Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 60
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
Ragnar Eyþórsson mætti aftur til leiks eftir að
hafa sigrað á fyrsta Íslandsmótinu í fimmaura-
bröndurum í morgunþættinum Ísland vaknar
á K100. Í fyrstu umferð bar hann sigurorð af
Ólafi Teiti Guðnasyni, í bráðabana. Sá skoraði
á Baldvin Jónsson sem mætti Ragnari í bráð-
skemmtilegum og spennandi úrslitaleik á
þriðjudaginn.
Fyrir þá sem misstu af þættinum, og hafa
ekki séð hann á netinu, birtum við alla brand-
arana sem voru fluttir.
Baldvin: Þegar ég kom hingað inní þetta
hljóðver þá var það mín upplifun að þetta var
eins og að fara inn í golfskála.
Það er talað svo mikið um „green“.
Ragnar: Það var sumardagurinn fyrsti og ég
vildi vera sumarlegur. Þannig að ég snyrti á
mér skeggið. (Leggur poka með hárum á borð-
ið).
Hér er afraksturinn.
B: Það var þannig í vor að það kom elding í
Mosfellsbæ.
Svo kom Afturelding.
R: Fyrst við erum að tala um fótbolta. Ég
ætlaði einmitt að stofna fótboltafélag vaðfugla.
Það er svona andspyrnuhreyfing.
B: Mér líður eins skyri.
Ég er hræður
R: Ég fékk myndavél. En mér finnst svo
skrítið að á öllum myndunum er helmingurinn
brosandi og hinn helmingurinn í fýlu.
Þetta er bipolaroid myndavél.
B: Ef maður borðar mikið sælgæti þá getur
maður fengið Nóa kropp.
R: Hvar vaxa snjókallafóstur?
Í frostlegi.
B: Ég á dótturdóttur sem heitir Lína.
Þegar ég passa hana þá er ég línuvörður
R: Ætli séu til íþróttasálfræðingar sem sér-
hæfa sig í boltameðferð?
B: Er það rétt að fráskilið fólk sofi í skilrúm-
um?
R: Ég sá drykkfelldan mann með Apple
tölvu. Það var eitthvað bogið við hann.
Þetta var Makkaróni.
B: Sá sem gerir við rafmagn er rafvirki, sá
sem gerir við bíla er bifvélavirki.
Er þá læknir ekki mannvirki?
R: Mér finnst að samhliða Reykjavík-
urmaraþoninu ætti að vera spretthlaup á Sel-
tjarnarnesi.
Nesquick.
B: Er það rétt að efnað fólk fari á dýra spít-
ala?
R: Ég lenti í ærsladraug. Hann var yfir kjör-
þyngd. Meiri svona ærslabelgur.
B: Hvernig vitum við að Google er kona?
Hún veit allt.
Baldvin fékk ekki stig fyrir þennan og
Ragnar gat því komist yfir en klúðraði því:
R: Ég ætlaði í andaglas en fann bara bolla.
Þannig að það var málamiðlun.
Staðan því enn 8:8 og einn brandari eftir á
hvorn.
B: Svo var það skúringakonan sem þurfti að
hagræða.
Hún fækkaði fötum.
R: Forsetinn á undan Guðna Th. hann hann-
aði sérstakt tæki fyrir sauðfé.
Ólíkindatól.
Hér er jafnt og því þarf bráðabana og þar
var pressan á áskorandanum sem náði sér ekki
á strik.
B: Ég fór í gær og keypti lak á rúmið.
Það lak.
Ragnar gat því tryggt sér titilinn með næsta
brandara.
R: Þetta minnir mig á þegar ég var að keppa
í ávaxtakappáti. Það var jafnt.
Þannig að það var bráðabanani!
Þarmeð tryggði Ragnar sér sigurinn og
heldur bikarnum. Það er þó óvist hvort hann
nái að leggja næsta andstæðing því Baldvin
skoraði á Einar Bárðason og hann mætir til
leiks í byrjun maí. logibergmann@k100.is
Skúringakonan sem fækkaði fötum
Ragnar Eyþórsson mætti aftur
til leiks eftir að hafa sigrað á
fyrsta Íslandsmótinu í fimm-
aurabröndurum í morgunþætt-
inum Ísland vaknar á K100.
K100/Runarfreyr
Fyndnir Baldvin Jónsson og Ragnar Eyþórsson slá á létta strengi, að venju.
Það má spyrja sig að því hversu
mikið er skrafað í köldu pottunum
til samanburðar við heitu pottana,
þar sem samfélagsmálin eru
gjarnan krufin og rædd. Það er
nefnilega þannig að þeir sem
skella sér í ískalt bað eru jafnan
að einbeita sér að önduninni til að
ná yfirvegun í pottinum, frekar en
að spjalla um heima og geima á
þeirri sömu stundu. Það er í það
minnsta upplifun undirritaðrar. Þó
er það þannig að Íslandsmetið í ís-
baði er rúmar 20 mínútur, en það
á Vilhjálmur Andri Einarsson.
Fyrsta Wim Hof-stöðin
á Íslandi
Viljhálmur Andri sat í keri fullu
af klökum og ísköldu vatni og
spjallaði við fréttamenn meðan
hann taldi niður í nýtt met í fyrra.
Hans saga var saga þjáninga og
verkja, þar til hann kynntist ís-
böðum. Þór Guðnason sagði svip-
aða sögu í Magasíninu á K100 en
hann er einn þeirra frumkvöðla
sem reka Primal-stöðina sem var
opnuð á dögunum. Auk sundlaug-
anna eru nokkrar líkamsræktar-
stöðvar farnar að bjóða upp á köld
böð, en Primal sérhæfir sig í
þeirri æfingaraðferð að blanda
saman köldum böðum og öndunar-
æfingum til að auka kuldaþolið.
Sársaukaþolið eykst
við ísböðun
„Það sem öndunaræfingarnar
gera fyrir kalda baðið er að þær
losa fyrst og fremst um koltvísýr-
ing úr kerfinu. Með því að losa um
koltvísýring í kerfinu þá hækkum
við PH-gildi líkamans þannig að
við verðum basískari. Og þegar
það gerist, þá minnkar í raun til-
finning okkar fyrir sársauka. Eða
sársaukaþolið eykst þannig að við
þolum betur við að vera í kalda
vatninu,“ útskýrir Þór í viðtalinu.
Hann segir að maður komist upp
á annað þrep í ísböðun þegar mað-
ur er farinn að taka öndunar-
æfingarnar með.
Hættur að taka
ADHD- og astmalyf
Sjálfur segir Þór að Wim Hof-
tæknin hafi breytt lífi sínu, at-
hyglin hafi skerpst til muna eftir
að hann fór að stunda öndun og
köld böð. Hann segist hættur að
taka ADHD-lyfin sín og eins hefur
hann losað sig við astmalyfið sem
hann tók við áreynsluastma. Þór
er eini Íslendingurinn sem hefur
lokið kennararéttindum hjá Wim
Hof, en sú aðferð segir hann að
byggist á þremur súlum, kulda-
þjálfun, öndun og staðfestu. „Því
maður þarf mikla staðfestu. Mað-
ur þarf að vera grjótharður til að
fara ofan í kalt bað á hverjum
degi,“ bætir Þór við.
hulda@k100.is
Íslandsmetið rúmar 20 mínútur
Ísböð hafa rutt sér til rúms á skömmum tíma hérlendis og er mikill uppgangur í sjóböðum og kælingu sér til heilsubótar. Almenn-
ingur er farinn að sækja í sjósund í meira mæli, en segja má að hér áður fyrr hafi það verið sérvitringarnir sem skelltu sér í hafið eða
löbbuðu berfættir í snjónum. Þróunin hefur leitt til þess að við sundlaugar landsins er nú gjarnan boðið upp á böðun í köldum pott-
um og þannig geta sundlaugagestir sest í kaldan pott í nokkrar sekúndur, jafnvel mínútur. En það er þá líka fyrir þá allra hörðustu.
Á ís Wim Hof hefur komið hingað til lands og
synti hann meðal annars í Jökulsárlóni ásamt
Þór Guðnasyni, fyrsta Wim Hof-kennaranum
hérlendis, sem hér sést.
Öndunar- og kuldaæfingar Í æfingum er m.a. farið út í
náttúruna, en tengingin við náttúruna leikur stórt hlut-
verk í Wim Hof-iðkun.
Ljósmynd/Wim Hof á Íslandi