Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Side 52

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Side 52
sindas i / Vinnuveitendur greiða sem nemur 1,5% af föstum dagvinnulaunum hjúkrunarfræðinga í Vísindasjóð Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Hrein eign sjóðsins um áramót er hverju sinni til úth- lutunar. Sjóðurinn er í vörslu félagsins og skiptist í A- og B-hluta. A-hluti í A-hluta koma 90% af tekjum sjóðsins og skal þeim varið til að greiða hverjum sjóðsfélaga árlega framlag fyrir útlögðum kostnaði vegna endurmenntunar, rannsóknar- eða þróunarstarfa. Félagið sér um að greiða úr A-hluta sjóðsins til félagsmanna á fyrsta ársfjórðungi hvert ár. Ekki þarf að sækja sérstaklega um framlagið, upphæðin er lögð inn á bankareikning félagsmanna sem hafa gefið upp reiknings- og bankanúmer sitt hjá félaginu eða senda með ávísun heim. Félagsmaður, sem hefur verið í fullu starfi tímabilið 1. janúar til 30. nóvember árið fyrir úthlutun, á rétt á fullri úthlutun. Félagsmaður, sem hefur unnið hlutastarf á sama tímabili, á rétt á úthlutun í hlutfalli við vinnuframlag. Ekki er úthlutað til félagsmanna sem hófu störf eftir 1. sep- tember árið fyrir úthlutun. Vísindasjóður A-hluti Greiðslur úr A-hluta Vísindasjóðs félagsins verða lagðar beint inn á bankareikning félagsmanna í lok mars nk. Opidallan sólar- hringinn 7 daga vikunnar HÁALEITIS APÓTEK Háaleitisbraut 68 • Slmi 581 2101 Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr B-hluta Vísindasjóðs Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Umsóknarfrestur er til 15. apríl 1998. Umsóknum sé skilað á skrifstofu félagsins að Suðurlandsbraut 22. B-hluti Úr B-hluta Vísindasjóðsins er þeim 10% sem eftir eru af tekjum sjóðsins varið til að stuðla að aukinni fræðimennsku í hjúkrun með því að styrkja rannsókna- og þróunarverkefni. Úr þeim hluta er úth- lutað einu sinni á ári. Úr starfsreglum fyrir B-hluta Vísindasjóðs Hjúkrunarfræðingar, sem eiga aðild að sjóðnum, geta sótt um styrki úr honum til að sinna fræðimennsku. Umsóknir skulu metnar af stjórn Vísindasjóðs og sérfróðum aðilum á hverju sérsviði hjúkr- unar. í þverfaglegum verkefnum, sem fleiri en einn aðili sækir um og ekki eru allir aðilar að sjóðnum, getur upphæð styrks aldrei orðið hærri en sem nemur hlut styrkhæfra sjóðfélaga í verkefninu. Sé ekki úthlutað að fullu úr B-hluta á yfirstandandi sjóðsári leggst afgangur við sjóðinn næsta ár á eftir. Lokaverkefni nemenda í B.S. námi eru ekki styrkhæf. Lokaverkefni til M.S. eða doktorsgráðu geta verið styrkhæf að uppfylltum almen- num skilyrðum enda sé viðkomandi hjúkrunarfræðingur aðili að sjóðnum árið sem réttur til úthlutunar úr A-hluta sjóðsins ávinnst. Styrkupphæðir verða greiddar út í áföngum í samræmi við framgang verks- ins enda skili styrkþegi rnn áfangaskýrslu. Lokaskýrslu skal skilað til stjórnar Vísindasjóðs ásamt niðurstöðum, t.d. tímaritsgrein. Vísindasjóður hefur á hverjum tíma yfirlit yfir allar styrkumsóknir og styrk- veitingar frá stofnun sjóðsins í janúar 1994. Verði ekkert úr verkefni eða því ekki lokið af einhverjum ástæðum skal styrkþegi gera stjórn sjóðsins grein fyrir ástæðum þess og endurgreiða þann hluta styrksins sem ekki hefur verið notaður til verkefnisins. í umsókn um styrk þurfa að koma fram eftirfarandi upplýsingar: Nafn umsækjanda, menntun, starfs- reynsla og reynsla af rannsóknar- eða þróunarvinnu. Greinaskrif: • Heiti rannsóknarverkefnis/þróunar- verkefnis. • Markmið með vinnu verkefnis. • Upplýsingar um fræðilegt gildi fyrir hjúkrun/heilbrigðisvísindi. • Rannsóknaráætlun/verkáætlun. • Aðferðafræði. • Heimildaskrá. • Mælitæki. • Tímaáætlun. • Kostnaðaráætlun. Við mat á styrkhæfni skulu þessi atriði metin skv. eftirfarandi viðmiðum: Leiðir verkefnið til nýrrar þekkingar eða þróunar? Hvert er mikilvægið? Er framsetning markmiða skýr? Er framkvæmdaáætlun raunhæf og í samræmi við markmið? Er nauðsynleg aðstaða fyrir hendi? Er fagleg þekking umsækjanda fullnægjandi? Er kostnaðar- og tímaáætlun trúverðug? Er hægt að fella niður eða lækka ein- hverja kostnaðarliði, hvernig? Almennar athugasemdir um umsókn og verkefni. Hver ofangreindra þátta verði metinn samkvæmt ákveðnum kvarða, t.d. 0-5 til að auðvelda mat og ákvarðanatöku við styrkveitingar. Styrkir úr vísindasjóði geta nýst til að Ijúka verkefnum til kyn- ningar á ráðstefnum TíSKUVERSLUNlN Sm\[ GRÍMSBÆ V/BÚSTAÐAVEG Nýkomin vatteruö silkivesti Gott úrval afbolum Islenskar Inixur, bláar, svartar, teinóttar. 15% staðgreiósluafsláttur til 1. júlí. Opið virka daga frá kl. 10-18 • Laugardaga frá kl. 11-15 • Sími S88 8488 52 Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.