Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.02.1998, Blaðsíða 46
hafi jafnvel verið lögð í einelti vegna foreldramissis. Að
sama skapi sé engin skipulögð þjónusta hjá heilsugæsl-
unni. Þarna sé óplægður akur í fyrirbyggjandi hjúkrun.
Bryndís telur mikilvægt að eitthvað sé gert til að fyrirbyggja
sjúkleg sorgareinkenni, þetta sé velþekkt fyrirbæri í heilsu-
gæslu. Eftirmeðferð Heimahlynningar sé aðeins brot af því
sem gera þurfi.
Allt á einum stað
Það er greinilegt að áhugi Bryndísar á starfinu er brenn-
andi. Hún og fleiri hafa gert margt gott, en mikið er enn
óunnið. Hvaða breytingar vill hún sjá í þessum málum á
næstu árum? „Ég vil að þessi sérþekking sem til er hér og
annars staðar nýtist. Að öll meðferð deyjandi sjúklinga
verði á einum stað og ég lít því til líknarheimilisins í Kópa-
vogi. Það var draumur okkar Snorra og er næsta skref að
okkar mati.“
Hjúkrunar-
fræðíngar!
Hjá Vinnueftirliti ríkisins má fá:
• Reglur, m.a.:
- Að handleika byrðar
- Húsnæði vinnustaða
- Skjávinna
- Aðbúnaður starfsmanna í afleysingarstarfi eða
tímabundnu starfi
• Myndbönd á sviði líkamsbeitingar, m.a.:
- Að handleika byrgðar
- Vinnuhæð
- Vinna við tölvu
- Rétt líkamsbeyting - betri heilsa
• Fræðslurit og leiðbeiningar, m.a.:
- Vinnutækni við umönnun
- Vellíðan í vinnunni
- Inniloft og líðan fólks
- Rétt líkamsbeiting
- Bakþankar
- Hávaði á vinnustað
Jip Vínnueftirlit ríkisins
(éjjWMj Bíldshöfða 16, 112 Reykjavík
Er þetta líknarheimili í Kópavogi bara draumur, eða
hefur eitthvað gerst í málinu? „Oddfellow-reglan varð 100
ára í ár (1997) og allar deildirnar vildu sameinast um stórt
verkefni í líknarmálum. Niðurstaðan varð sú að stuðla að
stofnun líknarheimilis í Kópavogshælinu."
Bryndís upplýsir að Oddfellow hafi þegar lagt töluverða
fjárhæð til málstaðarins, og að Heilbrigðisráðuneytið hafi
tryggt reksturinn. Málið sé nú á borði Ríkisspítala og
undirbúngsvinna sé í þann veginn að hefjast. „Við hjá
Heimahlynningu komum til með að taka þátt í undirbún-
ingnum. Við sjáum möguleika á að halda áfram okkar
uppbyggingarstarfi."
„Fólki, sem hefur verið lengi heima hjá sér, finnst erfitt
að fara á sjúkrahús", segir Bryndís, „það þarf að fara í
öðruvísi umhverfi. Álagið er of mikið inni á sjúkrahúsun-
um.“ Bryndís myndi vilja halda áfram með Heimahlynn-
ingu, en að hún yrði skipulögð út frá væntanlegri líknar-
deild. Það fólk sem geti ekki lengur verið heima leggist þar
inn. Eftirmeðferðina yrði að efla og skipuleggja út frá
annarri starfsemi deildarinnar í Kópavogi.
Krefjandi og gefandi starf
Bryndís hefur helgað sig starfi Heimahlynningar í 12 ár.
Hvernig hefur geirfuglinum gengið að nota menntun sína?
„Námið nýtist vel eins og allt nám. En auðvitað hef ég verið
að mennta mig á námskeiðum og með lestri undanfarin
10 ár. 23 ára starfreynsla og lífsins skóli nýtast vel, en auk-
in menntun er alltaf til góðs." Hún segir starfið byggjast á
teymisvinnu margra stétta: hjúkrunarfræðinga, lækna,
presta, sálfræðinga, félagsráðgjafa og geðlækna. Allir leggi
sitt af mörkum og samvinnan sé undirstaða góðs árangurs.
\ Krónurnar í launaumslaginu eru ef til vill fleiri en ef
Bryndís ynni á sjúkrahúsi, en þegar tekið sé tillit til
atvinnuréttinda og ýmissa trygginga sem fylgi starfi hjá rík-
inu, sé erfitt að segja hvort hún hafi það betra hjá
Heimahlynningu. En er starfið þess virði? „Tvímælalaust.
Þessi vinna er að vísu mjög erfið bæði andlega og líkam-
lega. Okkar gæfa hjá Heimahlynningu hefur verið frábært
starfsfólk. Við styðjum hvert annað á erfiðum stundum.
Þetta hefur verið krefjandi en jafnframt gefandi."
Það er Ijóst að þótt Bryndís sé sjálfstætt starfandi eins
og það er kallað, þá er sú hjúkrun sem hún sinnir ekki
aðeins nauðsynleg, heldur sjálfsögð. Líknardeild eða heim-
ili ætti að vera veruleiki - ekki draumur. Hjúkrunarfræðingar
ættu ekki að þurfa að stunda líknarhjúkrun í sjálfboða-
vinnu. En meðan svo er skulum við þakka fyrir að hafa fólk
eins og Bryndísi.
46
Tímarit Hjúkrunarfræðinga • 1. tbl. 74. árg. 1998