Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Blaðsíða 58

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Blaðsíða 58
K a r l Á g ú s t Ú l f s s o n 58 TMM 2018 · 2 næsta sem ég vissi var að Þorvaldur kom holdvotur og hattlaus niður um gatið. Skipið var ekki fyrr komið á réttan kjöl en það tók að halla ískyggi- lega á bakborðshliðina. Þorvaldur skipaði mér að hafa hraðar hendur og ég hugðist steypa yfir mig stakknum, en þá stöðvaði hann mig og sagði að ég hefði ekkert upp á dekk að gera – nú yrðum við að hafa hraðar hendur við að bjarga plöttunum. Mér varð það ljóst síðar að líklega hefur hann verið búinn að hugsa þetta ráð. Að minnsta kosti var hann undarlega skjótráður. Eftir fyrir- mælum hans lögðum við plattana, alla tuttugu og sjö, flata á dýnuna mína, lögðum síðan dýnuna úr koju Þorvaldar ofan á og bundum utan um með snæri. Skipið valt og skoppaði eins og korktappi og áður en okkur tókst að ljúka þessum björgunaraðgerðum höfðu fjórir plattar splundrast ýmist á gólfi eða vegg. Það voru Forventning til den komm- ende julenat, Spurvenes andakt, Interiør fra en gotisk kirke og Den gamle organist. Eftir þetta héldum við báðir upp á dekk til að berja ísingu af vírum og stögum uns við náðum inn á Ísafjarðardjúp og gátum lagst í var. Ef til vill tengdi þessi atburður okkur Þorvald nánari böndum en áður hafði verið. Það kemur þó ekki við þessa sögu og því óþarft að velta vöngum yfir því. Þorvaldur hvatti mig til að skrifa Dýrfinnu frænku minni og þakka henni hugulsemina að senda mér ævinlega jólaplatta Bing og Grøndahl, láta hana vita hve kært þetta safn væri orðið mér, einkum vegna þess hve það tengdist minningu Guðríðar systur minnar. Jafnframt vildi Þor- valdur að ég léti vita af þeim afföllum sem orðið hefðu og að ég tilgreindi hvaða plattar hefðu glatast á undangengnum árum. Vorið 1927 barst mér böggull frá Kaupmannahöfn, stærri en ég átti að venjast. Í honum voru allir plattarnir sem nú vantaði í safn mitt og taldist það því heilt og óskert, alls þrjátíu og þrír plattar. Kasper rakari var þá látinn, blessuð sé minning hans, og Dýrfinna frænka orðin ekkju- frú Tyffing. Í bréfi hennar lagði hún áfram hart að mér að heiðra minn- ingu foreldra minna og systkina og gæta vel þeirra verðmæta sem hún hefði nú um árabil fengið mér til varðveislu. Jón forseti lá við bryggju í Reykjavík þegar sendingin barst og við Þorvaldur stilltum öllu safninu upp á kojur okkar og skipsfélaga okkar í réttri tímaröð, fægðum hvert stykki og virtum fyrir okkur lengi kvölds. Okkur þótti sem við værum enn að taka eftir smáatriðum á einstökum plöttum sem við hefðum aldrei veitt athygli áður. Nú er ekki svo að skilja að í bréfum mínum til Bing og Grøndahl tíni ég til allt það sem hér fer á undan. Þvert á móti reyni ég að halda mig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.