Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 56

Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Ég trúði á þessa hugmynd og þrátt fyrir að þetta sé búin að vera grýtt leið að mörgu leyti þá er ég enn sann- færðari eftir að ég opnaði og finn við- tökurnar sem maturinn fær,“ segir Rita en staðurinn var opnaður form- lega um síðustu helgi eftir að síðustu leyfin duttu í hús. „Við auglýstum ekki neitt eða þannig. Bara opnuðum dyrnar. Fyrsta daginn var rólegt en þó mjög áhugavert að fá viðbrögðin. Daginn eftir var mikið að gera og ég ímynda mér að margir hafi rekið augun í staðinn deginum áður og orð- ið forvitnir. Allavega þá var mikið að gera og gekk á ýmsu eins og gengur og gerist þegar staður er nýopnaður en það kom ekki að sök og viðbrögð gestanna voru frábær,“ segir Rita um fyrstu dagana. Lengstan tíma tók að finna rétta húsnæðið en það fann Rita síðasta haust. „Ég vissi um leið að þetta var rétti staðurinn,“ segir hún en Grand- inn státar nú af einstaklega skemmti- legri veitingamenningu og fjöl- breyttu úrvali veitingastaða. Lambið er í forgrunni og boðið er upp á vefjur að austurlenskum hætti en á íslenska vísu. „Við leggjum gríð- arlega mikið upp úr hráefninu og að það sé allt saman íslenskt – eða eins og kostur er. Mér finnst það skipta máli. Innfluttir tómatar eru ódýrari í innkaupum en þetta er nokkuð sem ég legg áherslu á.“ Verðið er líka gott og því ljóst að Reykvíkingar (og nær- sveitungar) eru komnir með áhuga- verðan valkost. Stærsti höfuðverkurinn var að finna leið til að gera vefjur úr ís- lensku lambakjöti. „Það varð úr að það tókst í samstarfi við Norðlenska en við notum eingöngu úrvals lamba- kjöt í verkið. Hins vegar vandaðist málið þegar kom að járnstönginni en yfirleitt kemur stöngin með kjötinu en það töldum við ekki heppilegt. Hér er um ákveðna nýsköpun að ræða enda þótti okkur glórulaust að senda kjöt á teini á milli landshluta og samkvæmist það engan veginn hugmyndum okkar um hagkvæmni og sjálfbærni. Eftir miklar pælingar fram og til baka var það Austfirðing- urinn og uppfinningamaðurinn Smári Tómasson sem hannaði sér- staka götunarvél fyrir mig,“ en hérna er um að ræða tímamótahönnun ólíka því sem áður hefur þekkst í þessum geira. Yfirkokkur staðarins er heldur enginn aukvisi. Hann heitir Glenn Moyle og er nýsjálenskur, sem þýðir að hann þekkir lambakjöt eins og lóf- ann á sér. „Glenn hefur verið hér á landi í 13 ár og smellpassar inn. Hann hefur unnið um allan heim og þekkir þessa heildarhugmynd vel.“ Hönnun staðarins vekur líka at- hygli enda er hann áberandi og út- pældur að sjá. Skringilegar merking- ar blasa við en þegar betur er að gáð (fyrir okkur sem ólumst upp í sveit) er um að ræða mörk í eyrum en slík- ar merkingar eru klipptar í eyru lamba og hefur hver bær sitt sér- staka mark. Þessi hefð er afar sér- stök og merkileg og því fallegt að sjá hvernig henni er hyglað í hönnun staðarins. Lambið er best Á Grandanum hefur verið opnaður nýr veitingastaður sem kallast Lamb Street Food og er – eins og nafnið bendir til – staður sem býður upp á afar snjalla blöndu af því sem kallast street food eða götumatur og er oft skilgreint sem vandaða útgáfan af skyndibita og svo íslensku hágæðahráefni þar sem lambið er í forgrunni. Í brúnni stendur hugsjónakonan Rita Didriksen sem ákvað að venda kvæði sínu í kross og opna veitingastað en hún starfaði sem framhaldsskólakennari fram til ársins 2015 þegar hún ákvað að fara út í veitingarekstur á samt eiginmanni sínum Ásmundi Pálmasyni. Morgunblaðið/Hari Öflugt teymi Rita Didriksen og Glenn Moyle, yfirkokkur staðarins.  SJÁ SÍÐU 58 Lodge járnpanna, 26 cm Verð 8.900 kr. laugavegi 47 www.kokka.is kokka@kokka.isÁrmúla 24 - s. 585 2800 ÚRVAL ÚTILJÓSA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.