Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018
ZAGREB
10.maí í 3 nætur
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
Kr. 49.900 flugsæti fram og til
baka á mann 10.-13. maí.
Kr. 59.995 stökktu tilboð á mann
m.v. tvo í herbergi í 3 nætur.
Frá kr.
49.900
ÓTRÚLEGT
TILBOÐ!
ALLRA SÍÐUSTU
SÆTIN
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Umferð á hringveginum jókst um
7,4% í apríl sl. miðað við sama mán-
uð í fyrra. Þó að aukningin sé mikil
er hún minni en undanfarin tvö ár.
Frá áramótum jókst umferðin sam-
anlagt um 6,3%, en frá þessu segir í
frétt á vef Vegagerðarinnar.
Umferð hefur aldrei mælst meiri í
nýafstöðnum apríl frá upphafi mæl-
inga 16 aðalteljara Vegagerðarinnar
á hringveginum. Þó að um talsverða
aukningu sé að ræða er þetta þó
mun minni aukning en hefur verið
undanfarin tvö ár.
Mest jókst umferðin um Suður-
land, eða um 11,1% en minnst um
Austurland eða um 0,9%.
Umferðin jókst um 6,3% frá ára-
mótum sem er minni aukning en
undanfarin tvö ár m.v. árstíma.
Umferð jókst mest um Suðurland
eða um 12% en minnst um Vestur-
land eða um 5,6%.
Umferðin jókst alla daga vikunnar
nema sunnudaga, það sem af er ári,
miðað við sama tímabil í fyrra. Mest
jókst umferðin á mánudögum eða
um 10,2% en minnst á sunnudögum
þar sem hún minnkaði um 0,8%.
Eins og áður er mest ekið á föstu-
dögum og minnst á sunnudögum.
Umferð eykst minna en í fyrra
Talsverð aukning en þó minni en á sama tímabili í fyrra
Umferðin minnkaði á sunnudögum en eykst aðra daga
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hringvegurinn Sólarlag á Suðurlandi þar sem umferðin jókst mest.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra og Bjarni Benediktsson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, eru
sammála um að slæmt sé að verka-
lýðsforingjar hafi í hótunum um
verkföll og skærur og þau telja afar
óheppilegt ef samskipti stjórnvalda
við aðila á vinnumarkaði eru að fara í
einhvern farveg hótana.
Þetta sögðu þau við Morgunblaðið
í gær, þegar leitað var álits þeirra á
hótunum Ragnars Þórs Ingólfsson-
ar, formanns VR, í 1. maí ræðu, um
mögulegar skærur verkalýðshreyf-
ingarinnar og á ummælum Gylfa
Arnbjörnsson, forseta ASÍ, um að
stjórnvöld væru aðalandstæðingur
verkalýshreyfingarinnar.
„Það er fyrst til að taka að ég lít
ekki á verkalýðshreyfinguna sem
andstæðing, heldur samherja í því að
vinna að félagslegum umbótum. Mér
finnst mjög slæmt ef samskipti
stjórnvalda og aðila vinnumarkaðar-
ins eru að fara í einhvern farveg hót-
ana,“ sagði forsætisráðherra í sam-
tali við Morgunblaðið í gær.
„Við höfum haldið reglulega fundi
og sá síðasti var á föstudaginn í Ráð-
herrabústaðnum, þar sem við vorum
m.a. að fara yfir þá vinnu sem er
framundan, greiningu á stöðu efna-
hagsmála í aðdraganda kjarasamn-
inga,“ sagði Katrín.
Hún bendir á að ríkisstjórnin hafi
ráðist í aðgerðir og tillögur sem hafi
sprottið úr samtali stjórnvalda við
aðila vinnumarkaðarins. Nefndi hún
sérstaklega undirbúning að nýju
frumvarpi að gjörbreyttu fyrirkomu-
lagi við ákvörðun á kjörum æðstu
embættismanna, þannig að Kjararáð
í núverandi mynd verði lagt niður.
„Ég vil líka nefna að atvinnuleysis-
bætur og greiðslur úr ábyrgðasjóði
launa voru hækkaðar í gær, eftir
þetta samtal við aðila vinnumarkað-
arins, vegna þess að verkalýðshreyf-
ingin lagði mikla áherslu á þetta.“
Aðspurður sagði fjármálaráð-
herra: „Þrátt fyrir að við því sé að
búast á baráttudegi verkalýðsfélaga,
1. maí, að það falli nokkuð stór orð,
þá komu mér þessar yfirlýsingar for-
manns VR um skærur og að verka-
lýðshreyfingin hefði það í hendi sér
að lama fyrirtæki og stofnanir á
óvart og komu raunar eins og þruma
úr heiðskíru lofti, vegna þess að
ríkisstjórnin hefur átt fjölda funda
með aðilum vinnumarkaðarins frá
því að hún tók til starfa. Á þessum
fundum hefur verið ágætis samstaða
um það verkefni sem við stöndum
frammi fyrir.“
Bjarni bendir á að ákveðin atriði í
ræðu formanns VR eigi alls ekki
heima í kjaraviðræðum. „Í kjara-
samningum eru menn að semja um
kaup og kjör og reyna að ná niður-
stöðu með viðmælendum sínum.
Þegar kröfurnar snúa að allt öðru og
hafa ekkert með kjarasamninginn að
gera, og menn boða verkföll vegna
slíkra mála, sýnist mér hæpið að
slíkt standist lög og spurning hvort
menn eru að berjast á réttum vett-
vangi. Það er líka hægt að bjóða sig
fram til Alþingis, ef menn vilja hafa
áhrif þar,“ sagði fjármálaráðherra
ennfremur.
Undrast hótanir formanns VR
Forsætisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra segja að samráð og samtöl stjórnvalda við aðila
vinnumarkaðarins hafi verið mikil, góð og árangursrík Hæpið að hótanir formannsins standist lög
Bjarni
Benediktsson
Katrín
Jakobsdóttir
Forsætisráðherra og fjármála-
ráðherra segjast bæði vera
bjartsýn á að þegar menn
setjist niður og fari að ræða
málin af einlægni og alvöru
muni þeir finna lausnir.
Ríkisstjórnin hafi ráðist í
aðgerðir og tillögur sem hafi
sprottið úr samtali stjórn-
valda og aðila vinnumarkaðar-
ins og samskipti stjórnvalda
við þá aðila hafi verið mikil
og góð.
Segjast samt
vera bjartsýn
FORMENN VG OG
SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS
Þessi snáði lét ekki hryssingslegt vorveðrið á sig
sig fá og stökk á milli steina við Tjörnina í Selja-
hverfi í Reykjavík, en maí hefur farið heldur
kuldalega af stað á landinu, víða með éljum,
slyddu og frosti.
Í dag hlýnar og birtir til norðan og austan til á
landinu, en þar mun hvessa um helgina. Áfram
verður kalt með slyddu og éljum sunnan og vest-
an til fram yfir helgi en þá fer að rigna.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Áfram spáð slyddu og éljum
Matvælastofnun innleysti í byrjun
þessa mánaðar rúmlega milljón lítra
mjólkurkvóta frá 23 framleiðendum og
endurúthlutaði til 110 bænda. Um
helmingur fór til bænda sem njóta for-
gangs en helmingurinn skiptist á milli
annarra sem sóttu um.
110 framleiðendur sóttu um að
kaupa viðbótarkvóta og var eftirspurn-
in langt umfram framboð því óskað var
eftir kaupum á alls um 33 milljónum
lítra.
Hægt er að selja og kaupa greiðslu-
mark í mjólk fyrir milligöngu Mat-
vælastofnunar fjórum sinnum á ári.
Innlausnarvirðið er 122 krónur á lítra.
Verðmæti þeirrar rúmlega milljónar
lítra sem skiptu um hendur að þessu
sinni var rúmar 127 milljónir kr. 16 ný-
liðar skiptu á milli sín 260 þúsund lítr-
um og jafn mikið fór úr forgangspotti 1
til þeirra 53 bænda sem framleitt höfðu
10% umfram kvóta á viðmiðunarárun-
um og óskuðu eftir að bæta við sig
greiðslumarki. Þeir sem eftir voru
skiptu á milli sín 526 þúsund lítrum úr
almennum potti. helgi@mbl.is
Milljón
lítrar skiptu
um hendur