Morgunblaðið - 03.05.2018, Qupperneq 92
FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 123. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Ummælin óskynsamleg
2. Óþægilegasti tími sem ég hef lifað
3. „Hann glímdi við erfiðar hugsanir“
4. Kaffihús kemur í stað sjoppu
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Opnunarhátíð Listar án landamæra
í Reykjavík fer fram í Tjarnarsal Ráð-
húss Reykjavíkur í dag kl. 17. Dagur
B. Eggertsson borgarstjóri setur há-
tíðina og fram koma DJ Aron Kale –
listamaður hátíðarinnar í ár, MC Ís-
björn, Hljómsveitin Eva, Tjarnar-
leikhópurinn, JóiPé og Króli og Embla
og Gunnar and the Rest en kynnar
opnunarhátíðarinnar verða Andri
Freyr Hilmarsson úr þáttunum Með
okkar augum og leikkonan Steiney
Skúladóttir. Einkasýning Arons Kales
í Ráðhúsinu verður opnuð um leið og
hátíðin sjálf og kl. 19 einkasýning
myndlistarkonunnar Láru Lilju Gunn-
arsdóttur í Gallerí Porti á Laugavegi.
Listahátíðin List án landamæra verð-
ur haldin víða um Reykjavík fram til
13. maí og á henni er lögð áhersla á
list fatlaðra listamanna. Í ár er sér-
stök áhersla á tímatengda list á borð
við leiklist, tónlist, sviðslistir og
vídeóverk.
List án landamæra
sett í Tjarnarsal
Viðar Víkingsson kvikmyndahöf-
undur ræðir um formsköpuði í kvik-
myndalist, Hitchcock, Bresson, Ozu,
Lang og fleiri, og sýnir dæmi úr
merkum kvikmyndum í Hannesar-
holti í kvöld kl. 20. Þær eru allt frá
tímum þöglu kvikmyndanna til okkar
daga, segir um viðburðinn á vef
Hannesarholts og að Viðar muni leit-
ast við að sýna hvernig heimssýn
þessara höfunda skilaði sér í því sem
kvikmyndalistin ein fái tjáð. Viðar
lauk námi í kvikmyndaleik-
stjórn frá IDHEC,
kvikmyndaskóla
franska rík-
isins, og hefur
gert fjölda
sjónvarps-
mynda.
Fjallar um formsköp-
uði í kvikmyndalist
Á föstudag og laugardag Suðvestan 10-18 m/s og él eða slyddu-
él. Hiti 0 til 5 stig. Þurrt og bjart norðaustan- og austanlands með
hita að 9 stigum yfir daginn.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi suðvestanátt, víða 10-15 m/s og él,
en þurrt og bjart norðaustantil á landinu. Hiti 1 til 8 stig, mildast
norðaustanlands.
VEÐUR
Sveinbjörn Claessen hefur
ákveðið að láta staðar numið
í körfunni en hann lék með
ÍR allan sinn feril. Í viðtali við
Morgunblaðið greinir hann
frá því að hann hafi hafnað
ýmsum tilboðum frá öðrum
félögum í gegnum árin þegar
ÍR var í varnarbaráttu í deild-
inni. Sjaldgæft er núorðið að
öflugir leikmenn spili ávallt
fyrir uppeldisfélag sitt nema
það sé iðulega í fremstu röð.
»2-3
Síðasti félags-
maðurinn?
Prinsessan og drottningin voru í
aðalhlutverkum hjá Haukum í odda-
leiknum gegn Val um Íslandsmeist-
aratitil kvenna í körfuknattleik. Bene-
dikt Guðmundsson, körfubolta-
sérfræðingur Morgunblaðsins,
skrifar um nýkrýnda Íslandsmeistara
Hauka í pistli sínum í blaðinu í dag.
»4
Prinessan og drottn-
ingin í Haukum
Íslandsmót kvenna í knattspyrnu
hefst í kvöld þegar Stjarnan og
Breiðablik mætast í Garðabæ. Ás-
gerður Stefanía Baldursdóttir, fyr-
irliði Stjörnunnar, er komin aftur í
slaginn eftir ársfrí og segir að liðið
stefni á Íslandsmeistaratitilinn þó að
því sé ekki spáð sérstöku gengi. „Við
eigum fullt erindi í það,“ segir Ás-
gerður. »1
Segir Stjörnuna stefna
á Íslandsmeistaratitil
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Valsstúlkan Auður Sveinbjörns-
dóttir Scheving varði markið hjá 3.
flokki karla í A-liði Vals þegar þeir
urðu Reykjavíkurmeistarar í knatt-
spyrnu um helgina. Auður lék fjóra
leiki með strákunum á mótinu, þar
af síðasta leikinn gegn Fylki á laug-
ardaginn þar sem hún varði m.a.
vítaspyrnu í 3:1 sigri Vals. „Strák-
arnir eru ekki með markmann á 3.
flokks aldrinum og fengu því mig til
liðs við sig,“ segir Auður.
Með sérstöku leyfi frá KSÍ geta
stelpur spilað með strákum í yngri
flokkum, einmitt upp í 3. flokk sem
er aldurinn 14 til 15 ára. „Það er dá-
lítið öðruvísi að spila með þeim en
stelpunum. Þeir eru sterkari og það
er mikið meira að gera í leiknum.
Reyndar er Valur með svo gott lið í
3. flokki að það var ekkert svo mikið
að gera hjá mér í markinu,“ segir
Auður glettin.
Strákarnir tóku því vel að fá
stelpu í liðið. „Ég var frekar stress-
uð fyrir fyrsta leikinn en þeir tóku
mér mjög vel,“ segir Auður sem býst
við að taka nokkra leiki í viðbót með
strákunum í sumar.
Auður er í 10. bekk í Háteigs-
skóla. Hún byrjaði að æfa fótbolta 6
ára og hefur æft á fullu síðan, síð-
ustu ár nær eingöngu sem mark-
maður. „Markið varð ekki alveg
strax minn staður en á Pæjumótinu í
Vestmannaeyjum, þegar ég var 10
ára, skiptumst við á að vera í marki
og mér gekk svo vel að mamma
spurði hvort ég vildi kannski prófa
að fara á markmannsnámskeið sem
ég gerði. Mér fannst það strax mjög
gaman og finnst enn,“ segir Auður
sem hefur líka gaman af því að spila
úti en í 4. flokki spilaði hún með A-
liðinu í marki og B-liðinu úti sem
henni fannst líka mjög gaman.
Auk þess að spila með strákun-
um í 3. flokki ver Auður markið hjá
2. flokki kvenna hjá Val og er til vara
í meistaraflokki. Þá hefur Auður
verið í U16- og U17-landsliðum
kvenna í fótbolta. Markmið hennar
er að komast í U19-landsliðið … „og
hverja dreymir ekki um að vera í A-
landsliðinu,“ segir hún og það er
ljóst hvert hugurinn stefnir.
Spurð hvað góður markmaður
þarf að hafa svarar Auður ákveðið:
„Hann þarf að fórna sér í boltann,
láta bara vaða og vera á réttum stað
á réttum tíma.“
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Óhrædd Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving segir góðan markmann þurfa
að fórna sér í boltann og láta bara vaða. Hún ver markið hjá Val.
Auður Sveinbjörnsdóttir Scheving ver knattspyrnumarkið af hörku hjá strákum og stelpum í Val
Metnaðarfullur
markmaður
Auður æfði ballett frá þriggja til 12
ára aldurs hjá móður sinni, Brynju
Scheving ballettkennara, en hún
segir mömmu sína hafa séð strax
að hún væri boltastelpa frekar en
ballettstelpa. Afi Auðar er Heimir
Guðjónsson sem var markmaður
KR í fótbolta á árunum 1955 til
1965 og landsliðsmaður. „Hann
hefur kennt mér margt og ég held
að hann sé mjög stoltur af mér
eins og öll fjölskyldan, þau eru
mínir helstu stuðningsmenn. Þá á
ég Rajko, markmannsþjálfara Vals,
mikið að þakka. Hann sá eitthvað í
mér þegar ég var yngri og tók mig
heilt sumar nánast í einkaþjálfun,
sem ég fékk mjög mikið út úr.“
Auður hefur lítinn tíma fyrir
annað en að verja markið enda er
fótboltinn áhugamál hennar núm-
er eitt, tvö og þrjú.
Betri með bolta en í ballett
AFINN VAR ÞEKKTUR MARKMAÐUR MEÐ KR