Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Eitt helsta tákn kalda stríðsins,
bandaríska sprengjuflugvélin B-52
Stratofortress, kemur til landsins í
dag. Tilgangur heimsóknarinnar er
að taka þátt í minningarathöfn við
Grindavík þegar afhjúpað verður
minnismerki um bandarísku
sprengjuflugvélina „Hot Stuff“ sem
var af gerðinni B-24 Liberator, en
hún fórst 3. maí 1943 í Fagradals-
fjalli á Reykjanesskaga.
Í slysinu fórust allir um borð, alls
14 menn, nema stélskyttan. Sá
komst lífs af við illan leik. Á meðal
þeirra sem týndu lífi var hershöfð-
inginn Frank M. Andrews, sem á
þeim tíma var yfirmaður alls herafla
Bandaríkjanna í Evrópu.
Áhöfn B-52-vélarinnar mun fljúga
heiðursflug yfir svæðið meðan á
minningarstund stendur og í kjölfar-
ið lenda á Keflavíkurflugvelli. Vélin
mun, samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins, stoppa hér á landi í fá-
eina daga.
Verður þetta í þriðja skipti sem
langdræg sprengjuflugvél af gerð-
inni B-52 sækir landið heim. Gerðist
það fyrst árið 1995 og komu þá tvær
vélar af þeirri gerð til að taka þátt í
heræfingunni Norðurvíkingur.
Æfðu þær lágflugsárásir á Reykja-
nesi ásamt annarri langdrægri
sprengjuvél, B-1 Lancer. Tveimur
árum seinna, á heræfingu Norður-
víkings í júlí 1997, komu aftur tvær
B-52-sprengjuvélar. Voru þær meðal
annars notaðar til að varpa gervi-
tundurduflum í sjóinn út af Reykja-
nesi auk þess sem þær fóru einnig í
hlutverk óvinaflugvéla. Reyndu þær
þá að komast inn fyrir loftvarnir Ís-
lands í þeim tilgangi að gera loft-
árásir á skotmörk á jörðu niðri.
Framleiddar árin 1952-1962
B-52 er hönnuð og framleidd af
bandaríska flugvélaframleiðandan-
um Boeing og fór hún fyrst í þjón-
ustu flughersins á sjötta áratug síð-
ustu aldar. Á því tíu ára tímabili sem
vélarnar voru framleiddar, árin
1952-1962, voru alls 744 fullkláraðar.
Þotur þessar eru engin smásmíði,
eða um 50 metrar á lengd með 56
metra vænghaf. Eru þær knúnar
áfram af átta hreyflum og getur hver
vél borið 32 tonn af sprengjum, en
flugdrægni þeirra er yfir 14.000 km.
Risi úr kalda stríðinu til Keflavíkur
Ljósmynd/Baldur Sveinsson
Hermáttur Hinn 17. júlí 1995 komu í fyrsta skipti til Íslands B-52 sprengjuvélar og tóku þær þátt í Norðurvíkingi.
Langdræg bandarísk sprengjuflugvél af gerðinni B-52 sækir landið heim Tilgangur heimsóknar að
taka þátt í minningarathöfn á Reykjanesi Getur borið vel yfir 30 tonn af sprengjum og eldflaugum
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Atvinnuvegaráðuneytið hefur út-
hlutað fyrstu tollfrjálsu kvótunum
fyrir innflutning á búvörum frá Evr-
ópusambandinu. Kvótarnir eru fyrir
tímabilið frá 1. maí til ársloka og
greiða innflytjendur ríkinu um 500
milljónir fyrir.
Auknir kvótar fyrir tollfrjálsan
innflutning frá Evrópusambandinu
tóku gildi nú um mánaðamótin.
Ráðuneytið úthlutaði í ársbyrjun
tollkvótum fyrir leyfilegan innflutn-
ing í ár, samkvæmt eldri samningi,
og í gær var tilkynnt hvaða tilboðum
hefði verið tekið fyrir innflutning
samkvæmt nýja samningnum, út ár-
ið. Aðeins er úthlutað kvóta fyrir
átta mánuði eða um tveimur þriðju
hlutum af tollfrjálsum árskvóta. Út-
hlutað var 665 tonnum af kjöti og 103
tonnum af osti. Tekið var hæstu til-
boðum, innan þeirra reglna sem
gilda um útboðið, og fær ríkið um
500 milljónir í kassann.
Samkvæmt upplýsingum frá at-
vinnuvegaráðuneytinu má búast við
að tollkvótunum verði úthlutað tvisv-
ar á ári í framtíðinni.
Um þessi mánaðamót breyttist
tollskráin einnig, vegna tollasamn-
ingsins við ESB. Krónutölutollar af
mikið unnum búvörum falla niður.
Það á við um pitsur, pítur, pasta,
súkkulaðikex og fleira.
Þessi aðgerð ætti að lækka verð á
þessum vörum út úr búð en mismun-
andi eftir vörum því tollarnir hafa
verið misjafnir, allt frá 5 krónum og
upp undir 100 krónur á hvert kíló.
Frjáls álagning er á þessar vörur.
Greiða ríkinu 500 milljónir
króna fyrir nýju tollkvótana
Pitsur, pasta, pítur og súkkulaðikex á að lækka í verði
Morgunblaðið/Ásdís
Pitsa Mikið unnar innfluttar land-
búnaðarvörur eiga að lækka í verði.
Atvinnuhúsnæði á Laugavegi 95-97 í
Reykjavík hefur verið rifið niður síð-
ustu daga vegna uppbyggingar hót-
els. Á reitnum verður rúmlega 100
herbergja hótel á vegum Center-
Hotels-keðjunnar. Á jarðhæð verður
verslun og þjónusta.
CenterHotels-keðjan er nú með
sex hótel í miðborginni; Skjaldbreið
við Laugaveg, Klöpp við Klappar-
stíg, Þingholt við Þingholtsstræti,
Arnarhvol við Seðlabankann, Plaza
við Ingólfstorg og Miðgarð við
Hlemm. Fram kemur á vef hótel-
keðjunnar að áformað sé að opna tvö
ný Center-hótel í miðborginni í ár.
Annað hótelið verður á Laugavegi
95-99 en hitt á Héðinsreit.
Endurbyggingin á Laugavegi 95-
99 mun setja svip á götuhornið.
Motus var með starfsemi í húsinu en
flutti á Höfðatorg. baldura@mbl.is
Rýmt fyrir hóteli
Morgunblaðið/Hari
Á Laugavegi CenterHotel-keðjan hefur vaxið hratt síðustu ár.
Niðurrif á Laugavegi vegna upp-
byggingar á sjöunda CenterHótelinu
Höfum gaman af 'essu
Kynntu þér Vinahópinn á olis.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf Sími 555 3100 www.donna.is
„Veist þúað skilgreining
á sótthitabreytist eftir aldri?
Thermoscaneyrnahita-
mælirinnminnveit það.“
Braun Thermoscan
eyrnahitamælar fást í öllum
lyfjaverslunum
ThermoScan® 7