Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Blaðsíða 49
É g e r g a m a l l s n i l l i n g u r
TMM 2018 · 2 49
Ef þú værir ekki þú hver vildirðu vera?
Líklega dýr. Ég held að sú manneskja sé ekki til sem ég myndi óska mér að
vera. Fugl – ég vildi geta flogið.
Hvað er undarlegast við sjálfa þig?
Upp að ákveðnu marki lifi ég í draumi. Ég er ekki viss um ég hafi vaknað
aftur þarna þegar ég var lítil og datt á hausinn og velti oft fyrir mér hvort
þetta sé draumur eða veruleiki. Það er frekar stöðug líðan. Efinn er aldrei
langt undan hvort sem góðir hlutir gerast eða vondir og stundum geta til-
viljanirnar varla verið sannar og það hvernig hlutir tengjast – mér finnst oft
einhver búa þetta til. En það er allt í lagi, yfirleitt kann ég vel við drauminn.
Hvenær og hvar varstu glöðust hingað til?
Í lífinu mínu?
Já.
Ég er frekar glöð núna. Ég á nýtt heimili í Texas sem ég er ánægð með og
mér þykir gott að koma aftur heim til New York, hér er líka líf mitt. Á eftir fer
ég í afmæli og í kvöld fer ég á ljóðaupplestur [#43 árlegi nýársljóðaupplestur
í St. Marks kirkju í East Village] og hitti alla.
Hvaða dyggð er ofmetin?
Stundvísi.
En vanmetin?
Tryggð – allir meta tryggð – æ, ég get ekki svarað þessu, ég veit ekki hvað
dyggð er og ég veit ekki hvað fólk metur – ég lýsi yfir vanhæfni til að svara
þessari spurningu. Ég er ekki nógu eðlileg til að þekkja svarið.
Hvað er það dýrmætasta sem þú átt?
Leikbrúðurnar mínar sem ég bjó til þegar ég var lítil – ég á þær enn.
Hver er mesta ást lífs þíns?
Hundurinn minn.
Hvað líturðu á sem hina mestu eymd í heiminum?
Donald Trump og eðli þess kerfis sem kom honum til valda.
Uppáhaldspersóna í raunheimum?
Ég held ég eigi ekki uppáhaldsfólk. Ég elska vini mína: Adam, Cathy, Joe,
Joe, Tom, Joan, Myra, Nate, Mark, Maggie, Jill, Alice, Michael, Ann. Ruth.
Andrea.