Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 80
80 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Somewhere in Iceland heitir ný ljós-
myndabók Páls Stefánssonar, 37.
bókin sem hann sendir frá sér. Í
bókinni eru 155 myndir sem teknar
eru víða um land á undanförnum
rúmum tveimur árum að sögn Páls:
„Mér finnst mér alltaf vera að fara
fram og þess vegna er þetta í raun
allt nýjar myndir.“
– Í síðustu ljósmyndabók þinni,
Iceland Exposed, sem kom út fyrir
þremur árum, eru myndir af lands-
lagi, sem eru margar ekki eins og
myndir af lands-
lagi. Í þessari
bók eru líka slík-
ar myndir, en þó
fleiri myndir sem
eru með tengingu
við náttúru og
mannlíf.
„Ef ég væri alltaf að skrifa sama
ljóðið eða taka sömu myndina held
ég að það myndi enginn hafa áhuga
á því að sjá það sem ég er að gera.
Ég er alltaf leitandi og svona bók er
eins og skáldsaga að því leyti að hún
hefur upphaf og endi. Iceland Expo-
sed var óræð, en í Somewhere in
Iceland langaði mig að setja mannlíf
inn í bókina og heyvagna og hús. Ég
byrja bókina á óræðum vetri, byrja
á engu, og enda á manngerðu.“
Við erum mannskepnur
– Fólk fer í ferðalög til Afríku til
að sjá mauraþúfur en okkur finnst
aftur á móti glatað þegar við sjáum
verksummerki eftir menn í náttúr-
unni. Þótt við séum að sjálfsögðu
líka dýr.
„Við erum mannskepnur og í bók-
inni er ég til dæmis með mynd af
ryðgandi skipsskrokki sem er eins
og fjall, fjall með fjöru.“
– Hvernig varð bókin til?
„Myndirnar koma til mín. Ég er
eins og veiðimaður sem setur flugu
út í á. Ég veit ekki hvað ég mun fá,
veit ekki hvort það bítur á silungur,
lax eða ekki neitt, en maður fiskar af
því maður setur fluguna út í ána.
Þegar maður er búinn að vera svo
lengi í þessu, 36 ár, lærir maður að
maður fer ekki í Laxá í Aðaldal um
miðjan vetur af því það er enginn
lax þar, maður fer og veiðir þegar
maður ætlar að ná ákveðnum mynd-
um.
Ég er orðinn ansi glöggur á að
lesa veðurspá fram í tímann, sjá
hvar og hvernig birtan verður og
hvenær aðstæður eru bestar til að
ná tilteknu sjónarhorni. Um daginn
heyrði ég til dæmis af því að það
væri óvenjumikið um álft í Lóni í
Lónssveit en fór ekki strax, fór þeg-
ar ég bjóst við að ég myndi ná
magnaðri stund og hún kom klukk-
an sjö að morgni daginn sem ég fór
austur og ég á staðnum.“
Eins hreint og getur verið
Myndirnar í bókinni eru nánast
allar teknar á Sony-myndavélar, á
A7R II og RX1RII, en síðarnefndu
vélina segir Páll vera uppáhalds-
ferðafélaga sinn. Í eftirmála kemur
og fram að Páll notar ekki nema
þrjár brennivíddir.
„Sýn manns breytist með árunum
og í fyrstu landslagsbókinni minni,
Light, sem kom út 1987, notaði ég
sautján linsur, frá 14 mm upp í 400
mm og allt þar á milli. Núna er
þetta tekið á fjórar linsur, tvær 35
mm, 50 mm og 85 mm. Það er eng-
inn aðdráttur í þessari bók, enginn
víðvinkill, þetta er eins hreint og
getur verið. Maður lærir það að það
þarf ekki linsubrellur til að búa til
mynd. Við Raxi vorum einmitt að
tala um það um daginn að það
vopnabúr sem við notum er orðið
nánast að engu, við erum eiginlega
bara að nota standard-linsurnar og
þurfum ekki meira. Þótt maður eigi
gommu af linsum og taki þær með í
flestar ferðir þá tekur maður þær
aldrei upp.“
Sífelld leit að sjónarhorni
Í nýrri ljósmyndabók
fléttar Páll Stefánsson
saman myndum af
óræðri náttúru og
myndum af manngerðu
umhverfi, byrjar á
engu, eins og hann lýsir
því, og endar í mann-
heimi.
Ljósmyndir/Páll Stefánsson
Birta Myndin er tekin fimmtán mínútum fyrir miðnætti vorið 2016 norður á Langanesi. Þar er vindurinn frískari og miðnæturbirtan hvergi fallegri.
Litir Páll segir að sér hafi fundist eins og barnabarn sitt hefði skvett leik-
skólalitum sínum yfir tjarnirnar, vötnin og víkurnar við sporð Hofsjökuls.
Vetur Flestar myndirnar í bókinni eru úr Bakkafirði. Í febrúarbyrjun horf-
um við niður Sandvíkurheiðina niður í Bakkafjörð, eftir þjóðvegi 85.
Sindragata 12c | Ísafirði | Sími 456 1300 | smidjan@velsmidjan.is
• Verndar vopnið þitt gegn
flestum skemmdum
• Byggir upp sterka vörn
gegn tæringu
• Verst frosti niður í – 80°C
• Lengir líftíma vopnsins
• Hryndir frá sér ryki
og skotleifum
• Ver vopnið í mjög langan tíma
Smurefni fyrir skotvopn