Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 45

Morgunblaðið - 03.05.2018, Page 45
UMRÆÐAN 45 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 Við tökum vel á móti ykkur í glæsilegri búð með góðu vöruúrvali. vinbudin.is Velkomin í stærri og betri Vínbúð í Skútuvogi E N N E M M / S ÍA / N M 8 5 2 7 5 Það getur verið mikið áfall að greinast með krabbamein og veik- indin geta haft margvísleg áhrif á daglegt líf. Þess vegna er mikil- vægt að bjóða upp á fjölbreytta þjónustu og stuðning eins fljótt og unnt er, bæði fyrir þá sem greinast með krabbamein og líka fyrir að- standendur þeirra. Í dag er tilvilj- anakennt hverjir fara í endurhæf- ingu í kjölfar krabbameinsgreiningar. Starfsfólk Landspítalans gerir sitt besta til að benda á þau úrræði sem eru til staðar, en nauðsynlegt er að efla umsjón og flæðisstýringu svo allir fái sömu upplýsingar og jafnan að- gang að endurhæfingu. Á Íslandi eru starfandi endur- hæfingarstofnanir og miðstöðvar með frábæru fagfólki með áralanga reynslu af endurhæfingu. Nú leggj- umst við á eitt til að stuðla að því að þjónustan verði aðgengileg öll- um sem greinast með krabbamein. Til að framtíðarsýnin verði að veru- leika þurfum við stjórnvöld í lið með okkur. Það vantar einfaldlega meira fjármagn í þennan mála- flokk. Einn af þeim stöðum sem bjóða krabbameinsgreindum ein- staklingum og fjölskyldum þeirra upp á sérhæfða endurhæfingu og stuðning er Ljósið á Langholtsvegi 43. Ljósið er viðurkennt af land- læknisembættinu sem endurhæf- ingarstofnun á heilbrigðissviði með 13 ára reynslu í endurhæfingu krabbameinsgreindra. Þar vinnur fjölbreyttur hópur sérfræðinga á heilbrigðissviði sem hafa sérhæft sig í þessum málaflokki. Þjónustan er fjölbreytt og hugsuð fyrir þann sem greinist og nánustu fjölskyldu- meðlimi. Þjónustuþegar Ljóssins eru nú þegar um 400 einstaklingar í hverjum mánuði (krabbameins- greindir frá 16 ára og aðstand- endur 6 ára og eldri). Ljósið þjónar fólki alls staðar af landinu. Mark- mið þjónustunnar er að veita stuðning strax í kjölfar greiningar, áfallahjálp, fræða um bjargráð, ýta undir virkni og jafningjastuðning auk þess að leggja mikla áherslu á að byggja upp líkamlegt og andlegt þrek. Reynslan sýnir að það skiptir miklu máli að horfa heildrænt á einstaklinginn svo ávinningurinn verði sem mestur. Í upphafi er útbúin einstaklingsmiðuð endurhæfingaráætlun í samvinnu við þjónustuþegann. Fagteymið vinnur saman að því að meta end- urhæfingarþarfir og sinna eft- irfylgd. Algengar aukaverkanir geta verið hamlandi við athafnir daglegs lífs, til dæmis líkamlegt og andlegt þrekleysi, bjúgur, stirð- leiki, verkir og dofi, þess vegna er nauðsynlegt að hitta sérfræðinga sem veita viðeigandi úrræði og ráð- gjöf. Það má segja að Ljósið sinni endurhæfingu frá a til ö, því fólk getur nýtt þjónustuna strax við greiningu og auk- ið ákefð endurhæf- ingarinnar þar til endurhæfingarmark- miðum hefur verið náð og þjónustuþeg- inn snýr aftur á at- vinnumarkaðinn, í skóla eða önnur hlut- verk. Við hvetjum stjórn- völd til að efla endur- hæfingu og stuðning fyrir krabba- meinsgreinda og fjölskyldur þeirra. Úrræðin og mannauðurinn er til staðar nú þegar eins og hjá Ljós- inu, Krabbameinsfélaginu, Reykja- lundi, Hveragerði og Landspít- alanum, en það þarf að hjálpa þessum aðilum að viðhalda núverandi starfsemi og efla hana enn frekar með auknu fjármagni. Í dag, fimmtudaginn 3. maí kl. 15, verður haldið málþingið „End- urhæfing alla leið“ í há- tíðarsal Háskóla Ís- lands um endur- hæfingu fólks með krabbamein. Nánari upplýsingar eru á Facebook-viðburðinum, en mál- þinginu verður einnig streymt á netinu. Allir velkomnir. Þjónusta og stuðningur nauðsyn- legur fyrir krabbameinsgreinda Eftir Ernu Magnúsdóttur »Nú er tilviljanakennt hverjir fara í endur- hæfingu í kjölfar krabbameinsgreiningar. Til að breyta því þurfa stjórnvöld að móta stefnu í málaflokknum. Erna Magnúsdóttir Höfundur er forstöðukona Ljóssins. Atvinnublað alla laugardaga Sendu pöntun á augl@mbl.is eða hafðu samband í síma 569-1100 Allar auglýsingar birtast bæði í Mogganum og ámbl.is ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN Á BESTA STAÐ? Fasteignir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.