Ráðunautafundur - 15.02.1991, Blaðsíða 82
-74-
Við notkun grasfræblandna virðist einkum vera leitað eftir uppfyllingu til að ná
meiri uppskeru. Helst hefur verið talað um að þær nýti mismunandi jarðvegslög, og
geti þannig náð meiri upptöku jurtanæringarefna en ein tegund og tegundir með
mismunandi vaxtarferil, eins og t.d. vallarfoxgras og Fylking vallarsveifgras, nýti mis-
munandi tíma sumars til sprettu án þess að hamla hvor annarri í nokkrum mæli. Að
auki er oft talið að tegundir í blöndu geti nýtt mismunandi ár til uppfyllingar.
Ýmislegt mælir gegn því að þessar forsendur meiri uppskeru blandna en hreinna
tegunda geti staðist. Grastegundir hafa vissulega mismunandi rótarkerfi og hafa
misgóða möguleika á að lifa í breytilegum jarðvegi. Þó mun mála sannast að engin
tegund leitar langt yfir skammt eftir næringu. Við nútíma túnrækt, og líklega hvenær
sem er, er langmestur hluti næringarefna tekin upp í efstu sentimetrum jarðvegsins.
Rætur grasa eru skammærar og myndast allar frá vaxtarpunkti í jarðvegsyfirborði
einmitt þar sem áburðarkorn lenda. Það er vandséð hvernig pína eigi t.d. túnvingul,
sem getur myndað djúpt rótarkerfi, til að sækja næringarefni djúpt í jörð ef vallarfox-
gras eigi að hafa gnægð næringarefna í efstu jarðlögum. Standist röksemdin um
gagnsemi misdjúps rótarkerfis til meiri uppskeru hlýtur hún að koma fram sem meiri
upptaka næringarefna blöndunnar en hverrar tegundar fyrir sig. í 1. töflu er sýnt
efnamagn og uppskera þurrefnis og uppskera áburðarefnanna í þrem liðum úr tilraun
1. tafla. Uppskera þurrefnis, efnamagn og uppskera áburðarefna liða með Korpu vallarfoxgras, Fylking
vallarsveifgrass og blöndu þeirra í tilraun 503-78 á Hvanneyri árið 1981.
Hkg 1. sláttur %P %Ca %K Hkg 2. sláttur %P %Ca i %P Uppskera, kg/ha Prót. P K
1. sláttur 23. júní, 2. sláttur 14. ágúst
Korpa 9,1 19,5 0,37 3,00 22,3 6,6 0,15 1,39 324 7 58
Fylking 9,4 19,5 0,37 2,66 21,9 7,2 0,18 1,31 341 7 54
K + F 7,6 20,2 0,36 2,95 17,0 7,1 0,18 1,39 274 6 46
1. sláttur 4. júlí, 2 . sláttur 26. ágúst
Korpa 37,7 13,2 0,28 1,98 8,0 11,8 0,21 1,12 592 12 84
Fylking 32,0 13,3 0,29 2,02 12,0 11,2 0,22 1,35 560 12 81
K + F 32,0 14,3 0,29 2,12 11,7 10,9 0,22 1,23 585 12 82
1. sláttur 20 júlí, 7 1. sláttui • 7. september
Korpa 54,4 9,4 0,23 1,65 3,2 12,7 0,17 1,08 552 13 93
Fylldng 44,1 9,3 0,22 1,60 10,6 12,9 0,23 1,16 547 12 83
K + F 38,7 9,0 0,21 1,56 6,3 11,0 0,22 1,15 418 9 66
1. sláttur 4. ágúst, há ekki slegin
Korpa 59,1 5,8 0,16 1,15 343 11 68
Fylking 55,0 7,6 0,19 1,35 418 10 74
K + F 34,1 7,5 0,18 1,56 256 6 53