Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 03.05.2018, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN 47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 Hlífar og undirföt Angóruhlífarnar veita léttan stuðning við auma vöðva á þrengja of mikið að. Angóran sér um að halda líkamanu og hlýjum án þess að valda kláða. Hlífarnar eru tilvaldar til hvers kyns útivista og eins og hjólreiða, útihlaupa eða í golfið. Úlnliðshlífar Langerma bolur Olnbogahlífar Hnéhlífar Mjóbakshlíf Axlastykki Y L F A ANGÓRA Einnig fáanlegt í netverslun: www.lyfja.is n þess að m þurrum íþrótta, Ég bjó hér og starf- aði í 40 ár, áður en ég fluttist til útlanda 1989. Á þeim tíma fannst mér Sjálf- stæðisflokkurinn höfða til mín um margt, með stefnu sinni og starfi, og þegar ég settist að í Þýzkalandi virtist Kristilegi demókrata- flokkurinn þar vinna í svipuðum anda og Sjálfstæðis- flokkurinn hér. Þegar ég svo kom aftur heim síðla árs 2016 brá mér aldeilis í brún; Sjálfstæðisflokkurinn líktist ekki lengur Kristilegum demókröt- um, heldur miklu fremur þýzka hægri þjóðernis- og öfgaflokknum AfD. AfD skipar sér síðan í flokk með „Frelsisflokki“ Wilders í Hollandi, Brexit-flokknum UKIP og „Front National“ í Frakklandi, en stefna þeirra er náskyld þjóðernis- og einangrunarstefnu Donalds Trump, enda eru þetta allt baráttufélagar og vinir. Þetta eru öfl sem vilja brjóta upp ESB og Evrópu, takmarka ferða- og dvalarfrelsi, reka útlend- inga úr landi, draga úr alþjóða- samstarfi, endurbyggja tollamúra milli landa og einblína á eigin hags- muni, án heildarsýnar og skilnings á því að heimurinn er í vaxandi mæli að verða eitt samfélag og einn markaður þar sem gagn- kvæmur skilningur, samhjálp og samstarf verður að gilda, ekki að- eins til þess að ein- stakar þjóðir geti bætt hag og öryggi þegna sinna, heldur líka til þess að jarðarbúar geti yfirhöfuð átt möguleika á að tryggja tilveru sína og framtíð. Þessir menn hugsa ekki til þess að um næstu aldamót verður mannkynið um 11,5 milljarðar, en Evr- ópubúar ekki nema 0,5 milljarðar, eða rétt 4-5% af jarð- arbúum, og að án fullkominnar samstöðu og bróðurlegrar sam- vinnu Evrópuþjóða verður ómögu- legt að verja lífshætti, siðmenningu og velmegun álfunnar og tryggja framtíð barna okkar og barna- barna. Forysta Sjálfstæðisflokksins dró upp glansmynd af nýafstöðnum landsfundi flokksins, en er hún rétt? Formaðurinn var valinn með 710 atkvæðum, sem talin voru 96,2%. En, voru ekki 1.200 manns á fund- inum? 710 atkvæði miðað við það eru aðeins 59%. Raunverulegt fylgi varaformanns og ritara var enn minna. Gagnkvæmur skilningur, samheldni og sönn samstaða hafa á sér annað yfirbragð. Önnur hægri öfgaöfl og flokkar popúlista í Evrópu hafa oft 10-15% fylgi, en Sjálfstæðisflokkurinn telst með 25% fylgi. Verði þátttaka sjálf- stæðismanna í landsfundar- kosningum og stuðningur þeirra við forystuna skoðaður hrökkva þessi 25% hins vegar niður í 15%. Það skyldi þó ekki vera að raun- fylgi Sjálfstæðisflokksins sé komið niður í 15% og að aðrir stuðnings- menn kjósi flokkinn af gamalli tryggð og gömlum vana? Morgunblaðið skrifar í undirfyrirsögn: „Meðalaldur for- ystumanna Sjálfstæðisflokksins 36 ár“. Áttu þetta víst að vera góðar fréttir. Reynsla og þekking, sem lífs- hlaupið eitt veitir, skiptir oft miklu máli við stjórnun og ákvörðunar- töku. Í ýmsum þjóðfélagshópum ráða „þeir öldruðu og vitru“ og það ekki að ófyrirsynju. Það skal dregið í efa að ung for- ysta flokksins hafi þá reynslu og þekkingu sem nauðsynleg er til að hún geti rækt forystuhlutverk sitt af þeirri dómgreind, víðsýni og vizku sem æskileg er. Landsþingið virðist ekki hafa rætt mikið eða reifað stefnu lands- manna í gjaldmiðlamálum, jafn brýnt og mikilvægt og það mál þó er, heldur virðist formaðurinn hafa fengið þegjandi samþykki fyrir þá stefnu sína að halda beri krónunni. Aðalrök formannsins fyrir því að „íslenzka krónan verði gjaldmiðill þjóðarinnar til framtíðar“ eru þessi: „Það geri þjóðinni kleift að mæta búhnykkjum, jafnt sem áföll- um“. Það sanna og rétta er hins vegar að ef hér væri evra, ekki króna, væri stöðugleiki og öryggi en ekki sveiflur og óvissa; það væru engir „búhnykkir og áföll“. Þá segir formaðurinn að styrking íslenzku krónunnar í kjölfar gríðar- legrar fjölgunar ferðamanna til landsins hafi gert það að verkum að tugprósenta hækkanir kaups hafi ekki leitt til verðbólgu. Aftur verður formanni á fóta- skortur í rökhyggjunni. Ef hér væri evra, ekki króna, hefðu tugprósenta launhækkanir ekki verið á dagskrá og ekki komið til greina; launþegar hefðu gert sér grein fyrir stöðugleika og öryggi evrunnar og unað hóflegum og raunsæislegum kauphækkunum, í ramma hagvaxtar eins og gerist í öðrum evrulöndum. Lokarök formannsins fyrir krón- unni eru jafn ónýt og þau fyrri. Hann segir það „heimsmet í bjart- sýni, óskhyggju og barnaskap“ (tel- ur sig nú á sterkum ís, sem þó ekki er) að Evrópski seðlabankinn (ES) muni horfa til íslenzkra efnahags- mála við vaxtaákvarðanir og aðra stefnumörkun. Auðvitað horfir ES ekki til stöðu einstakra ríkja, allra sízt þeirra smæstu, við stefnumörkun sína, vaxtaákvarðanir og annað, heldur horfir hann til heildarstöðu ríkjanna 25 sem evruna hafa, en það er einmitt heildarstærð og efnahagslegur styrkur þessara 25 þjóða til samans sem gefur evrunni þann trausta grunn og stöðugleika og tryggir jafnframt þá lágu vexti sem allar þjóðir, líka vitaskuld við, stefna á. Það er dapurlegt að formaðurinn skuli ekki átta sig á því að krón- urök, ef rök skyldi kalla, eiga bara við um krónuna, en alls ekki evr- una, sem er allt annar og langtum æðri gjaldmiðill sem byggist á stórri og öflugri heild margra stórra hagkerfa en ekki á minnsta hagkerfi álfunnar. Að lokum þetta um formann Sjálfstæðisflokksins og stefnu hans: Formaðurinn vill lækka ríkis- útgjöld úr 45% af vergum þjóð- artekjum niður í 35%. Miðað við áætluð ríkisútgjöld 2018, sem eru um 768 milljarðar, þá yrði að lækka ríkisútgjöld um 171 milljarð, eða – miðað við óbreyttar þjóðar- tekjur – niður í 597 milljarða. Ráðdeild í ríkisrekstri er auðvit- að af hinu góða, en við höfum byggt upp svipað velferðarkerfi og hin Norðurlandaríkin, og ríkis- útgjöld þeirra eru 52% (Danmörk), 49% (Noregur), 48% (Svíþjóð) og 52% (Finnland). Auk þess liggja hér fyrir stór- felld, samansöfnuð og kostn- aðarsöm verkefni á sviðum sam- göngumála, menntamála og heilbrigðismála. Er hægt að flokka framan- greinda stefnumörkun formanns Sjálfstæðisflokksins undir góða dómgreind og heilbrigða skynsemi? Svari hver fyrir sig, ekki sízt sjálfstæðismenn. Hvað varð um Sjálfstæðisflokkinn okkar? Eftir Ole Anton Bieltvedt » Það skyldi þó ekki vera að raunfylgi Sjálfstæðisflokksins sé komið í 15% og að aðrir stuðningsmenn kjósi flokkinn af gamalli tryggð og gömlum vana? Ole Anton Bieltvedt Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslu- maður og stjórnmálarýnir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.