Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Ég trúði á þessa hugmynd og þrátt
fyrir að þetta sé búin að vera grýtt
leið að mörgu leyti þá er ég enn sann-
færðari eftir að ég opnaði og finn við-
tökurnar sem maturinn fær,“ segir
Rita en staðurinn var opnaður form-
lega um síðustu helgi eftir að síðustu
leyfin duttu í hús. „Við auglýstum
ekki neitt eða þannig. Bara opnuðum
dyrnar. Fyrsta daginn var rólegt en
þó mjög áhugavert að fá viðbrögðin.
Daginn eftir var mikið að gera og ég
ímynda mér að margir hafi rekið
augun í staðinn deginum áður og orð-
ið forvitnir. Allavega þá var mikið að
gera og gekk á ýmsu eins og gengur
og gerist þegar staður er nýopnaður
en það kom ekki að sök og viðbrögð
gestanna voru frábær,“ segir Rita
um fyrstu dagana.
Lengstan tíma tók að finna rétta
húsnæðið en það fann Rita síðasta
haust. „Ég vissi um leið að þetta var
rétti staðurinn,“ segir hún en Grand-
inn státar nú af einstaklega skemmti-
legri veitingamenningu og fjöl-
breyttu úrvali veitingastaða.
Lambið er í forgrunni og boðið er
upp á vefjur að austurlenskum hætti
en á íslenska vísu. „Við leggjum gríð-
arlega mikið upp úr hráefninu og að
það sé allt saman íslenskt – eða eins
og kostur er. Mér finnst það skipta
máli. Innfluttir tómatar eru ódýrari í
innkaupum en þetta er nokkuð sem
ég legg áherslu á.“ Verðið er líka gott
og því ljóst að Reykvíkingar (og nær-
sveitungar) eru komnir með áhuga-
verðan valkost.
Stærsti höfuðverkurinn var að
finna leið til að gera vefjur úr ís-
lensku lambakjöti. „Það varð úr að
það tókst í samstarfi við Norðlenska
en við notum eingöngu úrvals lamba-
kjöt í verkið. Hins vegar vandaðist
málið þegar kom að járnstönginni en
yfirleitt kemur stöngin með kjötinu
en það töldum við ekki heppilegt.
Hér er um ákveðna nýsköpun að
ræða enda þótti okkur glórulaust að
senda kjöt á teini á milli landshluta
og samkvæmist það engan veginn
hugmyndum okkar um hagkvæmni
og sjálfbærni. Eftir miklar pælingar
fram og til baka var það Austfirðing-
urinn og uppfinningamaðurinn
Smári Tómasson sem hannaði sér-
staka götunarvél fyrir mig,“ en hérna
er um að ræða tímamótahönnun
ólíka því sem áður hefur þekkst í
þessum geira.
Yfirkokkur staðarins er heldur
enginn aukvisi. Hann heitir Glenn
Moyle og er nýsjálenskur, sem þýðir
að hann þekkir lambakjöt eins og lóf-
ann á sér. „Glenn hefur verið hér á
landi í 13 ár og smellpassar inn.
Hann hefur unnið um allan heim og
þekkir þessa heildarhugmynd vel.“
Hönnun staðarins vekur líka at-
hygli enda er hann áberandi og út-
pældur að sjá. Skringilegar merking-
ar blasa við en þegar betur er að gáð
(fyrir okkur sem ólumst upp í sveit)
er um að ræða mörk í eyrum en slík-
ar merkingar eru klipptar í eyru
lamba og hefur hver bær sitt sér-
staka mark. Þessi hefð er afar sér-
stök og merkileg og því fallegt að sjá
hvernig henni er hyglað í hönnun
staðarins.
Lambið er best
Á Grandanum hefur verið opnaður nýr veitingastaður sem kallast Lamb Street Food og er – eins og nafnið bendir til – staður sem
býður upp á afar snjalla blöndu af því sem kallast street food eða götumatur og er oft skilgreint sem vandaða útgáfan af skyndibita
og svo íslensku hágæðahráefni þar sem lambið er í forgrunni. Í brúnni stendur hugsjónakonan Rita Didriksen sem ákvað að venda
kvæði sínu í kross og opna veitingastað en hún starfaði sem framhaldsskólakennari fram til ársins 2015 þegar hún ákvað að fara út í
veitingarekstur á samt eiginmanni sínum Ásmundi Pálmasyni.
Morgunblaðið/Hari
Öflugt teymi Rita Didriksen og
Glenn Moyle, yfirkokkur staðarins.
SJÁ SÍÐU 58
Lodge járnpanna, 26 cm
Verð 8.900 kr.
laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.isÁrmúla 24 - s. 585 2800
ÚRVAL ÚTILJÓSA