Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 40
fbúð á
Suðurlandsbraut,
Kvennabrekka í
Mosefllsbæ og íbúð
á Akureyrí
Athygli skal vakin á því að íbúð
að Suðurlandsbraut,
Kvennabrekka í Mosfellsbæ og
íbúð á Akureyri eru ekki taldar
með í sumarútleigu, en eru leigð-
ar samkvæmt pöntunum sem
teknar eru í síma 568 7575 á
skrifstofu félagsins, með 3ja
mánaða fyrirvara, að hámarki 1
vika í senn.
íbúð á Akureyri
íbúðin er 69 fm að stærð. Stofa
og tvö svefnherbergi, annað
með tveimur rúmum, hitt með
tvíbreiðu rúmi, að auki eru 2
aukadýnur.
Sex sængur og sex koddar eru í
íbúðinni, einnig allur eldhúsbún-
aður, ísskápur, útvarp, sjónvarp
og kolagrill.
Leigan er 1.200 kr. á sólarhring.
fbúð að
Suðurlandsbraut 22
ReykjaVík.
íbúðin er um 70 fm, 2 svefnher-
bergi með rúmum fyrir 5 auk
sófa í stofu. Sjónvarp, útvarp,
þvottavél og þurrkari. Hægt er
að leigja sængurfatnað fyrir 400
kr. en gjald fellur niður ef leigjend-
ur þvo sængurfatnaðinn sjálfir.
Leigan er 1.200 kr. á sólarhring.
Kvennabrekka í
Mosfellsbæ
Húsið er 40 fm, tvö svefn-
herbergi og stofa. Rúm fyrir 6.
Sjónvarp, útvarp og kolagrill.
Leigan er 1.200 kr á sólarhring.
IÍppí m 13ir
■ rí-fl fi J 111
v®lLLUll]-J jLJLJ sz lnjl
advaqna
r
Tveir tjaldvagnar eru til leigu en þeir eru mjög auðveldir í notkun og
sérstaklega styrktir og einangraðir fyrir íslenskar aðstæður.
í vögnunum eru eldunartæki, borð og stólar og hitunartæki. Vagnarnir eru
leigðir í sex daga í senn frá fimmtudegi til miðvikudags. Vagnarnir eru
afhentir í Reykjavík og skilað á sama stað.
Punktafrádráttur vegna leigu á tjaldvögnum er 1/4 af frádrætti sumarhúsa
á sama tíma.
Leigan er 6.000 kr. fyrir 6 daga.
^ • r
rTTT -j9L UJ1»V',!ÉSÉ» 'ij
v vX S8
Bakpoki og göngutjald
Hjá félaginu er hægt að leigja göngutjald og bakpoka. Gjald fyrir hvort um
sig er 500 kr og er þá miðað við 1 viku.
40
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998