Morgunblaðið - 03.05.2018, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, kom fyrir fund
velferðarnefndar Alþingis í gær-
morgun vegna umræðu um meint
afskipti hans af störfum barna-
verndarnefnda á höfuðborgarsvæð-
inu. Fundurinn var lokaður al-
menningi og fjölmiðlum en
ákvörðun um það var tekin eftir að
nefndinni barst bréf frá lögfræðingi
föðurafa í málinu þar sem áhyggj-
um var lýst af því að fundurinn yrði
opinn.
Bragi Guðbrandsson sagði við
mbl.is eftir fundinn að hann væri
ánægður að hafa fengið tækifæri til
að útskýra sína hlið mála. Bragi
kveðst hafna því að hann hafi farið
út fyrir starfssvið sitt í máli sem
var til meðferðar hjá Barnavernd
Hafnarfjarðar, en það var niður-
staða skrifstofu félagsþjónustu í
febrúar. „Ég fór vel yfir það með
nefndarmönnum. Síðan er það
þeirra að meta hvort þau kaupi
þær skýringar eða ekki, það er
enginn dómari í sjálfs sín sök,“
sagði Bragi við mbl.is en hann þótti
ekki hafa brotið lög í umræddu
máli.
Hann telur sig eiga fullt erindi
sem fulltrúi Íslands í Barnarétt-
arnefnd Sameinuðu þjóðanna
næstu fjögur ár. „Þetta hefur engin
áhrif á það. Við búum í réttarríki
og það verður að sýna fram á ein-
hverja sök áður en slíkar ákvarð-
anir eru teknar. Ég treysti á reglur
réttaríkisins í þessu máli,“ sagði
Bragi. „Ég myndi fagna ef óháð út-
tekt yrði gerð á mínum embætt-
isverkum eins og ég hef kallað eft-
ir,“ sagði hann ennfremur.
Halldóra Mogensen, formaður
velferðarnefndar, sagði að fundur-
inn með Braga hefði verið gagn-
legur. Hún sagðist í framhaldinu
myndu leggja ríka áherslu á að
ráðherra aflétti trúnaði af skjölum
sem mikilvæg séu fyrir umræðuna.
„Eins og ég hef sagt áður þá er
fókusinn á ábyrgð ráðherra og upp-
lýsingaskyldu hans.“
Óháð úttekt verður gerð á um-
ræddum barnaverndarmálum að
tillögu Katrínar Jakobsdóttur for-
sætisráðherra. Kristín Benedikts-
dóttir, dósent við lagadeild Háskóla
Íslands, og Kjartan Bjarni Björg-
vinsson héraðsdómari munu annast
verkefnið, að því er fram kemur á
vef Stjórnarráðsins. Niðurstaða út-
tektarinnar á að liggja fyrir í byrj-
un næsta mánaðar. Þá verður
henni skilað til ríkisstjórnarinnar
og í kjölfarið birt opinberlega. Í út-
tektinni verði farið yfir fyrirliggj-
andi gögn málsins og málsmeðferð
viðkomandi stjórnvalda, þ.e. þeirra
barnaverndarnefnda sem tengjast
viðkomandi málum, Barnaverndar-
stofu og velferðarráðuneytis. Fram
kemur að úttektin sé unnin að ósk
Ásmundar Einars Daðasonar, fé-
lags- og jafnréttisráðherra.
Mál þessi komu til umræðu á Al-
þingi síðdegis í gær. Þar sagði
Katrín Jakobsdóttir að niðurstaða
umræddrar úttektar gæti haft áhrif
á framboð Braga til Barnaréttar-
nefndar Sameinuðu þjóðanna.
Stjórnvöld óska eftir óháðri úttekt
Fundur velferðarnefndar Alþingis með Braga Guðbrandssyni þótti gagnlegur Óháð úttekt verði
unnin á einum mánuði Niðurstaðan kann að hafa áhrif á framboð Braga til Barnaréttarnefndar SÞ
Umdeild mál
» Bragi Guðbrandsson þykir
hafa farið út fyrir starfssvið
sitt sem forstjóri Barnavernd-
arstofu þegar hann hlutaðist
til um barnaverndarmál í Hafn-
arfirði. Hann gerðist þó ekki
brotlegur við lög. Þetta er nið-
urstaða úttektar skrifstofu fé-
lagsþjónustu í velferðarráðu-
neytinu.
» Stjórnvöld ætla að láta
vinna óháða úttekt á málinu.
Morgunblaðið/Valli
Fundað Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu, kom fyrir fund velferðarnefndar Alþingis í gærmorgun.
Dómsmálaráðu-
neytinu bárust
alls átta umsókn-
ir um embætti
sýslumanns á
Suðurlandi sem
auglýst var til
umsóknar. Sig-
ríður Á. Ander-
sen dómsmála-
ráðherra mun skipa í embættið frá
og með 1. ágúst.
Þau sem sóttu um eru Andri
Björgvin Arnþórsson lögfræðingur,
Björn Hrafnkelsson, fulltrúi og
staðgengill sýslumanns, Helgi Jens-
son, aðstoðarsaksóknari hjá lög-
reglustjóranum á Austurlandi,
Kristín Þórðardóttir, settur sýslu-
maður á Suðurlandi, Sigrún
Ágústsdóttir sviðsstjóri, Sveinbjörn
Rosén Guðlaugsson lögfræðingur,
Þuríður Árnadóttir, sviðsstjóri/
staðgengill sýslumannsins á höf-
uðborgarsvæðinu, og Þuríður
Björk Sigurjónsdóttir héraðsdóms-
lögmaður.
Átta sækjast eftir
sýslumannsembætti
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Skjaldkirtilslyf sem fjöldi fólks þarf
að nota daglega hefur ekki fengist
hér á landi frá
því í lok mars og
byrjum apríl.
Ástæðan er sú að
það fæst ekki hjá
framleiðanda.
Lyfið er hins-
vegar væntanlegt
til landsins á
föstudag og verð-
ur dreift til apó-
teka í næstu
viku, samkvæmt
upplýsingum umboðsins.
„Ég er háður þessu lyfi vegna
skjaldkirtilsins og þarf að taka
ákveðinn skammt alla daga ársins.
Vandasamt er að stilla það af. Ef ég
tek ekki lyfið í einhvern tíma hefur
það áhrif á efnaskipti líkmans og ég
koðna niður og það tekur tíma að
vinna sig upp aftur,“ segir Svanur
Guðmundsson leigumiðlari sem ekki
hefur fengið lyfið Levaxin í nokkurn
tíma. Hann segist hafa fengið lánað
af lyfjaskammti annars manns en
segist hafa orðið var við í gegnum
samskipti sem hann hafi átt í eftir
að hann sagði frá málinu á Face-
book að margir hafi lent í svipuðum
hremmingum með önnur lyf.
Lyfið ekki fáanlegt
Málið með Levaxin-skjaldkirt-
ilslyfið er að leysast, samkvæmt
upplýsingum frá Vistor sem er með
umboð fyrir framleiðandann, Ta-
keda í Danmörku. Gunnur Helga-
dóttir framkvæmdastjóri segir að
allt hafi verið gert sem hægt hefur
verið til að bæta úr ástandinu en
erfitt hafi verið um vik þar sem lyfið
hafi ekki verið fáanlegt hjá fram-
leiðanda.
Spurð af hverju ekki hafi verið
gripið til aðgerða fyrr, til að tryggja
birgðir, segir Gunnur að vandræði
hafi verið með að fá lyfið í marga
mánuði. Venjulega sé reynt að vera
með 60 daga öryggisbirgðir. Fyrir-
tækið hafi hins vegar ekki fengið
það magn sem það pantaði þar til
loks að birgðir framleiðandans voru
búnar. Hún segir að stundum sé
reynt að flýta fyrir innkaupum með
því að fá með flugi lyf sem eru búin
hér heima. Hins vegar séu vanda-
mál með hitasveiflur í flugvélum og
það hafi oft skapað vandamál því
ekki megi selja lyf þegar hitastigið
á þeim hefur ekki verið rétt allan
tímann. Í þessu tilviki hefði lyfið að-
eins komið degi fyrr með flugi en
skipi.
Ekki aukið vandamál
Samkvæmt lyfjalögum er lyfja-
heildsölum skylt að eiga nægar
birgðir algengra lyfja sem markaðs-
leyfi hefur fengist fyrir hér á landi.
Gunnur segir að ekki sé algengt að
lyf sem Vistor flytur inn séu ekki til
og slíkum vandamálum hafi ekki
fjölgað. Hún tekur fram að hún
svari aðeins fyrir sitt fyrirtæki, ekki
aðra heildsala eða framleiðendur.
Nauðsynlegt lyf ekki fáanlegt í mánuði
Algengt skjaldkirtilslyf að koma til
landsins Skylt að hafa öruggar birgðir
Lyf Miðað er við að tveggja mánaða birgðir af lyfjum séu í landinu.
Svanur
Guðmundsson