Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 82

Morgunblaðið - 03.05.2018, Síða 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 3. MAÍ 2018 Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is nari upp singar áwww.geosilica.is Unnið úr 100% náttúrulegum íslenskum jarðhitakísil og magnesíum í hreinu íslensku vatni. Varan inniheldur engin aukaefni. Recover er sérstaklega hannað og þróað af geoSilica til að stuðla að eðlilegri vöðva- og taugastarfsem fyrir öll tölvurými og gagnaver Kæling Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Við tökum út og þjónustum kæli- og loftræsti- kerfi »Fyrsta kvikmynd leikstjórans Bark- ar Sigþórssonar í fullri lengd, Vargur, var frumsýnd í gær- kvöldi í Smárabíói að viðstöddu fjölmenni. Að vonum var glatt á hjalla hjá þeim sem komu að gerð kvik- myndarinnar og boðsgestum. Hátíðarfrumsýning á kvikmyndinni Vargi fór fram í Smárabíói í gærkvöldi Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Frumsýning Tökumaðurinn Bergsteinn Björgúlfsson, iðulega kallaður Besti, og leikararnir Marijana Jankovic, Anna Próchniak og Baltasar Breki Samper biðu spennt eftir að frumsýningin á Vargi hæfist. Kanónur Ilmur Kristjánsdóttir, Þórunn Sigurðardóttir og Unnur Ösp Stef- ánsdóttir voru tilbúnar í slaginn. Þetta var ekki fyrsta frumsýning þeirra. Brosmild Pétur Óli Gíslason, Ragnar Agnarsson, einn eigenda Sagafilm, og Arnbjörg Hafliðadóttir, framleiðandi hjá Sagafilm, voru í rétta gírnum. Spennumynd Börkur Sigþórsson leikstjóri og Anna Próchniak leikkona tóku tal saman. Börkur þykir einn efnilegasti leikstjóri landsins í dag. Kammerkórinn Vokal Nord, einn fremsti kór Nor- egs, heldur tónleika á vegum Listvinafélags Hall- grímskirkju og kórsins Schola cantorum í Hall- grímskirkju í kvöld kl. 20. Kórinn heldur brátt til Seattle í Bandaríkjunum þar sem hann mun syngja við hátíðaropnun hins nýja landnemasafns, Nordic Heritage Museum, á laugardag og sunnudag undir stjórn Harðar Áskelssonar. Kórinn er skipaður at- vinnutónlistarmönnum, rekinn með styrk frá norska ríkinu og hefur hlotið ýmsar viðurkenningar og unnið til alþjóðlegra verðlauna fyrir söng sinn, að því er fram kemur í tilkynningu. Á tónleikunum í Hallgrímskirkju í kvöld kemur Schola cantorum einnig fram sem gestakór og munu kórarnir syngja saman í nokkrum verkum og þá m.a. eftir Grieg. Hafsteinn Þórólfsson verður einsöngvari ásamt einum kórfélaga úr Vokal Nord, Harald Bakkeby Moe. Kórarnir syngja líka saman nokkur íslensk verk, m.a. eftir Hjálmar H. Ragn- arsson, Tryggva M. Baldvinsson og Þorkel Sigur- björnsson. Schola cantorum mun syngja verk eftir Sigurð Sævarsson og Jórunni Viðar, „Vökuró“, en í því syngur Guðmundur Vignir Karlsson tenór ein- söng. Vokal Nord hefur einnig lagt áherslu á þjóðlegan arf í söng sínum, að því er kemur fram í tilkynn- ingu, og spannar efnisskrá kórsins í kvöld allt frá gömlu norsku þjóðlagi yfir í verk eftir Jan Sand- ström sem byggist á samíska söngstílnum „joik“. Björn Anton Drage er listrænn stjórnandi kórsins og verða verk eftir hann einnig á efnisskránni auk þekktra og þjóðlegra laga, m.a. frá Finnlandi. Miðasala fer fram við innganginn og er miðaverð kr. 2.500. Ljósmynd/Øivind Arvola Vokal Nord í Hallgrímskirkju
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.