Orð og tunga - 01.06.2016, Page 142
132 Orð og tunga
með Apertium-kerfinu geta einnig nýst í málvísindum og almennt í
lýsandi þýðingafræði.
Í 2. kafla verður sagt lítillega frá uppruna og sögu vélþýðinga. Í 3.
kafla eru útskýrðar helstu tegundir vélþýðinga og einkenni þeirra. Í
4. kafla er rakin saga íslenska Apertium-vélþýðingarkerfisins og í 5.
kafla er fjallað ítarlegar um það. Lokaorð úttektarinnar koma fram í
6. kafla.
2 Nokkur orð um uppruna vélþýðinga
Uppruna vélþýðinga má rekja aftur til fyrri hluta 20. aldar. Frakkinn
Georges Artsrouni fékk úthlutað einkaleyfi 1933 fyrir tæki sem hann
kallaði vélrænan heila og gat þýtt milli tungumála með því að nota
fjóra meginþætti: minni, lyklaborð til innskráningar, leitaraðferð og
úttak. Leitaraðferðin var reyndar bara leit í orðabók í minninu en
þetta var þó fyrsta tilraunin til einhvers sem var í ætt við vélþýðingar.
Rússinn Pjotr Petrovitsj Trojanskíj fékk einkaleyfi sama ár fyrir kerfi
sem notaði tvímála orðabók og úrvinnsluferli í þremur skrefum
(Martha Dís Brandt 2011:7–8).
Vélþýðingar tóku kipp á nýjan leik þegar Warren Weaver, deildar-
forseti náttúruvísinda hjá Rockefeller Foundation í Bandaríkjunum,
sendi minnisblað til hóps framúrskarandi vísindamanna árið 1948
(Trujillo 1999:4–5). Weaver hafði þegar árið 1947 hafið viðræður við
vísindamenn í Bandaríkjunum og Bretlandi um hvort ekki væri nauð-
synlegt að kanna hvort hin nýja tölvutækni, sem var að koma fram
á sjónarsviðið, gæti nýst við þýðingar og þá einkum við að þýða
úr rússnesku yfir á ensku (s.st.). Þetta var á dögum kalda stríðsins,
áhugi á þróun vélþýðinga var talsverður og málefnið almennt talið
brýnt. Fyrsta gerðin af vélþýðingarkerfi, sem þýddi úr rússnesku yfir
á ensku, var opinberlega kynnt vísindaheiminum árið 1954. Eftir að
þeim áfanga hafði verið náð hófst þróun tækni við vélþýðingar víða
um heim (s.st.).
Mikil bjartsýni ríkti við upphaf vélþýðinga en því skeiði lauk árið
1966 þegar svokölluð ALPAC-skýrsla var kynnt í Bandaríkjunum.
ALPAC-nefndin var nefnd sjö vísindamanna undir forystu Johns
R. Pierce frá Bell Telephone Laboratories. Nefndin var skipuð árið
1964 af Bandaríkjastjórn til að meta þann árangur sem náðst hefði
á sviði máltækni og var sjónum sérstaklega beint að vélþýðingum.
Niðurstöður skýrslunnar voru þær að vélþýðingar væru of dýrar og
tunga_18.indb 132 11.3.2016 14:41:19