mjög dökku rúgbrauði. Ekki er útilokað að húsið hafi staðið nærri áðurnefndum Rassi. í öðru bindi Jarðabókarinnar (1918-1921:254-255) er getið um tvær hjáleigur Hörgsholts í Hrunamannahreppi Árn. Önnur var kölluð Þverspyrna. Hin gekk undir a.m.k. fimm nöfnum sem öll eru tilfærð: 12Það kemur skv. ritmálssafni Orðabókar háskólans fyrir í Kleyfsa (Nucleus Latini- tatis) eftir ]ón Ámason (í samsetningunni „dularamannsháttur") og í íslenskum þjóð- sögum sem alnafni hans safnaði.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Orð og tunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orð og tunga
https://timarit.is/publication/1210

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.