Ráðunautafundur - 15.02.1991, Blaðsíða 66
-58-
ungviðinu með beitinni fyrst eftir að það er látið út og byrja að gefa með beitinni
áður en tekið er á hús á haustin.
Beit eldri kálfa, s.s. vetrunga, þarf að haga svipað og beit fullorðinna gripa.
Kvígur til ásetnings þurfa að vaxa vel á beitinni, ekki síður en sláturgripir, til að þær
verði afurðamiklar og endist vel. Því miður hefur reynslan oft verið sú hér á landi
að sumarbeit slátur- og ásetningsgripa hefur oft verið mjög áfátt og þrif verið eftir því.
Það kemur oft fyrir að gripirnir þyngjast Ktið sem ekkert allt sumarið, en taka út
vöxtinn á mikilli og kostnaðarsamri vetrarfóðrun. Þessu þarf að breyta, því hægt er
að láta þessa gripi þyngjast á góðri túnbeit, svo ekki sé talað um grænfóðurbeit (11).
Sauðfé
Þegar fé er sleppt út eftir burð á vorin er gott að hafa afgirt túnhólf, tiltölulega lítil,
til að sleppa því á. Á þessum tíma er gróður oft mjög lítill og þarf því að gefa því
fulla gjöf úti á meðan verið er að venja féð við beitina og á meðan beðið er eftir
að annað land spretti til að taka við fénu. Mikilvægt er að gefa góð hey með beitinni
og einnig getur verið gott að gefa grasköggla og jafnvel eitthvað af fóðurbæti, allt eftir
því hvernig spretta er og hvernig fóðrun var háttað um burðin. Ef tún eru stór er
hægt að færa féð yfir á önnur afgirt áborin túnhólf, þegar nægt gras er fyrir hendi,
á meðan beðið er eftir því að úthagi grói nægilega, en annars að setja féð beint á
úthaga, t.d. áborið land, og jafnvel gefa eitthvað með beitinni þar í byrjun. Eftir
haustgöngur, sem ættu yfirleitt ekki að vera seinna en um mánaðamótin ágúst/
september, þarf að taka lömbin undan ánum og setja þau á áborna há eða grænfóður.
Best er að hafa beitarstykkin frekar lítil og færa lömbin á milli stykkja eftir þörfum.
Strax og hægt er þarf að slátra vænustu lömbunum, en lakari lömbin þurfa að vera
minnst fimm vikur á beitinni, þar til þeim er slátrað, til að viðunandi árangur náist.
Mjög mikilvægt er að lömbin séu aldrei sett á há á túni, þar sem fé hefur verið
beitt fyrr um sumarið, vegna hættu á sníkjudýrasmiti. Ef um langar göngur og réttir
er að ræða, svo að féð hefur lítið fengið að bíta þegar það er tekið heim, er gott að
setja lömbin á úthaga fyrstu dagana áður en farið er að bata þau. Þá er gott að
lömbin hafi aðgang að úthaga, að minnsta kosti fyrst eftir að þau eru sett á ræktað
land, ef hægt er að koma því við. Þetta er mjög mikilvægt ef beitt er á grænfóður
svo sem fóðurkál, en þá er nauðsynlegt að þau hafi aðgang að öðru landi með.
Frekari upplýsingar um haustbeit sláturlamba er að finna í Búnaðarritinu 1983 (12).
Mikilvægt er að ærnar leggi ekki af á haustin. Ef tún eru nægilega stór og
spretta góð má setja ærnar á afgirta há. Sérstaklega gildir þetta um ær sem koma