Orð og tunga - 01.06.2010, Page 67
Svavar Sigmundsson: Um örnefnaskýringar
57
Bæta má við 5. skilyrði við nafnskýringu eða nafntúlkun en það er
að nafnið verður að eiga við staðhætti. Nauðsynlegt er að ganga úr
skugga um það eftir því sem við verður komið. Bæir hafa verið fluttir
og mörg búsetunöfn hafa upphaflega verið nöfn á stöðum í náttúr-
unni eða óbyggðri landspildu. Taka verður tillit til landhækkunar eða
landsigs, framræslu eða ræktunar o.s.frv. Ef örnefni hefur forlið sem
táknar gróður eða dýr verður að sýna fram á að gróður- eða dýrateg-
undin hafi átt þar vist þegar nafnið var gefið (SOL, 11).
Þegar skýrt hefur verið út hvaða máleiningar eða orð eru í ör-
nefninu er næsta skref að koma með „merkingarlega nafnskýringu"
(namnsemantisk tolkning), þ.e. að reyna að gefa skýringu á því hvaða
merkingu nafngjafinn lagði í örnefnið þegar hann gaf það. Merking
einstakra nafnhluta getur verið augljós en merking nafnsins óljós. Við
getum tekið nafnið Mælifell sem dæmi. Við vitum hvað so. mæla
merkir sem er líklegast að liggi að baki forliðnum, og við vitum hvað
fell er, en við vitum ekki vel hvað þau merkja saman í nafninu Mæli-
fell. Er það fell sem staða sólar er mæld við á ákveðnum tíma, þ.e.
eyktarmark, fell sem menn mæla áttina við, þ.e. átta sig eftir, t.d. á
ferð, eða e.t.v. fell sem vegalengd er mæld út frá. Eins og við vitum
getur verið erfitt að finna réttu skýringuna af því að erfitt er að setja
sig inn í aðstæður og mál og málnotkun löngu liðins tíma. Takmark-
ið er að finna sennilegustu skýringuna sem fellur að þeim skilyrðum
sem sett voru fram hér að framan.
Þegar forn örnefni eru annars vegar getur það verið samvinnu-
verkefni margra fræðigreina að komast að ástæðum nafngjafar og
merkingu nafns þegar það var gefið. Það getur verið samvinna nafn-
fræðings, fornleifafræðings, sagnfræðings, menningarlandafræðings
og frjókornafræðings svo að nokkrir fræðingar séu nefndir. Lands-
lag breytist á löngum tíma. Hér suðvestanlands hefur orðið landsig
sem gerir tjarnir nærri sjó að víkum, Bessastaðatjörn og Seltjörn, svo
að dæmi séu nefnd. Aldur byggðar er hægt að tímasetja með land-
fræðilegum og jarðfræðilegum aðferðum og aldur bæjanafna eftir því.
Þó þarf bær ekki að hafa borið sama nafn alla tíð. Nöfn geta breyst
eða nafnskipti farið fram af ýmsum ástæðum. Ekki er alltaf hægt að
treysta því að nafn hafi verið nýtt eða nýmyndað á staðnum, heldur
getur það verið til komið eftir þekktri fyrirmynd, fyrir áhrif frá öðru
örnefni (analogi). Staður getur verið skírður í höfuðið á öðrum stað
(uppkallelse) og það nafn þarf ekki að vera norrænt. En oftast gefa