Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 81
MENNING 81
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
Stutt heimildamynd, Even Aster-
oids are Not Alone eftir Jón Bjarka
Magnússon, verður frumsýnd á al-
þjóðlegu heimildamyndahátíðinni
Ethnocineca sem fer fram í Vín 4. til
10. maí. Þar er kvikmyndin, sem er
17 mínútna löng, tilnefnd til ESSA-
verðlaunanna sem tileinkuð eru ung-
um kvikmyndagerðarmönnum.
Even Asteroids are Not Alone
fjallar um það hvernig vinátta og
traust myndast í íslenska fjölspil-
unartölvuleiknum Eve Online.
Hundruð þúsunda leikmanna grafa
eftir málmum, stunda viðskipti og
berjast hver við annan í tölvugerð-
um vetrarbrautum. Í hinni víðáttu-
miklu og fjandsamlegu veröld Nýju
Eden er engum treystandi. En
hvernig eignast maður vini í fjar-
lægum víddum himingeimsins? Hér
tvinnast landslag og umhverfi tölvu-
leiksins sjálfs saman við reynslusög-
ur fjórtán ósýnilegra Eve Online-
spilara hverra sögur bera vitni um
möguleika tölvuleikja til að mynda
ný samfélög og brúa bilið á milli ein-
staklinga heimsálfanna á milli.
Jón Bjarki Magnússon (f. 1984) er
skáld og rithöfundur og hefur starf-
að sem blaðamaður. Hann lærði rit-
list í Háskóla Íslands og stundar nú
mastersnám í sjónrænni mannfræði
í Freie Universität í Berlín.
Kvikmynd um Eve Online tilnefnd
Geimskip Stilla úr Even Asteroids are Not Alone, úr leiknum Eve Online.
Ópera Daníels Bjarnasonar tón-
skálds, Bræður, er tilnefnd til hinna
virtu dönsku Reumert-verðlauna í
flokknum „Ópera ársins“. Óperan
verður sýnd á Listahátíð í Reykjavík
9. júní næstkomandi, undir stjórn
tónskáldsins með Jacques Imbrailo,
Marie Arnet, Selmu Buch Ørum
Villumsen, Elmar Gilbertsson, Þóru
Einarsdóttur, James Laing, Odd
Arnþór Jónsson, Jakob Christian
Zethner og Hönnu Dóru Sturludótt-
ur í aðalhlutverkum.
Óperan Bræður var frumflutt af
Jósku óperunni sem liður í Bier-
þríleik Tónlistarhússins í Árósum í
fyrra þegar Árósar voru ein af
menningarborgum Evrópu.
Kasper Holten leikstýrði upp-
færslunni í sviðsmynd Steffen Aarf-
ing, líbrettóið skrifaði Kerstin
Perski og André de Ridder stjórnaði
söngvurum, kór og Sinfóníu-
hljómsveit Árósa.
Reumert-verðlaunin eru kennd
við hinn kunna leikara Poul Reu-
mert (1883-1968), eiginmann Önnu
Borg leikkonu. Verðlaunin verða af-
hent 9. júní, sama kvöld og Daníel
stjórnar uppfærslunni á Listahátíð.
Bræður keppa um verðlaunin við
Valkyrien, sem Den Ny Opera setti
upp, og Silent Zone sem CPH Opera
Festival setti á svið.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Tónskáldið Ópera Daníels Bjarna-
sonar keppir um dönsk verðlaun.
„Bræður“
tilnefnd til
Reumerts
Tónleikar í hádegistónleikaröðinni Á
ljúfum nótum verða haldnir kl. 12 í
dag í Fríkirkjunni í Reykjavík og
bera þeir yfirskriftina „Tunglið og
ég“. Á þeim verður flutt tónlist eftir
franska tónskáldið Michel Legrand
sem orðinn er 86 ára og er hvað
þekktastur fyrir söngleiki sína og
kvikmyndatónlist.
Flytjendur eru söngkonan Heiða
Árnadóttir og Gunnar Gunnarsson
píanóleikari og á efnisskránni verða
m.a. lögin „What are you doing the
rest of your life“ úr kvikmyndinni
The Happy Ending, „You must be-
lieve in spring“ úr kvikmyndinni The
Young Girls of Rochefort, „The
summer knows“ úr kvikmyndinni
Summer of ’42 og „I will wait for
you“ úr The Umbrellas of Cher-
bourg.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. og er
athygli vakin á því að ekki er tekið
við greiðslukortum.
Tónskáld Michel Legrand á sínum
yngri árum en hann fæddist 1932.
Flytja lög
Legrands í
Fríkirkjunni