Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Blaðsíða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.05.2018, Blaðsíða 64
S n o r r i Pá l l 64 TMM 2018 · 2 blaðamaðurinn Ben Watson sig á svipuðum nótum og Stockhausen. „Hver er merking róttækrar tónlistar eftir tortíminguna á Manhattan?“ spurði hann, nefndi til sögunnar vestur-berlínsku hljómsveitina Einstürzende Neubauten (nafnið þýðir „fallandi nýbyggingar“ og skírskotar til húsa sem reist voru í Þýskalandi eftir seinni heimsstyrjöldina) og rifjaði upp hvernig sveitin – þekkt fyrir beislun brotajárns, iðnaðarverkfæra og annarra „óhefð- bundinna“ hljóðgjafa í tónlist sinni – markaði framúrstefnuorðspor sitt í Bretlandi þegar meðlimir hennar réðust með loftpressu á burðarþolsbita í samtímalistasafninu Institute of Contemporary Arts í Lundúnum árið 1984. „Eftir 11. september blikna slík brek vitaskuld og verða lítilfjörleikanum að bráð,“ sagði Watson, og bætti við að slíkur samanburður gæti þótt særandi.4 „Særandi“ er einkar vægt til orða tekið: viðbrögðin við ummælum Stock- hausens, lituð einbeittum vilja til mistúlkunar og hneykslunar, gáfu til kynna að hann væri ekkert annað en ótíndur morðingi, ef ekki hreinlega hryðju- verkamaður – líkast því að Osama bin Laden hefði samið Söng unglinganna um miðbik síðustu aldar og bætt þannig nýjum, byltingarkenndum litum á pallettu vestrænnar tónlistarhefðar. Haft var eftir gömlum kollega Stockhau- sens, ungverska tónskáldinu Gyorgy Ligeti, að það ætti að læsa hann inni á geðsjúkrahúsi.5 Mariella dóttir hans, píanisti að starfi, lýsti því yfir að hún hygðist hætta að nota eftirnafn sitt,6 á sama tíma og bæjarstjórinn í Kürten, heimabæ Karlheinz, sagðist íhuga að binda enda á tónsmíðakennslu hans þar í bæ.7 Ummælin voru í besta falli sögð „útrás sjálfhverfs vitfirrings“ sem hefði „fyrir löngu tapað tengslum við raunveruleikann,“ og meint tengsla- leysið stutt með tilvísunum í verk hans og fyrirmæli til flytjenda, háfleygar hugmyndir hans um markmið lista, og ekki síst „hættulega yfirdrifinn“ metnað.8 Stjórnandi Barbican-listamiðstöðvarinnar í Lundúnum fann sig fljótlega tilneyddan að réttlæta opinberlega fyrirhugaðan flutning á verkum Stockhausens, tæpum mánuði eftir árásirnar, með yfirlýsingu um nauðsyn þess að skilja listamanninn og sköpun hans frá einstaklingnum.9 Og and- úðin lifði tónsmiðinn: tæpum sjö árum síðar, hálfu ári eftir andlát hans, sá breska dagblaðið The Guardian, þá tiltölulega nýlega sjálfskipuð „leiðandi rödd frjálslyndis í heiminum,“10 ástæðu til að velta þeirri spurningu upp í fyrirsögn – og það í fullri einlægni – hvort kominn væri tími „til að fyrirgefa Stockhausen“.11 Samhengi ummælanna skipti vitaskuld engu. Heldur ekki þau orð tón- skáldsins, sem féllu við sama tilefni, að í ljósi þeirrar augljósu staðreyndar að flestir „þátttakendurnir“ veittu aldrei samþykki sitt – mættu ekki sjálfvilj- ugir á „viðburðinn“ – hafi listaverkið auðvitað verið glæpsamlegt. Enn síður stoðaði bón hans undir lok fundarins um að blaðamennirnir „aðstoðuðu fólk við að heyra tónlistina, opna sig fyrir nýrri reynslu“ frekar en að gera orð hans um árásirnar að söluvænlegum fyrirsögnum. Fáum að óvörum, eins og svissneski fræðimaðurinn Christian Hänggi kemst að orði, stóðust blaðamennirnir ekki freistinguna, „margfölduðu ummælin á ógnarhraða –
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.