Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 1

Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 1
F I M M T U D A G U R 3. M A Í 2 0 1 8 Stofnað 1913  103. tölublað  106. árgangur  Í SÍFELLDRI LEIT AÐ SJÓNARHORNI LÍFIÐ LÆTUR EKKERT STÖÐVA SIG SJÁLF- SIGLANDI LEIGUBÁTAR VERK ÞURÍÐAR 12 VIÐSKIPTAMOGGINNNÝ LJÓSMYNDABÓK 80 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Nú er ljóst að kostnaður við uppbyggingu nýrrar hótelbyggingar við hlið Hörpu í Austurhöfn mun fara milljarða fram úr þeim áætlunum sem lágu til grundvallar þegar ákveðið var að ráðast í verk- efnið. Ekki er útilokað að framkvæmdakostnaður við bygginguna muni slaga í 20 milljarða króna. Í hótelbyggingunni mun Marriott Edition hótelkeðjan reka 250 herbergja, fimm stjörnu hótel. Árið 2016 greindi Morgunblaðið frá því að kostnaður við bygginguna yrði 130 milljónir bandaríkjadala eða jafnvirði 16 milljarða króna, miðað við gengi gjaldmiðlanna á þeim tíma. Krón- an hefur styrkst verulega frá þeim tíma. Mun sú gengisstyrking einnig hafa haft áhrif á áætlana- gerðina og fjármögnun verkefnisins enda ljóst að stór hluti hennar mun koma frá fyrirtækjum vest- anhafs. Aðstandandi verkefnisins, Cambridge Plaza Hotel Company ehf., hefur ekki viljað tjá sig um þá stöðu sem upp er komin, né heldur Arion banki sem er aðallánveitandi til verkefnisins. Hinn mikli kostnaður sem nú virðist munu falla til við verk- efnið, og ekki var fyrirséður, veldur talsverðum vandræðum og munu forsvarsmenn verkefnisins nú vinna að því að tryggja aukið fjármagn til þess. Lítill áhugi mun vera fyrir því hjá hinum erlendu fjárfestum að leggja aukna fjármuni til verkefn- isins, umfram það sem lagt var upp með á sínum tíma og þá er verkefnið farið að vega óþægilega þungt í lánabókum Arion banka sem mun ekki vera spenntur fyrir því að auka enn á áhættu sína af verkefninu. »ViðskiptaMogginn Hótelið sífellt dýrara  Kostnaður við byggingu nýs hótels við hlið Hörpu hefur hækkað gríðarlega  Stefnir í að framkvæmdin fari að minnsta kosti fjóra milljarða fram úr áætlunum Útivistarfólk sækir í fjöll og firnindi allan ársins hring, ekki síst í góðu veðri á vorin þegar dag er farið að lengja. Alltaf er þó þörf á að fara að öllu með gát og löngu ljóst að maðurinn má sín lítils gegn náttúruöflunum. Félagar sem lögðu leið sína á Höfðabrekkuafrétt í fyrradag gengu fram á allstórt snjó- flóð, sem fallið hafði úr Rjúpnagilsbrún upp undir Mýrdals- jökli, og áætla þeir að flóðið hafi verið um 100 metrar á breidd. Fleiri spýjur voru á þessum slóðum og ekki annað að gera en að breyta upphaflegri ferðaáætlun. Af Rjúpnagilsbrún er mikið útsýni yfir Rjúpnafell, Kötluskriðjökul, Huldufjöll og undirlendi Suðausturlands. Morgunblaðið/RAX Aðgát skal höfð í ferðum á fjöll og jökla „Samgöngumálin brenna á öllum Vestlendingum,“ segir Páll S. Brynjarsson, framkvæmda- stjóri Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi, í samtali við Morg- unblaðið um þau mál sem íbúar á Vesturlandi setja á oddinn í aðdraganda sveitarstjórn- arkosninga. Vísar Páll þar bæði til framkvæmda á forræði ríkisins sem og viðhaldsframkvæmda í einstaka sveitarfélögum. Eins er mjög horft til framtíðarskipulags öldrunar- þjónustu. »34 Samgöngur og við- hald í brennidepli Páll S. Brynjarsson MJÚKA DEILDIN ÍSLENSK HÖNNUN SJÚKRAÞJÁLFARI AÐSTOÐAR SÆNGUR- FATNAÐUR SÆNGUROG KODDAR HEILSURÚM ALLARSTÆRÐIR FUSSENEGGER Kristín Gísladóttir sjúkraþjálfari aðstoðar við val á rúmdýnum. Í DAG 16-18 Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.