Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 6

Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 Bled vatn&Rósahöfnin sp ör eh f. Haust 8 Náttúran í kringum Bled vatn er með sanni hrífandi fögur og lætur engan ósnortinn. Í ferðinni siglum við á Bled vatni út í eyjuna Blejski otok, förum til Portorož sem verður aðaláfangastaður ferðarinnar, siglum til Izola og Piran, sem eru tvær af perlum Slóveníu og sækjum tónlistarborgina Salzburg í Austurríki heim. 22. september - 2. október Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK Verð: 219.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is „Aldurinn er afstæður, mjög af- stæður,“ segir Þórður Árni Björg- úlfsson á Akureyri sem varð 100 ára í gær. „Ég hef alltaf verið jákvæður maður, gengið vel í bæði vinnu og meðal vina og það kalla ég mikið lán. Ég átti yndislega konu. Lífið hefur leikið við mig. Ég hef verið svo hepp- inn að vera heilsuhraustur mestalla mína ævi, fyrir utan einu sinni, fyrir þremur árum, þegar ég fékk sýk- ingu og var ansi veikur í sextán daga. Það eru öll veikindi mín,“ segir Þórður. Kona hans var Unnur Friðriks- dóttir en hún lést árið 2006, 93 ára. Börn þeirra eru þrjú. Þórður fæddist á Eskifirði en flutti til Akureyrar 12 ára. „Eyja- fjörður hefur tekið vel á móti mér og ég kann afskaplega vel við allt hér norðanlands. Föðurætt mín er aust- firsk en móðurættin er breiðfirsk. Ég valdi þann kostinn að vera mið- svæðis þannig að ég gæti vinkað á báða bóga,“ segir Þórður og hlær. Hann lauk vélstjóraprófi árið 1939 og rak m.a. vélsmiðjuna Val á Akur- eyri. Útivistin mikil gæfa Þórður og Unnur voru mikið útivistarfólk, sem hann segir hafa verið mikla gæfu. „Skíðagangan, úti- vistin, fjallaferðin, það var það sem ég og mín kona elskuðum og áttum góða samleið í.“ Þórður er orðinn slæmur í fót- unum og getur því ekki notið mik- illar útivistar lengur en hann býr enn á heimili sínu og sér um sig að mestu leyti sjálfur. Þegar Þórður varð níræður kviknaði áhugi hjá honum á tölvum og segir hann það hafa gefið sér margt gott. Í gegnum tölvur fylgist hann með skipa- og flugumferð og fréttum, hlustar á tónlist, horfir á Youtube og spjallar við ættmenni í gegnum Skype. „Ég hef ákaflega gaman af að fylgjast með og það geri ég í gegnum tölvuna þótt gamall sé. Ég hafði ekki áhuga fyrir tölvunni fyrr en ég varð níræður; þá fyrst opnaðist sú gátt. Fram að því vildi ég ekki sjá tölvur, mér fannst þær fara illa með tímann.“ Börn Þórðar héldu honum af- mælisveislu í hátíðarsal dvalarheim- ilisins Hlíðar á Akureyri í gær. „Ég hef ákaflega gam- an af að fylgjast með“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Aldarafmæli Þórður með börnum sínum í gær; Björgúlfur lengst til vinstri, þá afmælisbarnið, Björg og Friðrik.  Þórður Árni Björgúlfsson, 100 ára, hangir í tölvunni Baldur Arnarson baldura@mbl.is Ríflega 1.700 fleiri erlendir ríkisborg- arar fluttu til landsins á fyrsta ársfjórð- ungi en frá því. Guðjón Hauksson, sér- fræðingur á mannfjöldadeild Hag- stofunnar, segir aðspurður að sennilega sé þetta mesti aðflutningur erlendra ríkisborgara á fyrsta ársfjórð- ungi í sögu landsins. Þó sé erfitt að bera saman tímabilið við 2006-2007, enda hafi verklag hjá Þjóðskrá breyst. Til samanburðar fluttu um 20 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því á fyrsta fjórðungi. Það eru tölu- vert færri en fluttu til landsins á fyrsta fjórðungi í fyrra. Samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunnar fluttu 2.530 erlendir ríkisborgarar til landsins á fyrsta fjórðungi. Flestir komu frá Pól- landi, eða 770. Á sama tímabili fluttu 810 erlendir ríkisborgarar frá landinu og fóru flestir, eða 300, til Póllands. Á fyrsta fjórðungi fluttu 560 íslensk- ir ríkisborgarar frá landinu. Þar af fluttu 370 til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs. Þaðan fluttust líka flestir ís- lenskir ríkisborgarar, eða 400 af alls 580 aðfluttum. Með þessari þróun á fyrsta ársfjórðungi hafa um 39.300 fleiri erlendir ríkisborgarar flutt til landsins á öldinni en frá landinu. Til samanburðar fluttu um 11.500 fleiri ís- lenskir ríkisborgarar frá landinu á þessu tímabili en til landsins. Vegna þessarar þróunar í búferla- flutningum er samsetning þjóðarinnar að breytast. Karl Sigurðsson, sérfræð- ingur hjá Vinnumálastofnun, hefur bent á að fjölskyldur sameinist gjarnan eftir að fyrirvinnan festir hér rætur. Metfjöldi flytur til Íslands Búferlaflutningar frá Íslandi 2000 til 2018* Aðfluttir umfram brottflutta Heimild: Hagstofa Íslands Íslenskir Erlendir 2000 62 1.652 2001 -472 1.440 2002 -1.020 745 2003 -613 480 2004 -438 968 2005 118 3.742 2006 -280 5.535 2007 -167 5.299 2008 -477 1.621 2009 -2.466 -2.369 2010 -1.703 -431 2011 -1.311 -93 2012 -936 617 2013 -36 1.634 2014 -760 1.873 2015 -1.265 2.716 2016 -146 4.215 2017 360 7.900 2018* 20 1.720 +6 +5 +4 +3 +2 +1 0 -1 -2 -3 -4 .000 ’00 ’01 ’02 ’03 ’04 ’05 ’06 ’07 ’08 ’09 ’10 ’11 ’12 ’13 ’14 ’15 ’16 ’17 ’18* Samtals Íslenskir Erlendir 2000-2018* -11.530 39.264 2005-2007 -329 14.576 2015-2018* -1.031 16.551 Íslenskir ríkisborgarar Erlendir ríkisborgarar 8.260 *Til og með 31. mars 2018 (fyrsti ársfjórðungur) 1. ársfj. 2018 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins munu leggja fram tillögu þess efnis í dag í borgarstjórn að samþykkt verði friðlýsing Elliðaárdalsins vegna sérstaks náttúrufars, fuglalífs og jarðsögu í dalnum, skv. drögum að tillög- unni ásamt grein- argerð. „Tillagan er í samræmi við kosningastefnu flokksins um að Reykjavík verði grænasta borg Evrópu, bæði með því að leysa svifryksvandann og vernda græn svæði,“ segir Eyþór Arnalds, oddviti lista Sjálfstæðisflokksins fyrir borg- arstjórnarkosningarnar nú í maí. Framkvæmdir yfirvofandi „Við óttumst yfirvofandi byggingu á mannvirkjum á grænum svæðum í eigu borgarinnar, bæði í Elliðaárdal, Laugardal og við Reynisvatn. Búið er að gefa vilyrði fyrir því að byggt verði í Elliðaárdal og stórar bygg- ingar, t.d. í Laugardal, eru á aðal- skipulagi. Við viljum því spyrna við fótum,“ segir Eyþór og bætir við að Elliðaárdalurinn sé ekki aðeins ein- stök náttúruperla heldur einnig vin- sælt útivistarsvæði Reykvíkinga, einkum íbúa í Árbæ og Breiðholti. Í greinargerð með tillögunni segir m.a. að Elliðaárdalurinn sé náttúru- perla og stærsta græna svæði Reykjavíkur. Verndargildi hans sé ótvírætt sökum einstaks náttúrufars og mikillar fjölbreytni fuglalífs. Finna megi þar setlög frá lokum ís- aldar, strandsetlög frá hærra sjáv- armáli og 4.500 ára gamalt Leitar- hraunið móti landslagið. Elliðaárnar hafa rofið hraunið og myndað fossa, stærstu eru Selfoss og Stórifoss. Laxveiði hafi verið stunduð í Elliða- ánum frá fornu fari, líklega frá upp- hafi byggðar í Reykjavík. Danakon- ungur átti laxveiðirétt í ánum í um 300 ár þar til á 19. öld. Reykjavíkurborg keypti árnar ár- ið 1906 og árið 2012 friðlýsti þáver- andi menntamálaráðherra, Katrín Jakobsdóttir, hús í Elliðaárdalnum en ekki dalinn sjálfan. Mikilvægt sé að dalurinn verði friðlýstur gegn ágangi mannvirkjagerðar. Einungis séu fimm friðlýst svæði innan borgarmarkanna, Fossvogs- bakkar, Háubakkar, Laugarás, Rauðhólar og Eldborg í Bláfjöllum. ernayr@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Sólsetur í Elliðaárdal Náttúruperla og stærsta græna svæði Reykjavíkur. Vilja friðlýsa Elliðaárdalinn  Tillaga Sjálfstæðisflokksins í borginni Eyþór Arnalds

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.